Íþróttablaðið - 01.10.1993, Síða 16

Íþróttablaðið - 01.10.1993, Síða 16
PUNKT AR eftir Steingrím Ólafsson ** Veðbankar í henni Ameríku tóku sam- stundis við sér þegar MICHAEL JORDAN lýsti því yfir að hann væri hættur í körfu- bolta og hættu að taka við veðmálum í tvo sólarhringa um það hverjir yrðu næstu NBA meistarar. Þegar veðbankarnir lokuðu voru taldar helmingi meiri líkur á að Chicago Bulls myndi verja meist- aratitilinn á komandi keppnistímabili en klukkustund eftir að þeir opnuðu aftur, eftir yfirlýs- ingu Jordans, leit dæmið allt öðruvísi út. New York Knicks er nú talið sigurs- tranglegasta liðið ásamt Cleveland Cavaliers og Phoenix Suns. Bulls er nú spáð 3.- 4. sæti. Á sumum stöðum, eins og t.d. í mið- og vesturfylkjum Banda- ríkjanna, lenti Bulls enn neðar hjá veðbönkunum, jafnvel í 8.-10. sæti. Það er því nokkuð ljóst að menn álíta Jordan nánast bera Bulls-liðið uppi eða allt að því. ** Yfirstjórn NBA deildarinnar hefur nú lokið opinberri rann- sókn á MICHAEL JORDAN vegna ásakana um að hann sé sjúkur fjárhættuspilari en slíkt er litið illum augum í deildinni. Jordan sagði sjálfur að rannsóknin hefði ekkert haft með það að segja að hann hefði hætt og það sama sagði yfirstjórnin. Rannsóknin hélt áfram þótt Jordan væri hættur og lauk nú á dögunum, Jordan í hag. ** Helstu stjörnur NBA boltans hafa lýst skoðun sinni á því að Michael Jordan sé hættur að spila körfubolta. Tim Hardaway hjá Golden State Warriors segir ljóst að öll lið muni nú spila með allt öðru hugarfari gegn Chicago Bulls því ekki þurfi lengur að hafa áhyggjur af því hvernig eigi að eiga við Jordan. Kevin McHale, sem hætti hjá Boston Celtics eftir síðasta keppnistímabil, tók kannski aðeins dýpra í árinni þegar hann sagði: „Ég þori að veðja að eftir fimm ár mun fólk segja: „Hvaða Michael Jordan?“ því þannig er NBA boltinn.11 * * Liðsmenn annarra NBA liða hafa orðið heldur kokhraustari eftir að Jordan hætti. Terry Mills hjá Detroit Pistons segir til dæm- is að það eina, sem hafi komið í veg fyrir að Pistons yrðu NBA meistarar, sé Michael Jordan. „Hann er farinn og við verðum næstu meistarar," sagði Mills. * * Ónefndur leikmaður Charlotte Horn- ets sagði þegar hann heyrði fréttirnar: „Þegar Jordan er hættur á Bulls ekki mögu- leika á að halda titlinum. Liðið vinnur í mesta lagi 35 leiki á keppnistímabilinu.11 ** Bill Clinton Bandaríkjaforseti lét af- sögn Jordans sig varða því hann var inntur álits á henni á blaðamannafundi. Clinton sagði: „Hans verður saknað í bakgörðum, leikvöllum, hjá krökkum sem og fullorðn- um. Alla dreymdi um að vera Jordan. Við sjáum líklega aldrei aftur hans líka.“ Barkley sagði að Jordan væri eini maðurinn í heiminum sem spilaði körfubolta eins vel og hann sjálfur. ** Einn besti vinur Jordans, en um leið einn harðasti andstæðingur hans á vellinum Charles Barkley hjá Suns, var gráti næst þegar hann fékk fréttirnar. „Þetta er sorglegt og kom mér verulega á óvart. Jordan er eini maðurinn í öllum heiminum sem spilaði körfubolta eins vel og ég. Þess vegna á ég eftir að sakna hans á vellinum.11 ** Afsögn Jordans kom íbúum Chicago gjörsamlega í opna skjöldu. Flestir voru harmi slegnir en virtu ákvörðun hans. Allar „þjóðarsálir11, í borginni snérust um Jordan í heila viku en Jordan hefur hingað til ekki þurft að borga í stöðu- mæla og hefur yfirleitt fengið fyrirgreiðslur á öll- um stöðum. Hann gæti þurft að venjast því á næstunni að vera með- höndlaður eins og Jón Jónsson. ** Michael Jordan er líklega tekjuhæsti íþrótta- maður heims og auglýs- ingatekjur hans nema mil- ljörðum á hverju ári. Helstu auglýsingasérf- ræðingar Bandaríkjanna voru spurðir álits á því hvaða áhrif afsökn Jord- ans hefði á auglýsinga- markaðinn, hvort Jordan myndi hverfa af honum. Einróma svar sérfræð- inganna var „Nei“. Þeir sögðu að Jordan væri allt of stórt nafn til að gleymast. Þeir sögðu reyndar að yrði hann ekki byrjaður að spila körfubolta aftur eftir 5 ár myndu þeir endurmeta stöðuna. ** Mikill sjónarsviptir er að stórstjörnum úr NBA boltanum. Magic Johnson er hættur, Larry Bird og Kevin McHale eru sömuleiðis hættir. Júgóslavinn Drazen Petrociv hjá Lak- ers lést í bílslysi og Reggie Lewis hjá Boston úr hjartaáfalli. Og ekki má gleyma Jordan. „NBA boltinn mun seint ná sér af þessum skakkaföllum11 var einróma álit tíu helstu íþróttafréttamanna Kaliforníu. * * Charles Barkley fékk heldur betur áfall í æfingabúðum Suns í byrjun október þegar hann féll skyndilega niður og gat hvorki hreyft legg né lið. Hann var í skyndi fluttur á sjúkrahús þar sem læknar framkvæmdu 28 rannsóknir á kappanum. Þeir komust að þeirri niðurstöðu að hann hefði gjörsamlega ofkeyrt sig á æfingunni og það hefði orsakað máttleysi hans. Barkley sagði sjálfur að þegar hann hefði hnigið niður hefði honum aðeins dottið eitt í hug: „Ég er lamaður.11 ** Það á ekki af Golden State Warriors að ganga. Liðinu var spáð velgengni á síðasta keppnistímabili en það lenti í einu af neðstu sætunum. Helsta ástæða þess var mikil meiðsli hjá helstu stjörnum liðsins, þeim Veðbankar spá Chicago Bulls 3.-10. sæti eftir að Michael Jordan ákvað að hætta að leika körfubolta. 16

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.