Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.10.1986, Side 72

Íþróttablaðið - 01.10.1986, Side 72
Á heimavelli FERNANDES FRANSKI Eins og flestum er kunnugt var franski landsliðsmaðurinn Luis Fern- andes seldur frá franska l.deildarlið- inu Paris Saint Qermain til erkióvin- anna í Racing Club Paris sem unnu sér sæti í l.deild að nýju á síðasta keppnistímabili. Fernandes óskaði sjálfur eftir sölu og fékk sínu fram- gengt þrátt fyrir ósk forráðamanna Paris SQ. að hann yrði um kyrrt. Gengið var frá málunum þegar nokkrar umferðir voru eftir af deildar- keppninni en Fernandes var ekki laus allra mála fyrr en að henni lok- inni. Til að lýsa óánægju sinni með ákvörðun kappans setti þjálfarinn hann út úr liðinu og varð hann því að verma varamannabekkinn í síðustu leikjunum. Fernandes var að vonum ekki sáttur við hlutskipti sitt en hafði sig þó hægan þar til hann kom inn á sem varamaður í næst síðasta leik París SG. í deildinni. Svo illa vildi til að búið var að nota báða varamenn- ina þegar markvörður liðsins meidd- ist og þar sem Fernandes þykir sleip- ur á milli stanganna setti hann á sig markmannshanskana. Hann hugsaði sér þá gott til glóðarinnar og ákvað að koma fram hefndum á þjálfaran- um á afsakanlegan hátt. Ekki er mér kunnugt um hver staðan var í leikn- um þegar laust skot kom í áttina að marki Parísarliðsins sem allir bjugg- ust við að Fernandes myndi verja. Ollum nema honum til mikillar undr- unar hafnaði boltinn í netinu — hann lét sem hann gæti ekki varið. Skömmu síðar var öðru sinni skotið að markinu og sama sagan gerðist — Fernandes lét boltann sigla í markið og virtist hafa reynt sitt besta. Félagar hans og forráðamenn voru að vonum ekki sáttir við frammi- stöðu landsliðsmannsins í markinu en hann sagði bara :„Pardon, ég sá’ann ekki“, síðan gekk hann glott- andi í burtu. JUSTAMOMENT Hið frækna knattspyrnulið Augna- blik í Kópavogi dróst gegn Víkingum í Mjólkurbikarkeppni KSÍ í sumar sem er kannski ekki í frásögur fær- andi. Eins og þeirra er von og vísa fylgdust þeir grannt með Hæða- garðsliðinu í margar vikur fyrir leik til þess að komast að taktík Magnúsar Jónatanssonar. Símar leikmanna voru hleraðir — fylgst með eiginkon- um þeirra í vinnunni, allar æfingar teknar á videó og blóðflokkur leik- manna rannsakaður. Hvort þetta reið baggamun í leiknum skal ósagt látið en árangur lét ekki á sér standa því liðið tapaði með aðeins 12 marka mun — nánar tiltekið 1-13. Þegar vel var liðið á leikinn og mörkin hrönn- uðust upp fóru óp varamanna Augnabliks að dynja í eyrum félaga þeirra á vellinum. Eitthvað fór þetta í taugamar á einum þeirra sem tók rakleitt á rás með boltann frá miðju vallarins, lék í áttina að varamanna- skýlinu og þrumaði síðan boltanum í skýlið — í gamni eða alvöru. Dómar- inn brosti bara út í annað og Víkingar fengu innkast. Þegar mörkin nálguð- ust tuginn sem Víkingarnir skoruðu tókst einum Augnabliksmanni að pota einu við mikinn fögnuð sam- herja hans. „Strákar ég sagði ykkur að þeir myndu bráðum brotna nið- ur“, hrópaði skorarinn um leið og hann hljóp fagnandi til baka. LÍNGVÖRÐGRINN FÉKK RAGÐA SPJALDIÐ Vettvangurinn er Grundarfjörður og leikur heimamanna gegn Augna- bliki var að hefjast í 4. deild Islands- mótsins í knattspyrnu. Dómarinn var frá næsta byggðarlagi en engir línu- verðir létu sjá sig á vellinum. Þegar skammt var til leiks voru tveir óbreyttir heimamenn settir í hlutverk línuvarða og leikurinn flautaður á. Annar línuvörðurinn var eldheitur stuðningsmaður heimaliðsins eins og gefur að skilja en hann gleymdi sér algjörlega í hita leiksins. Flaggið var í algjöru aukahlutverki í lúku kappans en málbeinið var óspart not- að í þágu Grundarfjarðarliðsins. Hann hvatti sína menn óspart og öskraði ókvæðisorð að gestunum. Dómaranum stóð vitanlega ekki á sama — stöðvaði leikinn sem snöggvast, gekk að línuverðinum óðamála og ávítaði hann. Sá lét sér ekki segjast og tók að hnakkrífast við dómaragreyið. Sá síðarnefndi hélt ró sinni að hætti dómara — sýndi línuverðinum rauða spjaldið og lét fjarlægja hann af svæðinu. Eflaust er þetta einsdæmi í sögunni en síðast fréttist af línuverðinum óðamála á dómaranámskeiði fyrir norðan!!! BLIKKAÐGR FJÓRGM SINNGM Það gerðist í léttum gleðskap 1. deildarliðs í Reykjavík í sumar að menn fengu sér lögg í glas að kvöldi dags eftir sannfærandi sigurleik. Þeg- ar nálgaðist miðnætti fóru menn að hugsa sér til hreyfings og gerði einn vinurinn sig líklegan til fara á bflnum sínum á eitt af öldurhúsum borgar- innar — undir áhrifum áfengis. Félag- ar hans reyndu að telja honum hug- hvarf og sögðu að bfll og áfengi færi ekki vel saman — slíkar ferðir end- uðu oft á sjúkrahúsi. Vinurinn lét ekki segjast fyrr en einn skondinn húmor- isti sagð: „Okey, Nonni minn gerðu bara það sem þú vilt. En mundu að þegar við heimsækjum þig á spítal- ann, þá blikkaðu augunum fjórum 72

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.