Íþróttablaðið - 01.10.1993, Síða 45
Fæstir trúa því að hið nýja lið ÍR vinni leik í vetur eftir hræðilega útreið gegn
ÍBK í fyrsta leik liðsins en þessi skemmtilegi hópur ætlar sér að koma á óvart
þegar líður á veturinn.
ar lítil breidd en helsti styrkur hins
vegar sterkur heimavöllur."
Valur:
„Valsstúlkur taka nú þátt í íslands-
mótinu ífyrstasinnogerþað vel. Þær
hafa fengið til sín allan þann manns-
kap er fyllti ÍR liðið síðasta vetur og
verða þær erfiðar viðureignar. Samt
eru þær ekki eins sterkar og ætla
mætti. Hins vegar eiga þær von á
sænskum risa eftir áramótin, stelpu
vel yfir 190 sm og með hana verða
þær hrikalegar."
ÍS:
„Eftir að hafa vermt neðsta sæti
fyrstu deildarinnar í fyrra I iggur leiðin
aðeins upp á við hjá Stúdentastúlk-
um. Þær hafa fengið liðsstyrk og ættu
að geta teflt fram sæmilegasta liði.
Þær hafa ágætan þjálfara sem ætti að
geta moðað úr mannskapnum."
ÍR:
„ÍR liðið er auðvitað algjörlega
óskrifað blað. Liðið er skipað stúlk-
um sem var smalað saman rétt fyrir
mót og eiga þær eftir að stilla streng-
ina. Það gæti tekið tíma. Þjálfararnir,
Jón Jörundsson og Einar Olafsson,
eru reynslumiklir en þetta verður
mjög erfitt — sérstaklega fyrst í stað."
Helstu félagskipti:
Eva Havlikova Tékkland — KR
Sólveig Pálsdóttir KR — ÍS
Kristín Blöndal ÍBK — USA
Petrana Buntic Króatfa — UMFT
Elín Harðardóttir UMFG — Val
SPÁ ÍÞRÓTTABLAÐSINS:
(D KR
(2) ÍBK
(3) UMFG
(4) UMFT
(5) Valur
(6) ÍS
(7) ÍR
Hanna Kjartansdóttir er ein af burð-
arásnum í liði ÍBK.
AHEIMAVELLI
PIPPEN ÓÁNÆGÐUR MEÐ
EIGIN FRAMMISTÖÐU
SCOTTIE PIPPEN, sem er einn af lykilleik-
mönnum Chicago Bulls, lék ekki eins vel á
síðasta keppnistímabili og hann á að sér.
Sumir segja að honum hafi hreinlega farið
aftur. Pippen var sömuleiðis óánægður með
eigin frammistöðu. „Eftir að annar meistara-
titillinn var í höfn var ég orðinn þreyttur á
körfubolta og æfði lítið sem ekkert allt sum-
arið. Þegar tímabilið hófst sá ég að allir leik-
menn höfðu tekið miklum framförum á
meðan ég slappaði af. Það tók langan tíma
að vinna þetta upp og mér fannst ég vera
kominn í gott form þegar úrslitakeppnin
hófst. Fyrir næsta tímabil ætla ég að æfa vel
og reyna að bæta eigin stigamet. Pippen
verður á flugi næsta vetur.“
VITLAUS FINGUR!
I leik í NBA deildinni árið 1953 fór stjarna
Minneapolis Lakers, GEORGE MIKAN, úr liði
á fingri þegar hann braut á andstæðingi.
Mikan, sem var vanur að eiga frábæra leiki,
hafði ekki fundið fjölina allan leikinn og gekk
niðurlútur í áttina að varamannabekknum
til að láta John Kundla þjálfara kippa fingrin-
um í liðinn. Kundla húðskammaði Mikan
vegna frammistöðunnar og þegar Mikan
reyndi að komast að sagði þjálfarinn honum
að steinhalda kjafti. Loksins þegar Mikan
fékk tækifæri til þess að tjá sig sagði hann:
„En þjálfi, ég ætlaði bara að segja þér að þú
heldur um vitlausan fingur!"
Of mikill kraftur?
Eins og knattspyrnuáhugamenn vita lenti
ítalski landsliðsmaðurinn hjá AC-Milan, Gi-
anluigi Lentini, í alvarlegu bílslysi í sumar.
Lentini var í Porche-bifreið sinni, á leið frá
Mílanó til Turin, þegar hann lenti í árekstri.
Lentini var bjargað úr bílflakinu fáeinum
andartökum áður en eldur varð laus. Öruggt
er að hann verður frá keppni í allan vetur en
hann meiddist á hendi og augnatóft og fékk
auk þess heilahristing. Lentini er þekktur
fyrir áhuga sinn á hraðakstri en aðeins fá-
einum mánuðum áður lenti annar ítalskur
landsliðsmaður í óhappi á Porche-bifreið
sinni. Það var markvörður Sampdoria, Gian-
luca Pagliuca. og var aðeins loftpúða í bíl
hans að þakka að Pagliuca slasaðist ekki
alvarlega. Hann er byrjaður að leika knatt-
spyrnu aftur en Lentini var ekki eins hepp-
inn þótt læknar telji að hann muni ná fullum
bata og geta haldið áfram við knattspyrnu-
iðkun sína þar sem frá var horfið. Er Porche
kannski of kraftmikill fyrir ítalska knatt-
spyrnumenn?
45