Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.10.1993, Side 36

Íþróttablaðið - 01.10.1993, Side 36
Heimsmeistaramóti unglinga ÍTékk- landi. Þar gekk honum mjög illa þrátt fyrir að hann væri mjög vel undir- búinn og í góðu formi. Hann hafnaði í 37. og 42. sæti en sænskir strákar röðuðu sér í þrjú efstu sætin. „Þetta var virkilega svekkjandi vegna þess að ég hafði verið að vinna þessa Svía hvað eftir annað á mótum í Svíþjóð. En þetta gerir íþróttir spennandi, maður getur aldrei verið öruggur um neitt," segir Daníel. PENINGASKORTUR HÁIR SKÍÐASAMBANDINU Nokkur styr hefur staðið um Skíða- samband íslands síðustu misseri og Daníel hefur ákveðnar skoðanir á uppbyggingastarfi sambandsins. „Mér finnst það hrein og klár mis- tök hvernig staðið hefur verið að uppbyggingu á norrænu greinunum. Það hefur verið haldið úti of fjöl- mennu liði miðað við þá litlu pen- inga sem Skíðasambandið hefur úr að moða. Það er lítið hægt að gera með þennan þriggja til fjögurra manna hóp, í stað þess að leggja áherslu á að styrkja einn eða tvo bestu göngumenn landsins. En þetta snýst allt um peninga og það verður seint sagt að Skíðasambandið vaði beinlínis í peningum. Einu tekjur sambandsins eru Lottópeningar og Ólympíustyrkir og svo er rifist um hvernigeigi að skipta peningunum á milli greina. Ég held að sú skipting hafi verið sanngjörn hingað til. Mín samskipti við Skíðasambandið hafa verið mjög góð. Þeir gera eins vel og þeir geta þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Þaðer þvíóþarfi aðgráta íblöðin þótt menn séu ekki sammála um hlutina, eins og gerðist, því miður. Sem dæmi um afleiðingarafslæm- um fjárhag Skíðasambandsins þá er ekki starfrækt unglingalandslið í skíðagöngu þrátt fyrir að hér séu margir efnilegir strákar. Ég er sá eini, sem er í A-landsliðinu, en síðan eru aðeins þrír strákar í B-landsliðinu. Það verður að fara að byggja upp meira markvisst ef skíðagangan á ekki að deyja út hér á landi. Þetta er vel hægt, uppbyggingin á Akureyri sýnir að það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi. Ekki má gleyma því að aðstaða fyrir skíðagöngumenn hér á landi er ekki sú glæsilegasta, sérstaklega sunnanlands. Á Reykjavíkursvæðinu búa yfir hundrað þúsund manns og þar er bókstaflega engin aðstaða og því er helmingur íbúa landsins úr leik. Það væri kannski hægt að gera brautir í Árbæ en þar sem tíðarfarið er mjög rysjótt og áhugi lítill held ég að það sé fjarlægur draumur. Eina að- staðan fyrir sunnan er í Bláfjöllum en gönguhringurinn þar er ferhyrndur. Éghefaldrei séðannaðeinsáævinni. Þessi braut er bara gerð fyrir túrista. Þegarégfer í Bláfjöll ferég 6-7 hringi, eða ferhyrninga í einu en það liggur við að ég æli eftir 2 því brautin er svo leiðinleg. ÍJarpen íSvíþjóðer140 km brautarkerfi og það tekur heila viku að fara allar brautirnar þar! Útlendingar segja oft að miðað við legu landsinsættu íslendingar að láta meira að sér kveða í skíðaíþróttum. En hér eru veður válynd og kosturinn við það að búa í Svíþjóð er fyrst og fremst veðurfarið. Það detta of margir dagar á út íslandi," segir Daníel. Á TOPPNUM EFT1R5TIL 6 ÁR — En hvernig er það að fórna öllu fyrir íþrótt sína en fá ekki þá viður- kenningu sem maður á skilið í heimalandi sínu? „Maður verður nú að vera svolítill egóisti í sér til að standa í þessu. Þess vegna er það óneitanlega skemmti- legt að sjá nafnið sitt á prenti og lesa greinar um sig. Það er því mjög svekkjandi þegarmaðurfert.d. íBlá- fjöll að það er enginn sem þekkir mann. Maður fær sjaldan nokkuð til baka hér heima. Það er nú einu sinni svo að ég er mjög mannlegur og eflist um helming við allt hrós. En á íslandi eru margir sem hlæja að okkur og það eru alls kyns for- dómar til gagnvart íslenskum skíða- göngumönnum. Það er t.d. sagt: „Þið lendið alltaf í neðsta sæti, eruð meira að segja neðar en Darnir sem hafa engar skíðagöngubrautir." Þetta er auðvitað út í hött. Að bera saman ísland og Danmörku er t.d. ekki sanngjarnt. Danskir skíðagöngu- menn fá 10 milljónir króna í styrki á móti 700 þúsund krónum hjá þeim íslensku. Auk þess búa danskir skíða- göngumenn í Noregi og Svíþjóð og æfa viðtoppaðstæður. Þaðtekursinn tíma að koma sér í fremstu röð. Ætli ég verði ekki á toppnum eftir svona 5 til 6 ár, eða það vona ég. Það er ekki það mikil hvatning sem ég fæ. Bestu skíðagöngumenn heims eru atvinnu- menn ísinni íþróttog meðtekjurupp á tugi milljóna króna á ári. Að ætlast til þess í dag að ég standi í þeim er eins og að láta 4. deildar lið í enska boltanum beint upp í 1. deild og ætl- ast til að það standi í þeim þestu. Þetta er auðvitað alveg út í hött. En vonandi fær maður einhvern tímann viðurkenningu fyrir íþrótt sína en það kostar miklar æfingar og fórnir. Þá mun ég minnast þeirra sem hafa stutt við bakið á mér, eins og t.d. bræðra minna og foreldra. Þegar ég kem heim til íslands er Óskar bróðir aðstoðarþjálfari minn og reynist mér mjög vel. Við höfum oft gantast með það að hann fær miklu meiri athygli en ég íblöðunum hér heima og sagt er að hann sé fræg- asti skíðagöngumaður landsins því hann er Reykjavíkurmeistari á skíð- um en sú keppni fær langmestu at- hyglina í blöðunum hér á hverju ári," segir Daníel að lokum og hlær eins og honum einum er lagið. 36

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.