Íþróttablaðið - 01.10.1993, Page 13
eftir Valbjörn Jónsson
EFTIRMAL
UM JÓN PÁL
Fyrir nokkrum árum féllu tveir ís-
lenskir íþróttamenn á lyfjaprófum
eftir íþróttakeppni. Þeir báru því við
að þeir hefðu tekið lyf samkvæmt
læknisráði vegna meiðsla, sem þeir
áttu við að stríða, en neituðu að hafa
tekið inn lyf til að bæta árangur sinn í
íþróttum. Þetta var á fyrstu árum
lyfjaprófanna og íþróttamenn og
læknar gættu ekki sem skyldi að var-
ast þau fjölmörgu lyf sem voru
skyndilega komin á bannlista al-
þjóða Ólympíunefndarinnar. í kjöl-
far þessa hafa allir verið betur á verði
enda ekki vanþörf á því núorðið er
allra leiða leitað til að koma íþrótta-
manni aftur til æfinga og keppni eftir
meiðsli.
Fyrr á þessu ári lést Jón Páll Sig-
marsson skyndilega. Hann hafði,
rúmu ári fyrir andlátið, orðið fyrir al-
varlegu slysi. Stór vöðvi slitnaði frá
beini við átök og hann gekk í gegnum
erfiða læknisaðferð erlendis. Jón Páll
hafði atvinnu sína af aflraunum eftir
að hafa fyrr á árum keppt í mörgum
algengum íþróttagreinum. Hann átti
lengi í meiðslunum og hafði ekki náð
bata er hann lést. Reyndar hafði Jón
Páll verið metinn 25% öryrki vegna
meiðslanna.
Engar upplýsingar er að fá um
lyfjameðferðina vegna meiðslanna
en ekki finnst mér ólíklegt að gripið
hafi verið til steralyfja til að flýta fyrir
bata. Lyfin eru reyndar framleidd og
notuð í læknisfræðilegum tilgangi
þótt misnotkun þeirra þekkist hjá
íþróttamönnum.
Falli menn frá án undanfarandi
sjúkdómslegu heyrir látið undir lög
um mannskaðaskýrslur og skulu yfir-
völd grafast fyrir um dánarorsök.
Vandaður og mikilsvirtur læknir sá
um krufningu og voru niðurstöður
hans um banameinið þær að hinn
látni hafi verið með kransæðasjúk-
dóm og skyndileg stífla vegna fitu í
æðavegg hafi valdið snöggum dauða
hans. Við fyrstu skoðun benti ekkert
til inntöku lyfja og fyrir utan það að
vera haldinn þessum algenga sjúk-
dómi vestrænna þjóða var hinn látni
heilbrigður. í framhjáhlaupi má geta
þess að árlega deyja 6-700 manns úr
kransæðastíflu á íslandi.
Strax eftir andlátið var gerð húsleit
á heimili hins látna og var lagt hald á
allt sem líktist lyfjum og það sent í
rannsókn. Niðurstöður þeirra rann-
sókna sýndu að einungis var um
skaðlaus vítamín að ræða.
Einhverra hluta vegna voru sýni úr
hinum látnasendutantil rannsóknar.
Sú rannsókn tók um tvo mánuði og
FANNST VOTTUR AF UMBROTS-
EFNI STERALYFS við rannsóknina.
Venja er við próf sem þessi að mæla
hlutfallið milli hinna náttúrulegu
hormóna testosterons og epitestost-
erons og á það að vera 1/1. Ekki var
getið um neina brenglun þar á hjá
hinum látna. Það þýðir að ekki var
um utanaðkomandi testosteron að
ræða. Þess er getið í skýrslu vegna
þessa að umbrotsefni steralyfs finnist
í þvagi í marga mánuði eftir inntöku.
Hjá Jóni Páli fannstaðeinsvottursem
bendir til að langt hafi verið frá inn-
töku og er alls ekki útilokað að notk-
unin hafi verið í læknisfræðilegum
tilgangi.
Hér á landi eru hjarta og æðasjúk-
dómaralgengustu dánarorsakir. Mat-
aræði hefur þar mikið að segja.
Neysla harðrar fitu er áhersluþáttur,
yfirþyngd er áhættuþáttur en fyrst og
sfðast líta læknar til erfiða þegar
áhætta er metin. Nú vill svo til að
langafi Jóns Páls dó 32 ára gamall á
sama háttogjón Páll. Jón Páll var40
kg yfir kjörþyngd og vegna starfa
sinna að aflraunum hafði hann borð-
að feiknin öll af orku- og fituríkum
mat og oft misboðið líkama sínum
með sveiflum í mataræði. Ættingjar
og vinir hins látna setja andlátið ekki
í samband við annað en samspil
erfða og umhverfisþátta.
Ferill jóns Páls í kraftlyftingum var
undir merkjum KR og er hann reynd-
ar sá eini sem á hæstaréttardóm fyrir
þeirri félagsaðild. Hann stóðst öll
lyfjapróf sem hann fór í vegna íþrótt-
arinnar. IHann hefur af sumum verið
tortryggður vegna lyfjaprófs sem ÍSÍ
vildi að fram færi árið 1985 eftir að
kraftlyftingamenn höfðu stofnað
samband utan þess. Jón Páll varð að
ósekju fórnarlamb tveggja sambanda
sem deildu en sannleikann um þetta
undarlega mál er að finna í hæstarétt-
ardómum frá 1987.
Jón Páll vildi vera æskulýðnum
gott fordæmi og er á engan hallað
þótt hann hafi verið í fylkingarbrjósti
íslenskra íþróttamanna hvað það
varðaði. Hann boðaði hollt líferni og
hollustu í mat og drykk, tók afstöðu
gegn reykingum og drykkjuskap og
hvatti alla til líkamsræktar. Hann var
sönn fyrirmynd. ( keppnum erlendis
auglýsti hann ísland í hvívetna á já-
kvæðan hátt. Hann neitaði ávallt
ásökunum um lyfjanotkun og ENG-
AR sannanir eru til um að hann hafi
notað þau til að bæta árangur sinn í
íþróttum. Hér á landi gildir sú regla
að allir séu saklausir þar til sekt sann-
ast. Það er undarlegt ef þetta á ekki
við um Jón Pál eins og aðra.
Vegna framangreindra atriða
vakna ýmsar spurningar. Tíðkast hús-
leit þegar skyndilegt andlát verður?
Tíðkast lyfjapróf við fráfall manns?
Mega menn búast við að niðurstöður
slíkra prófa komi fram í fjölmiðlum.
13