Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.10.1986, Page 62

Íþróttablaðið - 01.10.1986, Page 62
„AudrLQumennimir eru mun betri en áhugamennirnir“ — segir Sigfried Held, landsliðsþjálfari. Það vakti töluverða athygli þegar Þjóðverjinn Sigfried Held var valinn þjálfari íslenska landsliðsins í knattspyrnu. Hópur reynslumikilla manna sótti um starfið en Sigfried var valinn þrátt fyrir litla þjálfunarreynslu. Ljóst er að mikið mun mæða á Sigfried á næstu mánuðum. Evrópukeppni landsliða er framundan svo og forkeppni Ólympíuleikanna. íþróttablaðinu þótti því kjörið að fá Sigfried í stutt spjall og stutt varð það að vera, því tveir dagar voru í landsleikinn gegn Frökkum og lands- liðsþjálfarinn hafði önnur og mikilvægari verkefni en að rabba við blaða- menn. En tíminn fannst, klukkan 21.30 hittumst við á Hótel Loftleiðum, þá var sameiginlegu borðhaldi landsliðshópsins lokið og þjálfarinn gat séð af nokkrum mínútum. Nú er fyrsta sumarið þitt hér á landi liðið, hvernig hefur þér líkað? „Mér hefur liðið mjög vel hér á Iandi. Landsliðið spilaði vel í vor þótt það hafi vissulega gert mistök sem kostað hafa leiksigra. En það sem skiptir öllu máli er að íslendingar eiga leikmenn sem geta myndað gott og sterkt lið, landslið sem vissulega getur gert góða hluti.“ Hvað finnst þér um íslenska knatt- spyrnu? „Ég verð að viðurkenna að íslenski fótboltinn olli mér töluverðum von- brigðum fyrst eftir að ég kom hingað. Ég hafði séð íslensku atvinnumennina leika með liðum sínum erlendis og gerði mér ákveðnar hugmyndir um ís- lensku knattspyrnuna en þegar ég kynntist henni betur reyndist hún töluvert lakari en ég átti von á.“ Eru íslensku atvinnumennimir þá langtum betri en áhugamennirnir að þínu mati? „Já, það er ekki hægt að líkja áhuga- mönnunum við atvinnumennina. At- vinnumennirnir stunda knattspyrnu 11 mánuði á ári. Allt þeirra líf snýst um boltann og þeir hafa ekki um neitt ann- að að hugsa, líf þeirra er fótbolti. Knattspyrna áhugamannanna er öll önnur. Þeir spiia einungis í sex mánuði á ári og það liggur í augum uppi að þeir geta ekki náð eins góðum árangri og atvinnumennirnir. Auk þess sem áhugamennimir leika knattspyrnu samhliða fullri vinnu og eru því oft þreyttir og illa upp lagðir þegar þeir mæta á æfingar að loknum erfiðum vinnudegi. Þessir leikmenn eru því ekki til stórræðana á æfingum og ár- angur þeirra verður eðlilega mun minni en atvinnumannanna. Flestir atvinnumennimir bera af áhugamönnunum en með fleiri og betri æfingum geta íslensku áhuga- mennirnir náð mun lengra og lyft ís- lenskri knattspyrnu upp á hærra plan.“ Verður landslið íslands þá að mestu skipað atvinnumönnum í framtíðinni? „Það er ekki hægt að skipuleggja liðið langt fram í tímann. Leikmenn geta átt við meiðsli að stríða og ýmis- leg ófyrirsjáanleg atvik geta sett strik í reikninginn. En hitt er víst að ég mun leitast við að hafa sem flesta atvinnumenn í lið- 62

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.