Íþróttablaðið - 01.10.1986, Page 65
að sowa
Gunnlaugur hefur starfað sem „free
lance“ blaðamaður og Ijósmyndari í 5
ár eftir að hafa lokið 3 árum í Fjöl-
brautaskólanum Ármúla. Hann hefur
flakkað um heiminn á eigin vegum,
safnað efni og selt hér heima — mest
þó ánægjunnar vegna. Einnig hefur
Gulli skrifað fyrir bresk bílablöð svo og
hið þekkta blað GEO. í einni utan-
landsferðinni kynntist hann tékknesk-
um rallaðstoðarmanni og spurðist fyrir
um hvort hægt væri að fá leigðan rall-
bíl í Tékkóslóvakíu. Þannig hófst ævin-
týrið.
FYRSTIÍSLENSKI
ATVINNUMAÐ URINN
Gulli er kannski ekki þekktasti rall-
ökumaður íslands en engu að síður er
hann fyrsti íslenski ökumaðurinn sem
kemst á samning erlendis. Hann keppir
fyrir Chemo petrol í Tékkóslóvakíu á
Skoda. Það fyrirtæki gerir út 4 bíla og
er þremur þeirra ekið af heimamönn-
um. „Ég er sá eini sem er utanaðkom-
andi hjá fyrirtækinu. Líklega sjá þeir
hag í því að hafa mig með því ég get
útvegað þeim margt frá Vestur-Evrópu
sem ekki fæst hinum megin við járn-
tjaldið. Til að mynda gaf ég einum við-
gerðamanninum hanska þegar ég var
þar síðast. Þeir vöktu það mikla lukku
að ég var beðinn um að senda 6 pör til
viðbótar."
„í minni fyrstu keppni á íslandi ók
ég Ford Escort. Reyndar hef ég aðeins
tekið þátt í 5 röllum á íslandi — oftast
sem aðstoðarökumaður Reynslan er
því ekki mikil. Ég byrjaði að keppa á
Skoda af því að ég vorkenndi bílnum
svo mikið. Mig langaði til að sýna að
þessi bíll gæti eitthvað því hann hefur
náð góðum árangri í sínum flokki hvað
vélarstærð áhrærir. Ég hef aldrei borið
sigur úr býtum í ralli og ef til vill fer
það fyrir brjóstið á einhverjum að ég
skuli vera kominn á samning erlendis.
Upphaflega byrjaði ég í ralli meira af
hugsjón en til þess að ná árangri“.
NÝR BÍLL í SMÍÐUM
Áður en Gulli komst á samning í
Tékkóslóvakíu tók hann þar þátt í einu
ralli — með ævintýraþrá í huga. Hann
hafnaði í 39. sæti af 170 keppendum
og verður það að teljast góður árang-
ur. Um þessar mundir (17.09.) hefur
hann nýlokið þátttöku í öðru ralli í
Tékkóslóvakíu en af skiljanlegum
ástæðum höfum við ekkert frétt. Á
næsta ári mun Gunnlaugur keppa í 5
röllum á vegum fyrirtækisins og koma
þá tveir keppnisbílar til greina. „Það er
verið að smíða nokkuð kraftmikinn bíl
fyrir mig úti og líklega mun ég keppa á
honum á íslandi. Auk þess að keppa í
Tékkóslóvakíu förum við á 3 röll í
bresku meistarakeppninni — þá með
aðstoð Skoda í Englandi. í rallinu í
september verða um 100 þátttakendur
og eknir verða um 700 kílómetrar.
Áður verðum við búnir að skoða leið-
ina að minnsta kosti 5 sinnum. Þrír bíl-
ar keppa á okkar vegum og þarf um 20
manna starfslið og 6 viðgerðarbíla.
Þetta er því heilmikið fyrirtæki að taka
þátt í einu ralli og mikill viðbúnaður.
Til gamans má geta þess að liðið hefur
sýnt áhuga á að keppa á íslandi og
kemur Ljómarallið þá bara til greina
því það er eina alþjóðlega rallið. Það
kostar heilmikla vinnu fyrir liðið að fá
að fara til íslands og þarf ég að lofa rík-
isstjórninni í Prag að sjá um alla hluti
fyrir þá. Þeir sem kæmu til með að að-
stoða okkur í þessu eru Jöfur, Flug-
leiðir og Skoda í Englandi."
JÓN BESTURÁ
ÍSLANDI
„Jú, rallið er mjög dýrt sport —
sama hversu ódýrt menn vilja hafa það.
Kostnaður við hvert rall hér heima
veltur á tugum þúsunda og oft meira.
Ef þú lendir út af í ralli geturðu orðið
fyrir stórtjóni og það bundið enda á
ferilinn. Hér heima eru að minnsta
kosti 4-5 mjög góðir ökumenn sem
hafa hreinlega ekki efni á því að keppa
í ralli. Það er alveg vitað mál að íjár-
sterkasti aðilinn er efstur í íslands-
meistarakeppninni og er hann
örugglega fyrsti maðurinn til að viður-
kenna það. En hann er jafnframt sá
besti að mínu mati og hefur staðið sig
mjög vel. Þetta er Jón Ragnarsson og
aðstoðarmaður hans er 16 ára sonur
hans.
Kostnaður rallökumanns er fjár-
magnaður með auglýsingum á bílum
og er það mín helsta tekjulind. Launin
sem ég fæ í Tekkóslóvakíu eru lág og
ekki sambærileg við kaup almennt. En
ég þarf ekki að sjá um kostnaðinn við
bílinn því þeir sjá algjörlega um hann
— viðhald og annað þess háttar.“
SOFANDIHÁTTUR HJÁ
OKKUR
— Hvernig er aðstaða til þess að
halda rall á íslandi. Gætum við ekki
gert meira af því?
„Við erum með eina bestu aðstöðu í
heiminum til að halda rall — hvað mai-
arvegi varðar. Þetta er ekkert annað en
sofandiháttur því allt er gert á síðustu
stundu. Það verður til að mynda al-
þjóðlegt rall á íslandi í september en
ekkert hefur verið gert til þess að fá þá
bestu erlendis til að vera með. Það
hefði verið hægðarleikur að fá 5-10
góða keppendur erlendis frá ef fyrirvari
væri hafður á. Þá fengjum við pressuna
með okkur og enn fleiri kæmu næst.
Fyrir nokkrum árum kom hingað
Frakki sem skipulagði íslandsrallið og
gerði það að öllu leyti vel en mjög illa
var staðið að öllu að okkar hálfu. Hann
65