Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.10.1993, Side 26

Íþróttablaðið - 01.10.1993, Side 26
Friðrik Rúnarsson, fyrrum þjálfari Njarðvíkur og KR (Friðrik þjálfar ekki í úrvalsdeild- inni í vetur) Friðrik Rúnarsson. Ert þú grafinn og gleymdur eftir eitt tímabil á titils? „Nei, svo tel ég ekki vera. Ef ég fer rétt með höfðu 8 lið samband við mig fyrir keppnistímabilið, bæði karla-og kvennalið, úr úrvalsdeildinni og 1. deild. Ég manekki eftirað hafafengið svo mörg tilboð áður. Sem stendur þjálfa ég tvo flokka hjá Njarðvík — drengjaflokk, 17 ára, og 8. flokk sem í eru 13 ára strákar. Svo hef ég verið að aðstoða við þjálfun og undirbúning næsta unglingalandsliðs. Að auki hef ég aðstoðað Torfa Magnússon með 21. árs landsliðið. Ástæða þess að ég tók mér hvíld frá úrvalsdeildinni er sú að mér finnst égenn ungurogeiga svo margtólært. Hvíldina ætla ég að nota til þess að skoða leiki frá öðru sjónarhorni en ég gerði sem þjálfari. Ég hef lært ýmis- legt af því að fylgjast með úr stúk- unni. Éger í góðu sambandi við þjálf- ara hér heima og erlendis, fæ mikið af lesefni um körfubolta og er með allar skúffur fullar af blöðum um þjálfun. Reyndar stefni ég að því að fara til útlanda, læra meira og þrosk- ast sem þjálfari. Sumir þjálfarar hafa starfað í 20 ár án þess að vinnatil titla en ég hef þjálfað í úrvalsdeildinni í 3 ár og unnið til nokkurra titla. Frá fimmtán ára aldri hef ég verið í þjálf- un og reyndar þjálfað alla flokka af Á L.ÍOJUIMIMI báðum kynjum. í því starfi hef ég unnið til titla með þeim yngstu til þeirra elstu. Vegna þessa hef ég ekki trú á því að ég sé gleymdur. En vitan- lega stefni ég að því að þjálfa í úrvals- deildinni í framtíðinni." Bjarni Jóhannsson. Bjarni Jóhannsson, fyrrum aðstoðarþjálfari Fram (Flann og Ásgeir Sigurvinsson hættu störfum sem þjálfarar Fram) Hvaða leikmenn hefðir þú viljað fá í Fram ef þú hefðir haldið áfram hjá félaginu? „Því er erfitt að svara en vitanlega eiga allir þjálfarar sér óskaleikmenn. Ég get reyndar nefnt einn leikmann, sem hefði verið á mínum óskalista, en það er Hlynur Birgisson. Sannast sagna er skortur á sterkum varnar- mönnum í deildinni. Sú hugmynd var viðruð hvort ég tæki einn við Framliðinu en ekkert varð úr þeirri umræðu. Að mínu mati var undirbúningurinn fyrir tímabilið góður þótt Ásgeir hafi ekki verið á staðnum en auðvitað er æskilegt að þjálfari starfi allt árið um kring hjá því liði sem hann stýrir. Sumarið olli að vissu leyti vonbrigðum og maður hefði viljað ná betra sæti í deildinni, sérstaklega þegar litið er til spila- mennsku liðsinsum miðbiksumaren þá lék liðið mjög vel. Nú hefégtekið við þjálfun Fylkis sem mér finnst spennandi verkefni og ég geri mitt bestatil þess að koma liðinu í þangað sem það á heima." Kristinn R. Jónsson, þjálfari knattspyrnuliðs Hauka (Kristinn hættir hjá Fram og snýr sér að þjálfun — á besta aldri) Kristinn R. Jónsson. Er þetta ekki hálfgerð uppgjöf, Kristinn? „Nei, það myndi ég ekki segja. Finnst þér það? Ég hef áhuga á að reyna mig sem þjálfari og mun ég því sameina spilamennsku og þjálfun næsta sumar. Hvað sumarið hjá Fram varðar var undirbúningur fyrir mótið góður en því miður er ekki hægt að segja það sama um mannskapinn. Líklega eiga þjálfararnir einhverja sök á því hvernig fór en þegar illa gengur reyna menn alltaf að finna sökudólga." 26

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.