Íþróttablaðið - 01.10.1986, Page 56
Texti: Jón Sigurðsson
íslenskur körfuknattleikur hefur
aldrei staðið í jafnmiklum blóma og
einmitt nú.
Sigur íslenska landsliðsins í C-riðli
Evrópukeppninnar og áframhaldandi
vera landsliðsins í B-riðli eftir góðan
árangur í B-riðli keppninnar í Belgíu í
vor er gott dæmi.
Annað dæmi er nýgerður atvinnu-
samningur Péturs Guðmundssonar við
Los Angeles Lakers, margfalda meist-
ara bandarísku atvinnumannakeppn-
innar NBA. Aðeins þrír aðrir Evrópu-
búar eru á samningi með öðrum liðum
NBA.
Vertíð körfuknattleiksmanna sem
hefst innan tíðar er því mikið tilhlökk-
unarefni öllum þeim fjölmörgu sem
stunda eða fylgjast með þessari
skemmtilegu íþrótt.
Hér á eftir fer stutt samantekt á lið-
um úrvalsdeildar. Getið verður um
helstu mannabreytingar og fjallað lítil-
lega um getu og styrk hvers liðs.
Einnig verður minnst á 1. deild
KÖRFU
íslandsmeistarar Njarðvíkur 1986.
karla, landsliðsmál karla, kvenna og
unglinga.
*
Grvalsdeild:
Það sem vekur fyrst eftirtekt er sú
staðreynd að öll úrvalsdeildarliðin hafa
skipt um þjálfara. Það er greinilegt að
öll liðin ætla sér stóra hluti og ekkert
annað en sigur. Með nýjum þjálfurum
má vænta ýmiskonar breytinga á leik-
stíl liðanna og verður því fróðlegt að
fylgjast með framvindu íslandsmótsins
sem hefst föstudaginn 3. okt. kl. 20:00
á leik UMFN — KR í Njarðvík.
ÖMFN
Þjálfari: Valur Ingimundarson
fslandsmeistarar Njarðvíkinga verða
fyrir litlum breytingum öðrum en þeim
að missa þjálfarann Gunnar Þorvarðar-
son og verður trúlega erfitt að fylla
það skarð. Ingimar Jónsson mun
ganga til liðs við Hauka.
Styrkur UMFN hvílir áfram á sam-
stilltum, sterkum og reyndum leik-
mönnum sem hafa leikið mörg ár sam-
an. Liðið einkennist af mjög hröðum
leik með fijálslegum en um leið öguð-
um sóknarleik.
Valur Ingimundarson sem alltaf
skorar sín stig ásamt bakvörðunum
fljótu ísaki Tómassyni, Teiti Örlygssyni
og Jóhannesi Kristbjömssyni ásamt
framherjunum ungu Kristni Einars-
syni, Hreiðari Hreiðarssyni og miðherj-
anum sterka Helga Rafnssyni er ekki
auðsigrað lið.
Það er óhætt að spá þeim góðum
árangri en þess ber að gæta að engin
leikur er unninn fyrirfram.
ÍBK
Þjálfari: Gunnar Þorvarðarson
Keflvíkingar vænta góðs af þessum
vinsæla og jafnframt árangursríkasta
þjálfara úrvalsdeildarinnar.
Litlar breytingar hafa orðið á liðs-
skipan ÍBK. Þeir hafa að vísu misst
| mjög efnilegan og stóran ungling
56