Íþróttablaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 57
átt að meistaratitlinum. Rodman, sem er langbesti
frákastarinn í NBA, styrkir liðið mikið í þeim þætti
því San Antonio varð í 19. sæti yfir fjölda frákasta á
síðasta keppnistímabili. Framlína liðsins verður því
óhugnanlega sterk með hann, Terry Cummings,
Antonie Carr og sjálfan „aðmírálinn" David Robin-
son innanborðs. Mikið mun velta á leik Robinson
sem vafalaust er staðráðinn í að sanna sig eftir
fremur mistækt tímabil í fyrra.
2. Houston Rockets *: Eftir að hafa unnið
Miðvesturriðilinn 1992-'93 í fyrsta sinn í sjö ár
koma liðsmenn Houston banhungraðir til leiks til
að sanna að síðasti vetur hafi ekki verið nein hunda-
heppni. Mikilvægasti leikmaður liðsins, Hakeem
Olajuwon, hefur aldrei verið eins góður og einmitt
nú og það var kannski hann sem átti skilið að verða
valinn besti leikmaður NBA 1993. Fyrir utan hann
er Houston bara ósköp venjulegt lið. Framherjarnir
Otis Thorpe og Robert Horry eru stöðugir leikmenn
en ekki er hægt að segja það sama um bakvarðapar-
ið Kenny Smith og Vernell Maxwell sem eiga sjald-
an tvo góða leiki í röð.
3. Utah Jazz*: Utah var það lið sem olli mest-
um vonbrigðum í fyrra eftir að margir körfubolta-
sérfræðingar höfðu spáð liðinu góðu gengi. Leik-
stjórnandinn, John Stockton, virkaði mjög þreytu-
legur eftir Ólympíuleikana í Barcelona og hinn bak-
vörðurinn í byrjunarliðinu, Jeff Malone, átti erfitt
uppdráttar í vörninni en hann getur verið baneitrað-
ur í stökkskotunum. Eins og svo oft áður var það
Karl Malone sem hélt liðinu á floti en samt þarf
meira til ætli Utah sér að vera í fremstu röð þetta
árið.
4. Denver Nuggets*: Það vantaði aðeins þrjá
leiki upp á að það hefði verið Denver en ekki Los
Angeles Lakers, hið fornfræga stórveldi, sem hefði
farið í úrslitakeppnina s.l. vor. Denver vann 36 leiki
þrátt fyrir að hafa á tímabili tapað 14 leikjum í röð.
Liðið er byggt upp á nokkrum stórefnilegum leik-
mönnum sem eiga eftir að láta mikið að sér kveða á
næstu árum. Mahmoud Abdul-Rauf (áður Chris
Jackson) og Reggie Williams eru með betri sóknar-
mönnum NBA og LaPhonso Ellis og súdanski mið-
herjinn Dikembe Mutombo eru virkir á báðum end-
um vallarins.
5. Dallas Mavericks: Hver er munurinn á
Dallas og Víkingi? Svar: Dallas tapar fleiri leikjum.
Svona aulabrandarar hafa gengið manna á milli
upp á síðkastið enda er það sögulegt að sjá NBA lið
tapa 71 leik eins og raunin varð með Dallas s.l.
vetur. Allt gekk á afturfótunum í herbúðum liðsins
þangað til samið var við Jimmy Jackson síðla tíma-
bils. Hann, leikstjórnandinn skemmtilegi Derek
Harper, sem eralmennttalinn vera besti leikmaður-
inn sem ekki hefur verið valinn í stjörnuleikinn, og
Einmitt mjólkin
sem vantaði
Fjörmjólk er nýjung sem er í fullu
samræmi við nýjan lífsstíl. Fjörmjólkin*
er næringarrík, létt og frískandi og
því kjördrykkur þeirra sem r hugsa vel
um heilsu sína og útlit.
Fjörmjólk líkist léttmjólk PLpL hvað
varðar lit og bragð og hún er fitulítil
eins og undanrenna. Fjörmjólk er ríkari af
próteini og kalki en önnur mjólk og
í hana er sett^ -vítamín sem hjálpar’^^-
líkamanum að vinna kalkið úr fæðunni.
Fjörmjólk verður án efa drykkur dagsins
hjá fjölmörgum - bæði vegna
bragðsins og innihaldsins.
Fjörmjólk - drykkur dagsins