Íþróttablaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 55
hrunið algjörlega. Enginn veit hvers
er að vænta af meisturunum. Enginn
mun nokkurn tímann geta fyllt skarð
Jordans en nú verður liðið að sætta
sig við orðinn hlut og halda barátt-
unni áfram. Það verður gaman að sjá
hvort Toni Kukoc nær að blanda sér
inn í leik liðsins.
4. Atlanta Hawks*: Atlanta
gæti orðið „spútnik" lið vetrarins.
Dominique Wilkins er alltaf traustur
og Kevin Wills hefur spilað vel síð-
ustu tvö tímabil. Þeir tveir koma til
með að halda liðinu uppi. Stacey
Augmon er mjög hæfileikaríkur en
hann hefur ekki spilað af stöðugleika
og verður að sanna að hægt sé að
treysta á hann í hverjum leik. Craig
Ehlo kom með Lenny Wilkens þjálf-
ara frá Cleveland og koma þeir ef-
lausttil meðað lífga upp á liðið. Liðið
vantar góðan m iðherja ti I að verða að
virkilegagóðu liði oggóða varamenn
fyrir Willis og leikstjórnandann
Mookie Blaylock.
5. Indiana Pacers: Eitt litlaus-
Kevin Johnson, leikmaður Phoenix
Suns, er í góðum málum í vetur því
hann þarf ekki lengur að etja kappi
við Michael Jordan.
asta lið deildarinnar verður í logn-
mollunni enn einu sinni í vetur. Rik
Smits sýndi smá baráttugleði í úrslita-
keppninni ífyrra. Þaðvoru barafjórir
leikir og hann þarf að sanna að
frammistaða hans hafi ekki verið
undantekning frá reglunni. Reggie
Millererein besta skytta deildarinnar
þegar hann er heitur, Dale Davis er
góður frákastari og Detlef Schrempf
er einn besti framherji deildarinnar.
Liðið hefur fjórum sinnum í röð kom-
ist íúrslitakeppninaen alltaf fallið úr í
fyrstu umferð. Mikilla breytinga er
þörf ef liðið ætlar sér að ógna stór-
veldunum að ráða.
6. Detroit Pistons: Það er kalt á
toppnum en líklega er kaldara í
kjallaranum þar sem Detroit liðið
dvelur núna. Allt virðist ganga á aft-
urfótunum hjá liðinu en þetta fyrrum
stórveldi er byrjað að byggja upp fyrir
framtíðina. Liðið er núna eitt léleg-
asta frákastalið deildarinnar eftir að
Pistons lét Rodman í skiptum fyrir
Sean Elliott. Isiah Thomas og Bill
Laimbeer eru útbrunnir en það verð-
ur gaman að fylgjast með Elliott og
Joe Dumars sem nú er besti skotbak-
vörður deildarinnar.
7. Milwaukee Bucks: Liðið er
að byggja upp fyrir framtíðina og Mi-
ke Dunleavy hefur nægan tíma til að
fínpússa liðið. Efniviðurinn erágætur
og má í þvf sambandi nefna Eric Mur-
dock, Lee Mayberry og Todd Day.
Blue Edwards og Ken Norman verða
aðalmenn liðsins í vetur en þetta
verður erfitt tímabil. Liðið vantar til-
finnanlega háa menn og getur liðið
ekki vænst góðs árangurs fyrr en góð-
ur frákastari fæst og vörnin batnar.
Atlantshafsriðill
í fyrra var New York langsterkasta
lið riðilsins, vann 60 leiki, Boston
komáóvartognáði aðvinna48 leiki,
New Jersey olli vonbrigðum með því
að vinna aðeins 43 leiki og Orlando
bætti sig stórlega. í fyrra settu meiðsli
mikinn svip á keppnina í riðlinum.
Leikmenn Boston eyddu meiri tíma á
sjúkrabörum en inni á leikvelli. Leik-
menn New Jersey urðu fyrir slæmum
áföllum og Miami var ekki svipur hjá
sjón sökum meiðsla leikmanna. í vet-
ur er búist við hörkubaráttu í riðlin-
um þrátt fyrir að hann hafi verið sá
veikasti ídeildinni ífyrra. Lítum nán-
ar á liðin:
Það verða engin vettlingatök í NBA í
vetur.
1. New York Knicks*: Margir
telja að ekkert lið hafi verið sterkara
en New York í fyrra og má segja að
leikmenn eigi harma að hefna. Til að
vinna deildina í vetur þarf liðið að
fínpússa sóknarleikinn og bæta víta-
hittnina. Patrick Ewing á góðan
möguleika á að verða kosinn besti
leikmaður deildarinnar og John
Starks gæti vel fundið sér pláss í
stjörnuleiknum. Jaxlar á borð við
Anthony Mason, Charles Oakley og
Greg Anthony gefa andstæðingum
engin grið og enn sem fyrr verður
vörnin aðalsmerki liðsins.
2. Orlando Magic*: Með nýjan
þjálfara, Brian Hill, og leikstjórnand-
ann unga, Anfernee Hardaway, inn-
anborðs á Magic eftir að geta velgt
hvaða liði sem er undir uggum. Trú-
legt er að þeir félagar, Hardaway og
nýliði ársins í fyrra, Shaquille O'Ne-
al, eigi eftir að einoka deildina á
tíundaáratugnum líktogMagicJohn-
son og Kareem Abdul-Jabbar gerðu á
níunda áratugnum. Enn er ekki
minnst á Nick Andersson, einn besta
skotbakvörð deildarinnar, og Dennis
Scott sem er ein albesta skyttan í
55