Íþróttablaðið - 01.10.1986, Síða 53

Íþróttablaðið - 01.10.1986, Síða 53
Frjálsar Guðmundur Sigurðsson í harðri baráttu við Guðmund Skúlason (t.v.) og höfuðkeppinaut sinn frá síðasta keppnistímabili. Hannes Hrafnkelsson (t.h.). einfalt. En bundnar höfðu verið vonir við að 8—10 íslendingar myndu taka þátt í mótinu en þeir voru aðeins 4 þegar upp var staðið. Ein aðalástæðan mun felast í þeirri staðreynd að allur hópurinn saman stóð af íþróttafólki sem stundar nám í háskóla í Bandaríkj- unum. Fyrir þennan hóp hefst keppnis- tímabilið í mars/apríl sem hefur í för með sér að hann þarf að tvítoppa, þ.e.a.s. að ná hámarksformi tvisvar sinnum á keppnistímabilinu því ekki er hægt ao hefja keppnistímabilið svo snemma og halda formi fram í Iok ágúst. Þetta er ekki bara þjálffræðilegt vandamál heldur kemur að auki um- hverfisbreyting þegar komið er heim til íslands í lok maí. Útlendingahersveitin: Flutningur afreksmanna okkar út í heim til að skapa sér betri aðstöðu til æfinga og keppni er ein leið til að geta staðist samkeppni á alþjóða vettvangi. Það sýnir sig best þegar við lítum á hvernig lið okkar hefur verið skipað á síðustu stórmótum eða nær eingöngu meðlimum sem búa erlendis % úr árinu eða meira. Þetta gengur þó ekki end- anlega upp fyrr en þeir sem stunda nám og æfingar vestra geta unnið úr getu sinni yfir heilt keppnistímabil. Með öflugri starfsemi félaganna og með nýtilkomnu styrkjakerfl frjáls- íþróttasambandsins ætti að verða kleift að senda afreksfólkið í fleiri keppnir á alþjóðlegum mælikvarða og þar með að eignast betra afreksfólk og fleira. Það hefur færst í vöxt á síðari árum að félögin skipuleggi hópferðir fyrir íþróttafólk sitt bæði til æfinga og keppni. Til þessara ferða þarf að vanda geysilega bæði hvað varðar undirbún- ing og val í hópinn svo að sem mestu gagni megi verða. Bikarkeppnin: Bikarkeppni frjalsíþ róttasambands- ins fór fram dagana 9,—10. ágúst og var hart barist á öllum vígstöðvum. Annars vegar til að sigra í viðkomandi deild og hins vegar til að verjast falli niður í lægri „klassa“. Bikarmeistara- tign ÍR-inga varð að staðreynd í fimmt- ánda sinn í röð. Urðu ÍR-ingar að leysa Ieynda krafta úr læðingi til að verja hinn eftirsótta titil enda grunaði þá að róðurinn yrði harðari en oft áður. End- urkoma Óskars Jakobssonar í kast- hringinn gladdi ekki bara ÍR-inga held- ur alla sanna fylgjendur íþróttarinnar því hann sýndi slíkan afbragðs árang- ur. Hefur hann fáu gleymt þó hann hafi ekki lagt stund á íþróttina í tvö ár. Annars er einkennandi fyrir bikar- keppnina að mannfæð félaganna kem- ur þar fram. Mikið álag er á fáum ein- staklingum enda situr stigakeppnin í fyrirrúmi en ekki árangurinn. Betra væri því að bikarkeppnin væri fyrr á keppnistímabilinu svo íþróttafólkið gæti einbeitt sér meira að betri árangri í sinni sérgrein í stað þess að vera að safna stigum fyrir félag sitt á þeim tíma keppnistímabilsins sem það er í sínu besta formi. Þessi tímasetning kemur einnig í veg fyrir að keppendur geti verið á keppnisferðalagi erlendis því allir verða jú að vera með í bikarkeppn- inni. Áherslan er einnig svo mikil á þetta mót sem ætíð er fyrri hlutann í ágúst að allt loft er úr kjarnanum að því loknu. Það er allt of snemmt að ljúka keppnistímabilinu fyrri hlutann í ágúst. Met á árinu: Hér verður aðeins fjallað um ný met sem sett voru í karla- og kvennaflokki á keppnistímabilinu. Aðeins voru sett 8 met, 7 í kvennafokki og eitt hjá körl- um. Eins og fram mun koma í umfjöll- un um hinar ýmsu greinar hér á eftir er það engin tilviljun að eina metið sem sett var í karlaflokki var í lengri vega- lengdum en breiddin hefur einmitt aukist mjög í þeim greinum. Þess ber þó að geta sérstaklega að ekki verða skráð nein met í spjótkasti þetta árið og skekkir það vissulega heildartölu settra meta miðað við fyrra ár.

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.