Íþróttablaðið - 01.10.1993, Síða 42

Íþróttablaðið - 01.10.1993, Síða 42
til alls líklegir og með besta erlenda leikmanninn, John Rhodes, verða þeir erfiðir viðureignar. Þeir verða mjög ofarlega. Akranes: Lið Akurnesinga hefur ekki leikið áður í úrvalsdeildinni og mun því án efa fyrst og fremst setja sér það tak- mark að halda sér þar. Þeir eru þó heppnir að því leytinu að þeir eru almennt taldir í „veikari" riðlinum þar sem meiri líkur eru á að lið reiti stig hvert af öðru. Grindavík: Grindvíkingar komust í úrslita- keppnina í fyrra en urðu þá að lúta í lægra haldi gegn Haukum. Lið þeirra er ungt og efnilegt og á eftir að gera marga góða hluti. Guðmundur Bragason hefur tekið við þjálfun liðs- ins auk þess sem hann mun áfram leika með. Þeir hafa fengið liðsstyrk frá nágrönnum sínum úr Keflavík, þá Nökkva Má og Hjört Harðar auk þess sem Bandaríkjamaðurinn Wayne Casey hefur gengið í þeirra raðir. KR: KRingar koma fullir bjartsýni til leiks í ár enda komnir með töfra- manninn Lazlo Memeth sem þjálf- ara. Veturinn í fyrra var nokkur von- brigði fyrir Vesturbæinga og því ligg- ur leiðin upp á við. Breiddin hefur aukist og ef þeim tekst að lynda við útlendinginn hjá sér verða þeir ofar- lega. Valur: Valsmenn hafa orðið fyrir mikilli blóðtöku frá því í fyrra. Margir leik- menn eru farnir og verða þeir því að treysta mikið á unga og efnilega leik- menn. Valur er með lið sem getur unnið flest lið á góðum degi en hrap- að síðan niður þess á milli. Guðmundur Bragason hefur þjálf- araferilinn í Grindavík en hann er gríðarlega sterkur leikmaður. UMFN: Njarðvíkingar koma til leiks með spá um íslandsmeistaratitil í fartesk- i na og hvort það reyn ist gott eða vont skal ósagt látið. Þeir hafa fengið gríðarlegan liðsstyrk í þjálfara sínum Vali Ingimundarsyni og hans bíður erfitt en skemmtilegt verkefni. Snæfell: Hólmarar mætatil leiks með nokk- uð breytt lið frá því ífyrra. Þeir munu heyja afar harða baráttu við Vals- menn og Borgnesinga um réttinn til að fylgja Keflvíkingum upp í úrslita- keppnina. Skallagrímur: Borgnesingar eru almennt taldir með besta Vesturlandsliðið. Liðið hefurorðiðfyrir litlum breytingumog bætt við sig ef eitthvað er. Þeir eiga r *' Hbr- ^ f * y { PIZZAHÚSID , 679333 J FRI HEIMSENDING

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.