Íþróttablaðið - 01.10.1993, Page 49
í POKAHORNINU
Hvernig andstæðingur er
Linda Stefánsdóttir, Val?
Anna María
Sveinsdóttir, ÍBK:
„Hún er mjög góður körfubolta-
maður. Hún er sterk í vörn og stelur
boltum í gríð og erg. Hún er með svo
langa handleggi að það er eins og
þeir séu alls staðar. Hún skorar mikið
og þaðererfitt að spilaá móti henni. í
sóknarfráköstunum er hún mjög sterk
en helsti galli hennar í sókninni er að
hana vantar svolítið undirstöðuatriði
í tækninni; hún byrjaði frekar seint
að æfa körfubolta. I vörninni lætur
hún stundum plata sig of auðveld-
lega til að stökkva upp. Linda er mjög
heiðarlegur leikmaður og er aldrei
með neitt skítkast en hún lætur mann
auðvitað finna fyrir sér. Hún reynir
frekarað tala um fyrir hinum stelpun-
um. Það er skemmtilegt að spila með
henni í landsliðinu því hún hefur
m.a. gott auga fyrir samspili. Þótt hún
skori mikið sjálf, spilar hún hinar líka
uppi. Linda er mjög fín; hress og
skemmtileg. Hún hefur mikið keppn-
isskap og gefst aldrei upp. Ef illa
gengur heldur hún bara áfram að
berjast. Það er mjög erfitt að brjóta
hana niður."
Guðbjörg Norðfjörð
KR:
„Linda er mjög erfið; hún er snögg
og það er oft erfitt að stöðva hana. í
vörninni er hún mjög flink að fiska
bolta, hún hefursvolangahandleggi.
Hún er líka hávaxin og blokkar bolta
vel. í sókninni er hún með góðar
hreyfingar inni í teig, hittir ágætlega
og tekur mörg fráköst. Linda er mjög
yfirveguð og lætur aldrei neitt á sjá;
virðist ekki láta neitt fara í skapið á
sér. Hún er mjög prúð á leikvelli og
ég man ekki eftir að hún hafi brotið
neitt illa á mér. Hún gerir þetta allt
svo snyrtilega og hefur ekkert fyrir
því. Ég þekki hana ekki mikið utan
vallar, aðeins í sambandi við lands-
liðið. Hún er mjög fín. Það er gaman
að spila með henni, hún er útsjónar-
söm og góð undir pressu."
Jordan snýraftur — eða hvað? Linda
Stefánsdóttir í Val æfir körfubolta á
margvíslegan hátt nema krókurinn
beygist svona snemma?
Draumaliðið:
Stefán Arnarson, þjálfari KR í handbolta, velur sitt draumalið að þessu
sinni. Stefán fékk það verkefni að velja landslið íslands í handbolta og valdi
hann 14 leikmenn í hópinn, þar af 7 í byrjunarliðið (feitletrað).
Markverðir: Fanney Rúnarsdóttir Cróttu og Vigdís Finnsdóttir KR.
Vinstra horn: Svava Sigurðardóttir Víkingi og Brynhildur Þorgeirsdóttir
Gróttu.
Skýttur vinstra megin: Halla María Helgadóttir Víkingi og Laufey Sig-
valdadóttirGróttu.
Leikstjórnendur: Inga Lára Þórisdóttir Víkingi og Brynja Steinsen KR.
Skyttur hægra megin: Andrea Atladóttir ÍBV og Gerður Beta jóhannsdótt-
ir Val.
Hægra horn: Heiða Erlingsdóttir Víkingi og Sara Ólafsdóttir ÍBV.
Lína: Guðný Gunnsteinsdóttir Stjörnunni og Huida Bjarnadóttir Vestar/
Refstad.