Íþróttablaðið - 01.12.1992, Qupperneq 31
ritara um að fara niður á Reykjavíkur-
flugvöll, hafa samband við einhvern
flugmann hjá einhverri flugþjónustu
og kíkja á hugsanlegt flugvallarstæði
í hrauninu í Hafnarfirði — úr flugvél.
Mér fannst þetta mjög eðlilegt því oft
hefur verið talað um að byggja flug-
völl í Hafnarfirði. Til allrar hamingju
fann ég aldrei manninn á flugvellin-
um, hann var þá að gera vélina klára
úti á velli — annars væri búið að
jarða mig vegna hjartaáfalls. Gunnar
Beinteinsson var höfuðpaurinn á bak
við þetta því hann var búinn að læra
flug hjá þessum manni. Sá átti að
sýna mér flugvallarstæðið úr lofti og
síðan ætlaði hann að drepa á hreyfl-
inum og láta vélina hrapa. Eg þakka
mínu sæla fyrir að þetta klikkaði því
ég hefði drepist á leiðinni niður. Um
kvöldiðeftir æfingu var búið að hirða
fötin mín og setja einhver eldgömul
föt í staðinn. Ég þurfti að klæðast FH
treyju síðan 1970, fór í slitnar hjóla-
buxur og í ullaríþróttasokka sem
Bergþór Jónsson, formaður FH, átti. I
þessu þurfti égað vera um kvöldiðog
auðvitað þurfti ég að sturta einhverj-
um bláum vínanda í mig. Það var
mikið sprellað á Gauki á stöng þetta
kvöld."
— Hvaða hluti myndirðu taka
með þér á eyðieyju?
„Ætli ég myndi ekki kippa golfsett-
inu með mér. Ég gæti gleymt mér í
nokkra mánuði með það við hlið mér
og við góðar aðstæður. Golfdellan
greip mig fyrir nokkrum árum þegar
ég kíkti út á golfvöll eitt sumarið
þegar ég var orðinn viðþolsslaus
heima hjá mér."
— Hvað ertu með í forgjöf?
„Tólf. En næsta sumar ætla ég nið-
ur í eins stafs tölu."
— Ég sá í ættartré þínu að langa-
langafi þinn og langaafi Halldórs
Laxness voru bræður. Blundar
skáldagáfa einhvers staðar undir
niðri hjá þér?
„Ég er gjörsamlega laus við allt
sem heitir skáldskapur. Mér gekk illa
að berja saman aðrar ritgerðir í skóla
en þær sem voru byggðar á heimild-
um. Sköpunargleðin er í núlli hjá
mér."
— Áttu ekki einhverja metra af
bókum eftir frænda þinn?
„Nei, ætli þær séu ekki ein eða
tvær. Hingað til hef ég lesið meira af
afþreyingarbókmenntum en fagur-
bókmenntum."
— Áttu þér einhverja drauma sem
hafa ekki ræst?
„Dreymir ekki flesta um fimm rétta
í Lottóinu til þess að geta haft það
huggulegt um tíma. Einu sinni var
það draumur um að komast í at-
vinnumennsku fótbolta en sá draum-
ur rætist ekki úr þessu — eða hvað!
En það hefði verið gaman að eiga
þess kost að verða atvinnumaður í
fótbolta."
— Hvað langar þig í í jólagjöf?
„Nýtt golfsett, Tommy Arnor. Ann-
ars getégekki fariðfram á slíkareðal-
kylfur fyrr en á þrítugsafmælinu sem
verður á næsta ári. Þetta er sjálfspil-
andi golfsett og væri gaman að eiga
slíkt sett. Nei, það er skemmtilegast
að fá óvæntar jólagjafir."
* .að HNERRI getur náð allt að
165 km hraða á klukkustund!
* .að þeir, sem hafa áhuga á því
að spila golf á frægasta golfvelli
heims, ST. ANDREWS í Skot-
landi, þurfa að bíða í rúmt ár því
„tee-off", eins og það er kallað,
er ekki laust fyrir en í byrjun árs-
ins 1994. Það er ávallt mikil
ásókn í „Mekka" golfsins sem
völlurinn er svo sannarlega.
* ..að HEIMSMETIÐ í því að
svolgra í sig einum lítra af bjór á
sem skemmstum tíma er 1,8 sek-
úndur! Hvernig í ósköpunum er
það hægt?
* .að GEIR ÞORSTEINSSON,
framkvæmdastjóri knattspyrnu-
deildar KR, er að hætta sem slíkur
því hann tekur við skrifstofu-
stjórastarfi hjá KSÍ. Knattspyrnu-
hreyfingunni er mikill fengur í
Geir.
*....að notir þú TANNÞRÁÐ
reglulega þarftu að fara mun
sjaldnar til tannlæknis. Þetta er
staðreynd sem hefur farið ansi
hljótt. Notir þú t.d. tannþráð 3-4
sinnum í viku má reikna með að
kostnaður vegna tannskemmda
hjá þér lækki um meira en helm-
ing. Notir þú sykurlaust tyggjó
reglulega — t.d. EXTRA tyggjó —
minnka líkurnar á tannskemmd-
um enn frekar. Farðu vel með
tennurnar — þú átt engra ann-
arra kosta völ! Nema gervi-
tanna!!
* .að eitt besta ráðið til þess að
hætta að HRJÓTA er að sofa á
hliðinni. Til þess að sofa á hlið-
inni er æskilegt að sauma poka á
bakið á náttfötunum og koma litl-
um bolta fyrir í honum sem veld-
ur þér óþægindum ætlir þú að
snúa þér yfir á bakið. Önnur ráð
til þess að hætta hrotum eru að
drekka ekki áfenga drykki fyrir
svefninn, hætta að reykja og sofa
ekki með gervitennurnar uppi í
sér!
31