Íþróttablaðið - 01.10.1986, Page 69
KA-heimilið
Stefán er framkvæmdastjóri og einn
eigenda veitingahúsanna Bautans og
Smiðjunnar en ekki síður kunnur sem
maðurinn á bak við KA, mikill félags-
máiamaður og sívinnandi fyrir sitt fé-
Iag, mest fyrir knattspyrnudeiidina en
einnig fyrir handknattleiksmenn fé-
lagsins. „Þú finnur hann sjálfsagt upp
á KA-velli,” segir Hugrún kona Stefáns
er ég slæ á þráðinn. Mikið rétt þar er
kappinn eins og stóran hlut síðast lið-
ins árs meðan framkvæmdir við félags-
heimilið stóðu sem hæst. Stefán er
stoltur af glæsilegu klúbbhúsi þeirra
KA-manna og fús til að sýna okkur
dýrðina og veita upplýsingar um
framkvæmdirnar.
Ekki pláss fyrir áhöldin í
áhaldaheymslunni
„Ef ég stikla á stóru í sögu KA-
svæðisins hérna við Lundarskólann, þá
verður fyrst fyrir afhending þess til
okkar. Það var fyrir 12 árum og að
venju var byrjað á að koma upp malar-
velli. Síðan var grasvallagerð á dag-
skrá. Aðalgrasvellinum var lokið 1981,
og þremur árum síðar var annar gras-
völlur tekinn í notkun. Þegar þessi að-
staða var komin til æfinga og leikja fyr-
ir knattspyrnumenn félagsins var ljóst
að við þyrftum áhaldageymslu fyrir öll
þau áhöld og tæki sem notuð eru við
viðhald vallanna. Reyndar vantaði
einnig búningsaðstöðu o.fl., en við
höfðum afnot af tengibyggingu Lund-
arskóla fyrir búningsklefa, svo ljóst var
að áhaldageymsla yrði númer eitt. Það
var ákveðið að hefja framkvæmdir og
málið í upphafi var að reisa 60—80 m2
áhaldageymslu. Hugmyndin hlóð hins
vegar utan á sig. Úr því við ætluðum
að byggja hús á annað borð, því ekki
að hafa búningsaðstöðu þar líka. Síðan
bættist veið eitt og annað og að lokum
sátum við uppi með teikningu að 540
m2 húsi með alhliða nýtingu í huga.
Þetta var orðið að félagsheimili með
skrifstofu, kaffiteríu, vallarstjóraað-
stöðu, búningsklefum, snyrtingu fyrir
gesti o.fl. o.fl.
— Reyndar er orðið lítið pláss eftir
fyrir áhöldin svo við þurfum líklega að
byggja nýja áhaldageymslu!”
Glæsileg aðstaða
Með teikninguna klára var hafist
Hið glæsilega félagsheimili KA á Akureyri.
Góð fundar- og félagsaðstaða er í KA-heimilinu.
handa í maí 1985. Markmiðið var að
taka einhvern hluta hússins í notkun
1986 og Ijúka því fyrir 60 ára afmæli
KA1988. Framkvæmdir gengu frá byrj-
un ótrúlega vel og voru langt á undan
áætlun. Húsið var fullklárað rétt rúmu
ári eftir að fyrsta skóflustungan var
tekin, og opnunarhátíðin haldin með
pompi og pragt 28. júní sl.
Á byggingarstiginu urðu ýmsar
breytingar, svo þegar upp var staðið
hafði húsið fátt samiginlegt með upp-
haflegu teikningunni, innanhúss a.m.k.
Auk þess sem upp hefur verið talið er í
KA-heimilinu heilsurækt með gufu-
baði, stórum nuddpotti og ljósalömp-
um. Þar er setustofa með sjónvarpi og
myndbandstæki, og síðast en ekki síst
80 m2 salur, hin ákjósanlegasta funda-
aðstaða fyrir félagið. Salurinn verður
einnig leigður út fyrir fundi og aðra
mannfagnaði á Akureyri í samræmi við
á stefnu KA-manna að láta rekstur fé-
lagsheimilisins bera sig. Það á ekki að
verða baggi á félaginu. Fyrir utan
rekstur heilsuræktar og útleigu salar-
69