Íþróttablaðið - 01.10.1986, Side 55
Frjálsar
íþróttafélög og klúbbar!
Við bjóðum ýmsa hluti merkta eftir þínum óskum svo sem:
Auglýsinganælur Ennisbönd
Boli (stutterma og Handklæði
háskólab.) Bróderuð merki
Húfur Svuntur
Regnhlífar Drykkjarmál
Blöðrur Kveikjara
Endurskinsmerki Hálsbindi
Verðlaunaplatta Slæður
úr hnotu og beyki Veski
Lyklakippur Reglustikur
Upptakara Prjónmerki
Penna Golfkúlur
íþróttatöskur Púða (kodda)
Trefla o.m.fl.
Athugaðu hvort við höfum eitthvaðfyrir þig.
/m Dalshrauni 13 Hafnarfirði Sími: 54833 og 651999
vegalengdahlauparinn Guðmundur
Sigurðsson UMSK íslandsmeistarinn í
800 og 1500 m. hlaupum.
Millivegalengdir og langhlaup: Það
er áhyggjuefni hversu fáir einstakling-
ar undir tvítugu leggja stund á þessar
greinar nú í dag. Steinn Jóhannsson
(18) nær best 1:55.9 og Finnbogi Gylfa-
son (16) 1:57.76 mín. eru einu undan-
tekningarnar af þeim sem ná því marki
að hlaupa undir 2 mín. Oddur Sigurðs-
son reyndi fyrir sér í greininni snemma
á keppnistímabilinu og er með besta
árstímann 1:51.9. Guðmundur Sig-
urðsson sýndi einnig góðar framfarir
og nær best 1:52.6, en samtals hlaupa
10 hlauparar innan við tveggja mín.
múrinn. í 1500 metrunum er ástandið
slæmt, þar sem aðeins 4 fara undir
íjögurra mín. múrinn. Þeir Hannes
Hrafnkelsson og Guðmundur Sigurðs-
son settu sterkan svip á greinina og
náðu 3:57.4 og 3:54.6 í 1500 m., í réttri
röð. í lengri vegalengdum hefur orðið
mikil breyting hvað þátttöku varðar og
gefur það vonir um auknar framfarir
miðað við undanfarin ár. Eins og áður
er getið var eina met ársins í karla-
flokki sett í hálfmaraþonhlaupi er Sig-
urður P. Sigmundsson hljóp á 67.09
mín. í 3000 m hindrunarhlaupi er
Martha Erntsdóttir tók miklum fram-
förum á árinu. Einbeitingin gefur til
kynna að hún ætli að halda áfram á
sömu braut.
ástandið bágt enda leggur enginn
stund á greinina.
Grindahlaup: Stefán Þór Stefáns-
son, 14.6 og Hjörtur Gíslason, 14.89
sek. voru bestir í háu grindinni en í
þeirri löngu ber Aðalsteinn Bernharðs-
son af með 52.54 sek. Sömu sögu er að
segja hér. Allt of fáir leggja stund á
þessar greinar svo hægt sé að binda
vonir við góðar framfarir á næstunni.
Stökk: Hvað breiddina varðar var
þetta gott hástökksár. Sex stökkvarar
stukku 2 m eða hærra. Unnar Vil-
hjálmsson var með best 2.08 m og
mjög efnilegir stökkvarar fylgja á eftir
og ber helst að nefna þá Einar Kristj-
ánsson, 2.02 og Jóhann Ómarsson,
2.01 sem báðir eru á 18. aldursári. í
langstökkinu var Kristján Harðarson
bestur með 7.55 m., og Friðrik Þór í
þrístökkinu með 14.36 m. Friðrik sigr-
aði í bikarkeppninni í 15. sinn en hefur
þó ekki lagt mikla stund á íþróttina
undanfarið. Hin hryggilega staðreynd
er sú að enginn stundar þessa grein
hér á landi svo ekki er von á miklum
framförum í henni. í stangarstökkinu
var Sigurður bestur eins og undanfarin
ár með 5.25 m. Kristjan Gissurarson
var einnig yfir 5 m með 5.06.
Köst: Spjótkastarar okkar þeir Einar
Vilhjálmsson, 80.18 m. og Sigurður
Einarsson, 79.74 m. eru báðir í heims-
klassa. Sigurður Matthíasson, 70.80 m
komst einnig á blað síðla sumars með
mjög frambærilegan árangur. í
kringlukasti var Vésteinn Hafsteinsson
aðeins frá sínu besta, 63.98 m en Egg-
ert Bogason bætti sig vel eða í 62.56
m. Eggert var einnig með bestan ár-
angur í kúluvarpi og sá eini yfir 18 m.
og varpaði hann 18.13 m. Áhyggjuefni
er hversu fáir fylgja hér á eftir.
Eins og fram hefur komið í þessari
samantekt er skortur á iðkendum í
vissum greinum innan frjálsra íþrótta á
íslandi í dag. Augljóst er að efla þarf
unglingastarfið til að fá fleiri inn í
íþróttina og reyna að bæta alla að-
stöðu. Þar sem afrekin í einstökum
greinum eru komin á heimsmælikvarða
sýnist mér að þau verið varla bætt
nema með dvöl erlendis meiri hlutann
úr árinu, helst um nokkurra ára skeið.
55