Íþróttablaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 3
Ritstjóraspjal I
Mjög jákvæð þróun er að eiga sér stað hjá þeim íþróttafélögum sem hafa
skynsemina að leiðarljósi. Eins og flestir vita má líkja því við kraftaverk að reka
íþróttafélag án þess að stofna til óheyrilegra skulda en launagreiðslur til leikmanna
hafa verið að sliga mörg félög undanfarin ár. Nú er svo komið að forráðmenn
MARGRA félaga segja; hingað og ekki lengra — og er það vel. Þeir stóðu frammi
fyrir því að setja félögin á hausinn annars vegar eða draga verulega úr greiðslum
hins vegar og fá menn til þess að vera trúa SÍNU félagi. Það er ávallt erfitt að draga
úr laungreiðslum þegar menn eru einu sinni komnir með peningabragð í munninn
en núna verður skynsemin að ráða.
Alltaf verða til „kóngar" í íþróttunum, bæði hér á landi sem og erlendis, og aldrei
verður hægt að gera jafn vel við alla. Engu að síður eru jafnar bónusgreiðslur til
leikmanna það sem koma skal — hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Á þessu
eru þó undantekningar og virðast sum félög ætla að halda áfram „smölun" á
leikmönnum og bjóða gull og græna skóga — án þess að huga að framtíðinni,
uppbyggingunni.
Það er skiljanlegt að ungir knattspyrnumenn, til að mynda, láti freistast þegar
önnur félög en þeirra EIGIÐ falast eftir þeim og veifa framan í þá tugum fimm
þúsund króna seðla. EN þessir sömu knattspyrnumenn ættu að hugsa lengra en eitt
ár fram í tímann því þeir gætu hugsanlega endað sem lítt virtar flökkukindur þegar
ferillinn er á enda með brostið knattspyrnumannorð en aðeins þykkari buddu.
Ungur knattspyrnumaður bauð sig til nokkurra Reykjavíkurfélaga á dögunum en
fékk ávallt þau svör að ekki væri hægt að ganga að kröfum hans því greiðslur til
leikmanna væru að lækka. Lið utan Reykjavíkur var hins vegar tilbúið til þess að
greiða honum rúmar tvær milljónir króna en eftir einhverja umhugsun neitaði hann
því og ákvað að vera áfram hjá sínu félagi. Vitanlega fær hann einhverja greiðslu
hjá SINU félagi en það er ekki það sem máli skiptir. Þegar árin færast yfir þennan
dreng og haldi hann tryggð við sitt félag kemur hann til með að meta lífið öðruvísi
en í fimm þúsund krónaseðlum.
Hefði hann látið glepjast og leikið eitt tímabili með peningaliðinu er það vissu-
lega hans mál. EN ef það lið hefði ekki verið tilbúið til jjess að endurnýja samning-
inn fyrir þar næsta tímabili — hvað hefði leikmaðurinn gert þá? Haldið áfram að
selja sig eða drattast á heimaslóðir með skottið á milli lappanna.
Máltækið; „Margur verður af aurum api", segir allt sem segja þarf og menn ættu að
hugsa lengra en eitt ár fram í tímann þegar þeir hlaupa út um allar trissur eins og
beljur sem sleppt er út á vorin. /p
Þorgrímur
Þráinsson ritstjóri
Hafsteinn Viðar
auglýsingastjóri
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Þorgrímur Þráinsson
Beinn sími ritstjóra: 685057
RitstjórnarfuIItrúi ISI:
Guðmundur Gíslason
Ljósmyndarar: Grímur Bjarnason,
Kristján Einarsson,
Gunnar Gunnarsson
Skrifstofa ritstjórnar:
Bildshöfða 18. Sími 685380
Aðalritstjóri:
Steinar J. Lúðvíksson
Framkvæmdastjóri:
Halldóra Viktorsdóttir
Stjórnarformaður:
Magnús Hreggviðsson
Áskriftargjald kr. 1.158,00 (1.-3.tbl.)
Hvert eintak í áskrift kr. 386
Hvert eintak í lausasölu kr.449
Þeir sem greiða með greiðslukorti
greiða 10% lægra áskriftarverð.
Áskriftarsími: 812300
Útgefandi: Fróði hf.
Skrifstofa og afgreiðsla:
Ármúla 18, sími 812300
Öll réttindi áskilin varðandi
efni og myndir.
G. Ben. prentstofa hf.
HÉRAÐSSAMBÖND INNAN ÍSÍ:
HÉRAÐSSAMBANDIÐ HRAFNAFLÓKI
HÉRAÐSSAMBAND SNÆFELLSNES- OG
HNAPPADALSSÝSLU
HÉRAÐSSAMBAND STRANDAMANNA
HÉRAÐSSAMBAND SUÐUR-ÞINGEYINGA
HÉRAÐSSAMBAND VESTUR-ÍSFIRÐINGA
HÉRAÐSSAMBAND BOLUNGARVfKUR
HÉRAÐSSAMBANDIÐ SKARPHÉÐINN
ÍÞRÓTTABANDALAG AKRANESS
ÍÞRÓrrABANDALAG AKUREYRAR
ÍÞRÓTTABANDALAG HAFNARFJARÐAR
ÍÞRÓTTABANDALAG ÍSAFJARÐAR
ÍÞRÓTTABANDALAG KEFLAVÍKUR
ÍÞRÓTTABANDALAG ÓLAFSFJARÐAR
ÍÞRÓTTABANDALAG REYKJAVÍKUR
ÍÞRÓTTABANDALAG SIGLUFJARÐAR
fÞRÓTTABANDALAG SUÐURNESJA
ÍÞRÓTTABANDALAG VESTMANNAEYJA
UNGMENNA- OG ÍÞRÓTTASAMBAND
AUSTURLANDS
UNGMENNASAMBANÐ A-HÚNVETNINGA
UNGMENNASAMBAND BORGARFJARÐAR
UNGMENNASAMBAND DALAMANNA
UNGMENNASAMBAND EYJAFJARÐAR
UNGMENNASAMBAND KJALARNESÞINGS
UNGMENNASAMBAND SKAGAFJARÐAR
UNGMENNASAMBAND V-HÚNVETNINGA
UNGMENNASAMBAND V-SKAFTFELLINGA
UNGMENNASAMBANDIÐ ÚLFLJÓTUR
UNGMENNASAMBAND N-ÞINGEYINGA
SÉRSAMBÖND INNAN ÍSÍ:
BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS
BLAKSAMBAND ÍSLANDS
BORÐTENNISSAMBAND ÍSLANDS
FIMLEIKASAMBAND ÍSLANDS
FRJ ÁLSÍÞRÓTTASAMBAND ÍSLANDS
GLÍMUSAMBAND ÍSLANDS
GOLFSAMBAND ÍSLANDS
HANDKNATTLEIKSSAMBAND ÍSLANDS
HESTAÍÞRÓITASAMBAND ÍSLANDS
ÍÞRÓTTASAMBAND ÍSLANDS
JÚÐÓSAMBAND ÍSLANDS
KARATESAMBAND ÍSLANDS
KEILUSAMBAND ÍSLANDS
KNATTSPYRNUSAMBAND ÍSLANDS
KÖRFUKNATTLEIKSSAMBAND ÍSLANDS
LYFTINGASAMBAND ÍSLANDS
SIGLINGASAMBAND ÍSLANDS
SKÍÐASAMBAND fSLANDS
SKOTSAMBAND ÍSLANDS
SUNDSAMBAND ÍSLANDS
TENNISSAMBAND ÍSLANDS
3