Íþróttablaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 21
Inga Lára í öruggum örmum „lærimeyja" sinna í 2.- og 3. flokki Víkings.
úrslit. Það lið, sem er með bestan
árangur þeirra liða sem eru í 2. sæti,
fersömuleiðis beint í úrsliten hin sex
liðin leika um þrjú sæti. ítalir töpuðu
með tíu marka mun gegn Rússum
eins og við en við vitum ekki hvort
þrjár sterkar stelpur frá Júgóslavíu
léku með en til stóð að þær fengju
ítalskan ríkisborgararétt. Hafi þær
leikið með virðist mér við eiga mögu-
leika gegn ítölum annars minnka þeir
verulega. Eg tel það góðan árangur
að lenda f 2. sæti í riðlinum og fá þar
með tækifæri til að spila um það að
komast í úrstlitakeppnina."
— Hvernig merkirðu það að
kvennahandboltinn sé á uppleið á
íslandi?
„Ég þekki starfið í yngri flokkum
liðanna mjög vel, hef samanburð frá
fyrri árum og ég er þeirrar skoðunar
að stelpur, sem eru í 2. og 3. flokki,
hafa betri leikskilning og boltameð-
ferð en við höfðum á þeirra aldri.
Fyrirkomulag íslandsmótsins hefur
haft mikið að segja og úrslitakeppnin
er skemmtileg. Að auki eru stelpur í
mun betri æfingu og sterkari en áður.
Við æfum jafn mikið og strákarnir og
okkurerekki hlífteinsog vargertfyrir
mörgum árum. Þjálfarar í dag leggja
það sama á okkur og strákana. Það
máþót ekki gleymast að til að tryggja
áframhaldandi framfarir þarf góða
aðhlynningu og tíma."
— Hverjar eru þínar áherslur í
þjálfun?
„VIÐHORF MARGRA
INNAN HSÍ ER Á ÞÁ
VEGU AÐ VIÐ SÉUM
BAGGI Á
SAMBANDINU"
„Ég legg mikið upp úrtækniþjálfun
og leikskilningi. Það skiptir miklu
máli að þaðsébolti á hvern leikmann
en því var því miður ekki að heilsa
fyrir nokkrum árum. Ég legg ekki
mikið upp úr taktík heldur kenni ein-
faldar hlaupaleiðir. Mér finnst ekki
rétt að leggja áherslu á taktík áður en
leikmenn læra að grípa og kasta al-
mennilega við hinar ólíku aðstæður
sem koma upp í leikjum. Taktíkina er
hægt að læra í meistaraflokki. Hlut-
verk án bolta er mjög mikilvægt í
„Hliðar saman, hliðar — einn, tveir
og mark."
sókninni og vil ég koma því áleiðis.
Ég vil að stelpurnar kunni öll grunn-
atriði í handbolta þegar þær koma
upp í meistaraflokk. Flókin taktík í 3.-
og 4. flokki er ekki af hinu góða."
— Hvernig finnst þér að leika með
stelpum sem þú varst að þjálfa fyrir
nokkrum árum?
„Það var dálítið sérstakt þegar
kjarninn úreinu sigursælasta liði Vík-
ings í yngri flokkum fór að mæta á
meistaraflokksæfingar. Auðvitað \
kom smá svipur á þær þegar maður \
fór að berja á þeim eins og öðrum. Ég
þjálfaði Höllu Maríu, Heiðu Erlings
og Hjördísi svo dæmi séu nefnd en
stelpurnareru fimm í meistaraflokki í
dag sem voru í gullflokki Víkings, ef
svo má að orði komast. Þegar við
hófum að leika saman gætti ég þess
að vera ekki alltaf að leiðbeina þeim
því það var ekki í mínum verkahring
lengur."
— Hvernig upplifir þú sjálfa þig
sem handboltamann, fyrirliða, ís-
landsmeistara, og leikmann ársins?
„Eftir að við urðum íslandsmeistar-
ar í fyrra skiptið misstum við sex leik-
menn í burtu og í kjölfar þess þurfti ég
að endurskoða hlutverk mitt innan
liðsins. Ég hef alla tíð verið miðlari
inni á vellinum og þess vegna verið
gagnrýnd fyrir að gera of lítið sjálf. Ég
hef alltaf litið á mig sem mann liðs-
heildarinnar en í Ijósi breytinganna
varð mér Ijóst að ég varð að skjóta
meira. Ég lyfti lóðum reglulega bæði
21