Íþróttablaðið - 01.12.1992, Page 81
Spaugsögur úr NBA
Darryl Dawkins, fyrrum leikmaður Phila-
delphia og New Jersey, var þekktur fyrir flest
annað en aga og áhugasemi, þrátt fyrir
mikla hæfileika, á ferli sínum í deildinni. Oft
reyndu þjálfarar hans að tala drenginn til og
koma örlitlu viti í kollinn á honum en allt
kom fyrir ekki. Til dæmis var eitt minnis-
stætt atvik sem átti sér stað stuttu fyrir tíma-
fcilið 1978 en þá kom þjálfari hans, Billy
^múngham, að honum á æfingu þar sem
hann var að slæpast og ákvað að segja nokk-
jÚr vel valin orð við hann. Hann sagði við
Dawkins: „Ef þú ferð ekki að koma þér í
sæmilegt leikform þá leggurðu feril þinn í
hættu.“ Dawkins hlustaði álútur á þjálfarann
og sagðist ætla að bæta ráð sitt. Cunning-
ham þóttist hafa náð að hrista ærlega upp í
kauða og gekk ánægður í burtu. En Cunn-
ingham þekkti Dawkins greinilega ekki nógu
vel því um leið og hann byrjaði að labba í
burtu brá prakkarinn fyrir hann fæti og
þjálfarinn dátt kylliflatur á gólfið, öllum við-
stöddum til mikillar skemmtunar.
Dawkins var einna helst frægur fyrir þá
áráttu sína að brjóta körfuspjöld þegar hann
^roð og gerði hann það tvisvar á tímabilinu
'l979-’80. Það varð til þess að settir voru eins
konar demparar á körfuhringina.
Allir hafa einhvern tímann upplifað atvik
sem þeir vilja helst gleyma sem fyrst. Svo
var með Magic Johnson í fyrsta leik sínum í
NBA deildinni árið 1979. Lið hans, Lakers,
heimsótti þá San Diego Clippers og mikið
álag var á hinum tvítuga nýliða liðsins. Því
hafði verið slegið upp í blöðum og allir
bjuggust við að þarna væri næsta stór-
stjarna deildarinnar á ferðinni. En það byrj-
aði ekki gæfulega fyrir Magic því þegar liðið
hljóp inn á völlinn fyrir upphitunina átti
hann að vera fyrstur. Magic átti að skoppa
bolta að körfunni og troða honum en ekki
vildi betur til en svo að þegar hann var
byrjaður á tilhlaupinu þá missti hann upp-
hitunarbuxurnar niður um sig og datt beint
á hausinn. Hlátrasköll voru skiljanlega mikil
frá 15 þúsund áhorfendum og leikmönnum
og Magic gat ekki annað en brosað út í ann-
að yfir þessari óheppni sinni.
GÆTIÐ AUGNANNA!
Það þarf vart að tíunda það hversu mikil-
vægt er að gæta augnanna meðan á íþrótta-
iðkun stendur. Þótt augnameiðsli séu ekki
tíð hér á landi eru þau mjög algeng í Banda-
ríkjunum. Þar er tíðni augnameiðsla í íþrótt-
um skráð 35.000 á ári — einkum meðal
barna og yngri iðkenda. Talið er að and-
litsgrímur og gleraugu komi í veg fyrir
70.000 meiðsli meðal hokkíiðkenda í Banda-
ríkjunum. Iðkendum, sem nota hlífðargler-
augu í íþróttum, s.s. körfubolta, racquet-
ball, baseball og hokkí, fer því fjölgandi.
(M&F)
BRODDIMEÐ 105
LANDSLEIKI
Broddi Kristjánsson, sem hefur tíu sinn-
um orðið íslandsmeistari í einliðaleik í
meistaraflokki, er búinn að rjúfa 100 lands-
leikja múrinn. Broddi hefur leikið 105 lands-
leiki fyrir íslands hönd og er ólíklegt að það
met verði slegið því hámarkslandsleikja-
fjöldi á hverju ári er 10. Broddi á reyndar 105
landsleiki að baki en þessi stórskemmtilegi
spilari er enn í fremstu röð. Eftirtaldir aðilar
hafa leikið flesta blaklandsleiki fyrir ísland:
Broddi Kristjánsson 105
Þórdís Edwald 75
Guðmundur Adolfsson 72
Kristín Magnúsdóttir 58
Þorsteinn Páll Hængsson 54
Kristín B. Kristjánsd. 53
Sigfús Ægir Árnason 50
Árni Þór Hallgrímsson 48
Elísabet Þórðardóttir 46
UTIUF"
Glæsibæ - sími 91-812922
Golffatnaður
81