Íþróttablaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 48
í POKAHORNINU
Hvað dettur Róbert Þór
Rafnssyni, hand-
boltamanni í ÍR,
fyrst í hug þegar
hann heyrir eftirtalin
orð?
Breiðholt: Topphverfi
Rjómaís: Fitancli en góður
Landslið: Draurhörar
Mús: Lítið og loðið (eða Jói) I
Afslöppun: Liggja á meltunni
Málsháttur: Bjáni er sá er bölvar
bjórnum
Blóðsuga: Sníkjudýr
Skinka: Deilumál
Fegurð: Brynjar þjáifari eða hitt þó
heldur
Eftirlætisíþróttamaðurinn
Árni Þór
Hallgrímsson TBR:
„Ég held að ég nefni kínverskan
badmintonmann, sem heitir Zhao Ji-
anhua. Hann varð heimsmeistari í
einliðaleik í Kaupmannahöfn 1991
en á síðasta heimsmeistaramóti
keppti hann bara í tvenndarleik. Ég
held mjögmikið upp á hann. Hann er
örvhentur, tæknilega frábær og mjög
skemmtilegur í loftinu. Hann hefur
ótrúlegt vald á að stökkva upp og slá.
Reyndar fáum við íslendingar allt of
sjaldan að sjá þessa bestu í badmin-
ton. Það er aldrei sýnt neitt af bad-
minton í Sjónvarpinu og það er helst
að við sjáum þá bestu á stórum opn-
um mótum, sem bjóða há verðlaun.
Ég held að ég hafi séð Zhao þrisvar
sinnum.
Ég get I íka nef nt S kaga I i ð i ð frá þv í í
sumar í heild sinni. Ég get ekki gert
upp á milli manna. Strákarnir stóðu
sig allir frábærlega."
Fyrsti verðlauna-
peningurinn:
Steinunn
Sæmundsdóttir, skíða-
og golfkona.
Steinunn Sæmundsdóttirerafreks-
kona í tveimur íþróttagreinum, skíða-
íþróttinni og golfinu. Að eigin sögn
fer lítið fyrir keppni nú orðið en hún
skreppur á skíði og í golf sér til gam-
ans. Hvar og hvenær fékk hún sinn
fyrsta verðlaunapening og hvernig
leið henni? „Það var vorið 1972 á
Stefánsmótinu í Skálafelli. Ég var að
keppa á mínu fyrsta móti eftir að hafa
farið á nokkrar æfingar og ég sigraði í
stórsvigi í flokki 11-12 ára. Ég held að
ég hafi verið um tveimur sekúndum á
undan næsta keppanda. Auðvitað
var ég mjög ánægð með sigurinn en
hann kom mér mjög á óvart. Ég bjóst
alls ekki við því að vinna því þarna
voru stelpur sem höfðu stundað skíði
mun lengur en ég. Það er auðvitað
mikil hvatning fyrir krakka að fá við-
urkenningu þegar vel gengur. Égfékk
mikla hvatningu frá félögum mínum í
Armanni því þar vantaði sigra. Mér
finnst allt í lagi að leyfa krökkum að
keppa við jafnaldra sína en það má
ekki gera of miklar kröfur. Það verður
líka að líta á þetta sem leik. Ég er að
þjálfa krakka, sem eru átta ára og
yngri, og þeim finnst mjög spennandi
að keppa. Þeim finnstskemmtilegtað
fá að gera eins og hin sem eru eldri."
48