Íþróttablaðið - 01.10.1993, Qupperneq 51
í POKAHORNINU
Keppnisferillinn
Erla Rafnsdóttir
Erla er núverandi landsliðsþjálfari
kvenna í handbolta og hefur náð all-
góðum árangri. Landsliðið hefur leik-
ið fjórtán leiki undir hennar stjórn,
unnið þrjá, gert eitt jafntefli og tapað
níu. Auk þess hefur hún þjálfað í
yngri flokkunum í mörg ár. Keppnis-
ferill Erluerorðinn langurogstrangur
eins og sá má. Aðalgreinarnar eru
auðvitað handbolti ogfótbolti en Erla
hefur einnig keppt í frjálsíþróttum og
á nokkuð safn verðlaunapeninga
fyrir frjálsíþróttir. Meðal þeirra pen-
inga er t.d. einn sem hún hlaut fyrir
4x100 m. boðhlaup með sveit Ár-
manns á 1100 ára afmæli íslands árið
1974.
Knattspyrna:
Landsleikir: 12
Breiðablik:
1976: 2. sæti á íslandsmóti
1977: íslandsmeistari
1978: 2. sæti á íslandsmóti
1979: íslandsmeistari
1980: íslandsmeistari
1981: íslands- og bikarmeistari
1982: íslands- og bikarmeistari
1983: íslands- og bikarmeistari
1985: 2. sæti á íslandsmóti
1986: 2. sæti á íslandsmóti og í
bikarkeppni, markahæst á íslands-
móti.
íslandsmeistari innanhúss 1976,
'77, '80, '82, '85 og'86.
Stjarnan:
1987: Þjálfari og leikmaður, 3.
sæti á íslandsmóti
Handknattleikur:
ÍR:
1980: Reykjavíkurmeistari með2.
flokki
1981: Reykjavíkurmeistari og 2.
deildar meistari innanhúss, íslands-
meistari utanhúss og íslandsmeistari
utan- og innanhúss með 2. flokki
1982: 2. sæti í bikarkeppninni, ís-
landsmeistari utanhúss
1983: Bikar- og Reykjavíkurmeist-
ari
1984: 2. sæti í bikarkeppninni, 3.
sæti í íslandsmóti - handbolti kvenna
lagður niður hjá ÍR
Fram:
1985: íslands-, bikar- og Reykja-
víkurmeistari
Stjarnan:
1986: 2. sæti á íslandsmóti og í
bikarkeppni, íþróttamaður Garða-
bæjar, handknattleikskona ársins
1987: 3. sæti á íslandsmóti,
markahæst með 176 mörk
1988: 2. sæti í bikarkeppni
1989: Bikarmeistari og 3. sæti á
íslandsmóti, íþróttamaður Garða-
bæjar, markahæst með 152 mörk,
kjörin besta handknattleikskona
landsins
1990: 2. sæti í bikarkeppni
1991: íslandsmeistari og 2. sæti í
bikarkeppni
íþróttafélagið Höttur, Egilsstöðum:
Stofnár: 1974.
Formaður: Árni Margeirsson.
íþróttagreinar: Knattspyrna,
körfubolti, handbolti, frjálsíþróttir,
fimleikar, badminton og skíða-
íþróttir.
Fjöldi iðkenda: U.þ.b. 350 og
eru þeir þá tvítaldir, sem stunda
fleiri en eina grein. Fjöldi einstakl-
inga, sem stundar íþróttir á vegum
félagsins, er u.b.b. 250.
Aðstaða: Aðgangur að hálfbyggðu
íþróttahúsi sem því miður státar ekki
af löglegum handboltavelli en körfu-
boltavöllurinn er löglegur. Knatt-
spyrnudeildin hefur einn grasvöll til
æfinga og keppni en þar að auki
aðgang að malarvelli sem er um 10
km. frá bænum.
í deiglunni: Að koma upp gras-
og malarvöllum fyrir æfingar.
Sundlaug (25m) er í byggingu og
verður tekin í notkun á næsta ári en
þá verður stofnuð sunddeild.
51