Íþróttablaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 83
Franski sóknarmaðurinn hjá AC
Milan Jean Pierre Papin sló öll met
strax í fyrstu vikunni í ítölsku 1. deild-
inni í knattspyrnu. Aldrei fyrr hefur
það tekið útlending, sem nýbyrjaður
er að leika á Italíu, svo skamman tíma
sem Papin nú í haust að byrja að
kvarta og kveina undan Ítalíu, nýja
félaginu og þjálfaranum. Venjulega
láta nýir leikmenn sér vel líka þótt hin
ýmsu vandamál séu að flækjast fyrir
þeim í byrjun en Papin er ekki þann-
ig. Vart höfðu liðið tveir sólarhringar
frá því að keppnin á Ítalíu hófst þegar
hann var byrjaður að kvarta í frönsku
pressuna. Papin, sem skipt var útaf í
leikhléi í tveimur fyrstu leikjum AC
Milan í haust, sigurleik gegn Parma
um góðgerðarskjöldinn og 1-0
sigurleik gegn Foggia í 1. um-
ferð deildarkeppninnar, lét
skýrt í Ijós við samlanda sína
í frönsku pressunni að
ánægður væri hann ekki.
„Ég kom til AC Milan til að
spila. Ég valdi AC Milan
svo sannarlega ekki til að
fá að spila í 45 mínútur
endrum og sinnum," sagði
franski landsliðsmaðurinn.
I sannleika sagt eru „út-
lendingamálin" hjá AC Milan
þrungin spennu. Ef til vill finnst
Papin að sér vegið en hvað mega
þá Ruud Gullit, Dejan Savicevic og
Zvonimir Boban segja? Þeir fengu
ekki að vera með í fyrstu leikjunum.
Óhjákvæmilega varð Gullit fyrstur
til að kvarta og benti áað eftirallt sem
hann væri búinn að gerafyrir AC Mil-
an ætti hann betra skilið. Hann sak-
aði forseta félagsins, Silvio Ber-
lusconi, um að vilja koma „amerísku
hugmyndafræðinni" inn í evrópska
knattspyrnu, þ.e. að safna saman
mörgum hæfileikaríkum íþrótta-
mönnum og neyða þá til samkeppni
um stöður í liðinu.
Ruud Gullit fór reyndar fljótlega
inn í liðið á ný en ekki komu þó orð
félaga hans, Dejan Savicevic, honum
til hjálpar. Savicevic hélt því fram
viku áður en keppnistímabilið hófst
að hann hefði gengið til liðs við AC
Milan vegna þess að hann hafi verið
fullvissaður um að Gullit yrði seldur
til annars félags.
Hollendingurinn Marco Van Bast-
en, sem ásamt landa sínum Frank
Rijkaard virðist vera „ósnertanlegur",
fylgist áhyggjufullur með. „Pað er
mikil spenna í hópnum, sérstaklega
hjá Papin, Savicevic og Gullit, sem
öllum finnst af einni eða annarri
ástæðu að þeir séu stöðugt undir
smásjánni. Aðalhættan í þessu öllu
saman er sú að fyrr eða síðar muni
þeir fara að spila meira fyrir sjálfa sig
en liðið til þess að sýna hvað í þeim
býr og láta meira á sér bera."
Miðað við fyrstu umferðirnar í ít-
alska boltanum er Milan liðið sjálft
kannski það eina sem getur stöðvað
ACMilan. Fáttgetursýntbeturfram á
alhliða styrk liðsins en vináttuleikur
Hollendinga og ítala sem fram fór í
Eindhoven í ágúst og lauk með
sigri ítala 3-2. Þegar
skemmtilegum leik lauk
höt'ðu hvorki fleiri né
færri en 10 AC Milan
leikmenn tekið þátt í
leiknum. Einn af
bestu mönnum
leiksins var mað-
ur sem ekki hefur
haft fast sæti í
byrjunarliði AC Mil-
an, Stefano Eranio. Ekki
varð það til að fækka vandamálum
Fabio Capello framkvæmdastjóra.
Einhverjir hafa bentáað miðað við
meiðslaferil þeirra erlendu leik-
manna, sem eru á samningi hjá AC
Milan, séu ekki líkur á að nema 3-4
þeirra verði heilir heilsu hverju sinni.
Þó svo eitthvað sé kannski til í því er
það undarlegt að knattspyrnusnill-
ingar sem þessir skuli láta sig hafa
það að vera í sex manna hópi þar sem
aðeins þrír fá að spila hverju sinni.
Þrátt fyrir þá speki að kannski sé
AC Milan-liðið sjálft það eina sem
getur stöðvað AC Milan verður það
varla merkt á leik liðsins enn sem
komið er að svo muni verða, hvað
sem gerist þegar líða tekur á veturinn
og taugar þeirra, sem mest verða út-
undan, fará að þenjast.
Lauslega þýtt og lítillega breytt úr
World Soccer.
AC MILAN
Papin byrjar með fúkyrðum — spenna vegna
fjölda útlendinga hjá félaginu