Íþróttablaðið - 01.12.1992, Síða 86
HEYRST HEFUR
* .að CHRIS WADDLE, sem lék
með Marseille um þriggja ára skeið,
finnist BASILE BOLE skemmtilegasti
Frakki sem hann hefur kynnst. Basi-
le, sem er einn sterkasti og grófasti
varnarmaður heims, er víst einstak-
ur húmoristi og léttari í lund en aðrir
Frakkar, segir Waddle.
* .að DIEGO MARADONA var 73
kg þegar hann var dæmdur í keppn-
isbann af FIFA en þyngdist í 87 kg
þegar hann hafði það sem best í
heimalandi sínu. Með hjálp lækna og
næringarfræðinga léttist hann heil-
mikið áður en hann hélt til Sevilla.
* .að SALIH PORCA, sem hefur
ákveðið að leika með nýliðum Fylkis
í 1. deildinni í fótbolta, hefði fyrst
boðið sig til Fram. Frammarar voru
vissulega spenntir en ákváðu að
spyrja Asgeir Sigurvinsson hvort
honum litist á hann. Þegar Asgeir
frétti að hann væri frá fyrrum lýð-
veldi Júgóslavíu mun hann hafa sagt
NEI TAKK! Kynni Ásgeirs af knatt-
spyrnumönnum frá því landi eru víst
ekki góð.
*..að ARNAR GRÉTARSSON,
landsliðsmaður í knattspyrnu úr
Breiðabliki, hefði boðið sig til Fram
og KR, en hvorugt liðið var víst til-
Út er komin bókin SAGA LANDS-
MÓTA UMFÍ 1909-1990 eftir Viðar
Hreinsson, jón Torfason og Höskuld
Þráinsson. Útgetendur eru Jóhann
Sigurðsson og Sigurður Viðar Sig-
mundsson. Bókin er að vissu leyti
tímamótaverk fyrir sögu landsmóta
UMFÍ því nöfn allra, sem hafa kepptá
landsmótunum, eru í bókinni auk
rúmlega 700 Ijósmynda. Fjallað er
ítarlega um hvert landsmót, birt úrslit
úr öllum keppnisgreinum og inn í frá-
sögninafléttastskemmtileg viðtöl við
ýmsa keppendur. Þúsundir íþrótta-
mannaeru nafngreindar, allir myndír
eru með myndatextum og nöfnum
viðkomandi og sýnir það best þá
búið að greiða honum þá upphæð
sem hann fór fram á. Liðin sögðust
geta greitt honum 450.000,- en ekki
krónu meira. Það hefur sömuleiðis
heyrst að ÍBV hafi verið tilbúið til
þess að fjórfalda þessa upphæð!
natni sem hefur verið viðhöfð við
gerð bókarinnar. SAGA LANDS-
MÓTA UMFÍer 544 bls. — stórglæsi-
legt rit sem allir, sem hafa áhuga á
sögu íþrótta á íslandi, verða að eign-
ast.
Bókin hefur hlotið lof gagnrýn-
enda og segir m.a. í ritdómi í Morg-
unblaðinu: „í bókinni eru dregnar
upp margar skemmtilegar og
ógleymanlegar lýsingar at' mönnum,
viðureignum og afrekum. Þessar lýs-
ingar eru oft svo lifandi að lesandinn
getur tæpast slitið sig frá þeim."
SAGA LANDSMÓTA UMFÍ1909-
1990 er ekki bara jólabók heldur bók
sem mun standast tímans tönn.
SAGA LANDSMÓTA
UMFÍ1909-1990
FULLHUGAR A
FIMBULSLÓÐUM
- þættir úr Grænlandsfluginu
eftir Svein Sæmundsson
Bókin hefur að geyma frásagnir af merkum þætfi í ís-
lenskri flugsögu. Um langt árabil hafa íslendingar
stundað flug til Grænlands og áttu þar með ríkan þátt í
að rjúfa einangrun þessara granna okkar í vestri. Oft
voru aðstæður í Grænlandsfluginu ótrúlega erfiðar,
ekki síst í sjúkraflugi þegar teflt var á tæpasta vað
enda oft líf að veði. Margar frásagnir í bókinni taka
öllum spennusögum fram. Þær eru ótrúlega magnað-
ar en samt sannar. Þetta eru frásagnir af fullhugum
sem létu sér það ekki fyrir brjósti brenna að fljúga á
fimbulslóðir. Oft hékk líf þeirra á bláþræði en auðna
réði að alltaf komu þeir heilir heim.
FRÓDI
BÓKA& BLAÐAÚTGÁFA