Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.10.1993, Qupperneq 11

Íþróttablaðið - 01.10.1993, Qupperneq 11
Skagaliðinu í sumarfríinu virtist verk- urinn vera fyrir bí og síðan hef ég verið að reyna að ná upp fyrri styrk." — Hvert er álagið á leikmönnum Feyenoord? „Við æfum bara einu sinni á dag en þar sem mjög mikið er húfi fyrir leikmenn, vegna bónusgreiðslna, er gífurleg keyrsla á æfingum. Menn gefa ekki þumlung eftir. Ég er mjög sáttur við það að æfa bara einu sinni á dag enda er maður búinn að kom- ast að því að það að kunna að hvíla er eitt lykilatriða í þjálfun." — Hverjir eru möguleikar þínir á að komast í liðið þegar þú ert búinn að ná fullum bata og fyrri styrk? „Ég tel þá góða því mér finnst vanta sókndjarfan miðjumann í liðið, með fullri virðingu fyrir hinum. Ég myndi helst kjósa að fá að leika fremst á miðjunni og ég verð að trúa því að égeigi möguleika á að komast íliðið." — Verðið þið Arnar ekki í beinni samkeppni um að komast í liðið? „Jú, vissulega verðum við það en það hefur ekkert með vináttu okkar að gera. Feyenoord keypti okkur sem sóknarpar og það kæmi mér ekkert á óvart þótt okkur yrði stillt upp hlið við hlið fyrr en síðar." — Finnst þér þú hafa staðið í skugga Arnars hafandi fylgst með honum spila með Feyenoord og spila vel fyrir íslenska landsliðið? „Mér finnst gaman að sjá hversu vel hann spjarar sigen vissulegaergir það mig þegar ég hugsa um að ég hefði sjálfur getað gert sömu hluti hefði ég sloppið við meiðslin. Ég lít þannig á að núna sé ég búinn að taka út erfiða tímabilið í atvinnumennsk- unni að einhverju leyti. Leiðin getur bara legið upp á við." — Hvað hefur komið þér mest á óvart í atvinnumennskunni? „Harkan á æfingum er mun meiri en ég bjóstvið. Þjálfarinn leyfir ALLT og síðustu tvær æfingarnar fyrir leiki eru verstar. Þá ætla menn virkilega að sanna sig til þess að komast í liðið og fá þar af leiðandi bónusgreiðslur. Laun leikmanna hjá Feyenoord byggjast mest á bónusgreiðslum þótt allir hafi vissa tekjutryggingu. Alls eru 25 leikmenn á samningi þannig að samkeppnin er gífurleg." — Hvernig persónuleiki er fyrir- liðinn De Wolf? „Hann er mikill leiðtogi og mikils „Það er staðreynd að hérna úti erum við núll og nix," segir Bjarki sem klæðist hér búningi Feyenoord. virtur. Hann var frá vegna meiðsla í tvö ár en náði að rífa sig upp og hefur t.d. miklar tekjur af ýmis konar aug- lýsingum." — Gætirðu hugsað þér að spila annars staðar en í Hollandi? „Já, en ég held að það sé best að byrja í Holland eða Belgíu hafi leik- menn áhuga á að komast til Italíu, Spánar eða Frakklands. Draumur minn væri að komast til einhverra af fyrrgreindum löndum en ég á eftir að sanna mig og þroskast áður en slíkir draumórar festa rætur." — Kom árangur Skagamanna í sumar þér á óvart? „Alls ekki. Við Arnar vorum báðir búnir að spá því að ÍA yrði með yfir- burðalið á íslandi. Þótt við höfum far- ið hingað fengu þeir frábæra leik- menn í staðinn þar sem Siggi Jóns og Óli Þórðar eru. Styrkleiki ÍA er ótrú- legur og menn vinna hver fyrir ann- an. Alexander Högnason og Sigurs- teinn Gíslason hafa verið vanmetn- ustu knattspyrnumenn í íslenskum fótboltaen þeirfengu loksins athygli í sumar. Það var frábært að vera sam- herji þeirra." — Hafið þið séð einhverja leiki með ÍA? „Við fáum spólur senda til Hol- lands eftir hvern einasta leik IA. Það er búið að vera frábært að fylgjast með liðinu og það er í raun synd að hafa misst af tímabilinu með IA sem er án efa eitt hið besta í sögu félags- ins. Það er staðreynd að hérna úti erum við núll og nix, það er í lagi að það komi fram. Heima gekk okkur vel, við vorum í sviðsljósinu og þess vegna er það skrýtið að vera hér og láta ekkert að sér kveða. Auðvitað hugga ég mig við það að það tekur tíma að festa sig f sessi hér úti og ég á eftir að fá mín tækifæri." — Hvers saknarðu mest frá ís- landi? „Félagsskaparins við strákana í ÍA og vini og ættingja. Samt erum við ekki með neina heimþrá því við vor- um búnir að einsetja okkur að kom- ast að hjá einhverju atvinnumanna- liði. Þessi árkomaekki afturog þvíer 11
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.