Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 56

Íþróttablaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 56
Chris Webber, sem var valinn fyrstur í „draftinu", hefur átt við meiðsli að stríða að undanförnu. heiminum. Ef enginn af þeim leik- mönnum, sem minnst hefur verið á, lendir í meiðslum ætti liðið að ná að vinna 50 leiki í vetur. 3. New Jersey Nets*: Þrátt fyrir sorglegt fráfall Drazen Petrovic getur liðið haldið áfram að bæta sig. Derr- ick Coleman er einn 10 bestu leik- manna deildarinnar og Kenny And- erson sannaði í fyrra að hann getur orðið einn besti leikstjórnandi deild- arinnar. Liðið þarf á honum að halda ef það ætlar sér að komast í úrslita- keppnina (liðið tapaði 10 af síðustu 11 leikjum sínum án Anderson síðast- liðinn vetur). Sam Bowie erfarinn frá liðinu og til þess er kominn vand- ræðagemlingur Benoit Benjamin. Nets verður hart í horn að taka og gæti veitt Orlando töluverða sam- keppni. 4. Miami Heat*: Sökum meiðsla náði liðið aðeins einu sinni að stilla upp 5 bestu leikmönnum sínum allan síðastliðinn vetur. Rony Seikaly var þó sterkur í miðjunni og Grant Long var frábær í stöðu kraftframherja. Glen Rice náði aldrei að sýna sitt rétta andlit. Liðið gæti tekið algjörum stakkaskiptum með Steve Smith í fullu fjöri. Hann er besti leikmaður liðsins og ætti að komast í stjörnu- leikinn í febrúar. Troðslukóngurinn Harold Miner fær meiri leiktíma og á möguleika á framfaraverðlaununum í vor. Liðið ætti að komast í úrslita- keppnina og gæti vel komist hærra í riðlinum. 5. Washington Bullets: Það hljómar kannski ekki sennilega en Kevin Duckworth á eftir að hjálpa liðinu töluvert ívetur. Pervis Elison er of lítill og aumur til að vera miðherji í NBA-deildinni og hentar betur í stöðu kraftframherja. Calbert Chean- ey, frá Indiana háskólanum, verður skemmtilegur á að horfa og eiga Tom Gugliotta og Doug Overton, nýliðar frá í fyrra, eftir að vera liðinu mikil- vægir. Rex Chapman þarf að vera heill og Michael Adams þarf að eiga gott tímabil til að Washington verði sér ekki til skammar í vetur. 6. Boston Celtics: Allt hefur gengið á afturfótunum hjá stórveld- inu undanfarin ár. Larry Bird neydd- ist til að hætta og nú í sumar lést fyrirliði liðsins, Reggie Lewis. Kevin McHale er hættur og liðið er vægast sagt vængbrotið. Xavier McDaniel kemur til með að gegna þýðingar- mesta hlutverkinu í vetur. Dee Brown, Kevin Gamble, Robert Parish og Ed Pickney verða einnig að standa fyrir sínu. Sherman Douglas verður leiksjórnandi og fær tækifæri til að sanna sig. Gamla veldið er að hruni komið og nú verður að huga að end- urnýjun. 7. Philadelphia 76ers: Risinn Shawn Bradley (228 sm)erósköp lík- ur Manute Bol í vextinum en Bradley er sagður vera snöggur og hittinn. Auðvitað er ekkert verra að geta troð- ið án þess að hoppa. Moses Malone var fenginn til að vera kennari og varamaður risans. Jeff Hornacek er mjög góður bakvörður en Malone og Eddie Johnson (fékkst frá Seattle) eru of gamlir, enginn veit hvernig Brad- ley mun standa sig og Clarance Weatherspoon er bara efnilegur enn- þá. Það gæti orðið grátbroslegt að fylgjast með liðinu í vetur því það er líklega slakasta liðið í deildinni. Miðvesturriðill Það var Houston Rockets sem bar höfuð og herðar yfir önnur lið Mið- vesturriðilsins á síðasta leikári með því að sigra í 55 leikjum eða 6 leikj- um meira en næsta lið sem var San Antonio Spurs. Eftir lélega byrjun tóku liðsmenn San Antonio sig sam- an í andlitinu og má því einkum þakka frábærum árangri þjálfarans skrautlega John Lucas sem tók við af Jerry Tarkanian eftir 19 leiki. Utah dalaði á sama tíma og Denver tók miklum framförum. Lestina ráku svo Minnesota og Dallas sem unnu aðeins samtals 30 leiki. En hvað ætli veturinn beri í skauti sér? Tekst Barkley að verða meistari með Suns á sínu 10. keppnistímabili í NBA boltanum? 1. San Antonio Spurs *: Með þvf að fá framherjann Dennis Rodman til liðsins í október s.l. fyrir Sean Elliot hefur San Antonio stigið stórt skref í 56
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.