Íþróttablaðið - 01.10.1993, Qupperneq 54
Mikið vatn hefur runnið til sjávar í
NBA deildinni í sumar þrátt fyrir að
enginn leikur hafi farið fram. Þrír af
bestu bakvörðum deildarinnar eru
hættir keppni og fleiri lið verða í
baráttunni um meistaratitilinn en
síðastliðin ár. Besti leikmaður deild-
arinnar undanfarin ár, Michael Jor-
dan, hefur afsalað sér krúnunni og
munu leikmenn á borð við Shaq
O'Neal, Hakeem Olajuwon, Patrick
Ewing, Charles Barkley og Larry
Johnson berjast um hana.
Chicago verður ekki meistari
fjórða árið í röð, Barkley verður ekki
aftur mikilvægasti leikmaður deild-
arinnar og hvorki Lakers né Boston
komast í úrslitakeppnina.
* Þýðir að liðinu sé spáð sæti í
úrslitakeppninni.
Miðriðill
Við þá blóðtöku, sem meistarar
Chicago urðu fyrir, opnast tækifæri
fyrir hin liðin í riðlinum, sérstaklega
Cleveland og Charlotte sem munu
bftast um efsta sætið í vetur. Atlanta,
Detroit, Cleveland og Indiana eru öll
komin með nýja þjálfara og öll ætla
þau sér að komast í úrslitakeppnina.
Það er Ijóst að þetta er jafnasti riðill
deildarinnar. Spáin er erfið og var-
hugavert að taka of mikið mark á
henni en hún er svona:
1. CharloHe Hornets*: Með þá
Larry Johnson og Alonzo Mourning
erframtíð liðsins mjögbjört. Hershey
Hawking er genginn til liðs við Char-
lotte en Kendall Gill er farinn. Það
verður gaman að sjá hvernig nýlið-
arnir Greg Graham og Scott Burrell
blandast í hópinn. Liðið er nú allt í
einu komið með tvær frábærar skytt-
ur, þar sem þeir Hawkins og Graham
eru, en það átti enga áður. Þetta kem-
ur til með að opna miðjuna þar sem
Johnson og Mourning fá meira pláss.
Charlotte er lið framtíðarinnar og fátt
getur komið í vegfyrir að við fáum að
sjá Muggsy Bogues og félaga spila
um meistaratitilinn innan fárra ára.
2. Clevelond Covilers*:
Cleveland kemur til með að leggja
allt í sölurnar í vetur. Þetta lið hefur
lengi valdið aðdáendum sínum von-
brigðum og þykir tími til kominn að
Hverjir verða meistarar?
Missir Chicago Bulls flugið?
Byrjar Jordan aftur!
Umfjöllun um NBA-deildina
Texti: Þórlindur Kjartansson og Eggert Þ. Aðalsteinsson
liðið komist í úrslit. Mike Fratello er
tekinn við stjórn liðsins og verður
gaman að sjá hvernig honum tekst til
með þann ágæta mannskap sem er til
staðar. Mark Price, Brad Daugherty
og Larry Nance eru allt stjörnuleik-
menn, Terell Brandon er efnilegur
leikstjórnandi og Gerald Wilkins get-
ur verið óstöðvandi. Liðið er samt of
lint og skortir baráttugleði og því
mun það ekki komst langt í úrslita-
keppninni í vor.
3. Chicogo Bulls*: Ótrúlegustu
fréttir ársins í íþróttaheiminum vörð-
uðu Michael Jordan. Kóngurinn sjálf-
ur er hættur að spila og Chicago getur
kysst bikarinn bless. Liðið er ennþá
nokkuð sterkt og nú kemur í Ijós
hversu mikið liðið treysti á Jordan.
Scottie Pippen verður áberandi en
hann erenginn Jordan. HoraceGrant
fær loksins að skjóta meira og B.J.
Armstrongverðurbetri en áður. Liðið
gæti unnið 50 leiki en það gæti líka
54