Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 20

Íþróttablaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 20
„Það er staðreynd að við erum mörgum árum á eftir strákunum hvað varðar ýmis mál," segir Inga Lára. tímabili eins og Valencia væri hægt að gera ýmislegt hjá Víkingi. Þetta er bara munurinn á atvinnumennsku og áhugamennsku. Valencia getur keypt hvaða leikmenn sem er og stelpurnar gera ekkert annað en að æfa því ekki skortir fjármagnið. Ef við víkjum að landsliðinu þá er- um við frekar brothættar og með litla breidd. Ef einn sterkur leikmaður meiðist, eins og t.d. Andrea sem gat ekki leikið gegn Rússum, er aðeins einn leikmaður um skyttustöðuna hægra megin. Það er staðreynd að mjög margar stelpur hætta að æfa þegar þær koma í 3. og 2. flokk því fleira en handbolti glepur. Yfirleitt þarf sterkan karaktertil þess að koma sterkur upp úr yngri flokkum í meist- araflokk." — Er þetta bara spurning um pen- inga þegar um árangur er að ræða? Nú virðist íslenska karlalandsliðið geta haldið sér í fremstu röð og ekki er verið að dæla peningum í þá? „Það er staðreynd að við erum mörgum árum á eftir strákunum hvað varðar ýmis mál. Það eru ekki svo mörg ár síðan farið var að ráða mjög hæfa menn sem þjálfara í meistara- flokki kvenna og hreinlega styðja við bakið á kvennahandbolta með ýms- um hætti. Þessi þróun hjá strákunum hófst með tilkomu Bogdans, að mínu mati, en mun síðar hjá okkur. Það er gleymt og grafið núna en landsliðið tapaði oft og illa þegar Bogdan var fyrst við stjórn en síðan snérist blaðið við." — Finnst þér landsliðið eiga langt í land með að verða topplið? „Eins og staðan er í dag eigum við langt í land þótt við getum strítt þeim bestu með toppleik. Við höfum ekki breiddina til þess að eignasttopplið á næstunni. Til þess að ná betri úrslit- um þurfum við að spila fleiri lands- leiki en því miður er ekki hægt að senda landsliðið utan í keppnisferðir vegna fjárskorts." — Er þetta alltaf sama baráttan hjá ykkur — selja klósettpappír, baka kökur og sníkja endalaust? „A-landsliðið þarf þessekki lengur sem betur fer en öllum er Ijóst hver fjárhagsstaða HSÍ er þannig að það verður ekki mikið gert fyrir okkur á næstunni. Þátttakan í Evrópukeppni landsliða er þó mikilvægt skref í rétta átt og náist einhver árangur þar gæti framtíðin orðið bjartari." — Ertu sátt við HSÍ? „Égerekki sáttvið það viðhorfsem virðist rfkja hjá nokkrum innan stjórnar HSÍ að kvennalandsliðið sé nánasttil trafala. Því miðurer viðhorf margra innan HSÍ á þá vegu að við séum eingöngu baggi á sambandinu. Menn verða bara að gera sér grein fyrir því að kvenfólk er 40% iðkenda innan vébanda HSÍ og hvers vegna ætti þá ekki að verja 40% af þeim styrk, sem HSÍfærfrá ríkinu ígegnum ÍSÍ, í kvenfólkið?" — Eigum við raunhæfa möguleika í riðlinum í Evrópukeppni landsliða sem samanstendur af liðum íslands, Portúgals, Rússlands og Ítalíu? „Ef við lendum í öðru sæti í riðlin- um, sem er mögulegt eftir að hafa sigrað landslið Portúgals á útivelli, þurfum við að leika nokkra leiki til þess að eiga möguleika á að komast í úrslitakeppnina. Þetta eru 7 riðlarog efsta liðið úr hverjum riðli fer beint í hitahlíM' ISLENSKA KARLALANDSLIÐIÐ í HANDKNATTLEIK NOTAR REHBAND HITAHLÍFAR Smásöluaöilar: Stoð Trönuhrauni 8 Sportbúð Kópavogs Hamraborg Kringlusport Borgarkringlunni Sparta Laugavegi 49 Toppmenn og sport Akureyri 3 Sportbúð Óskars Keflavík 1 ItSTOÐ Trönuhrauni 8 220 Hafnarfirði Sími 91-652885 Bréfsími 91-651423 20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.