Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 58

Íþróttablaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 58
Ewing og Shaq kasta mæðinni í kór eftir mikil átök. nýliðinn Jamal Mashburn, sem íþróttablaðið spáir að verði nýliði ársins, sjá til þess að sama sagan end- urtaki sig ekki aftur. 6. Minnesota Timberwolves: Nú þykir mörgum vera kominn tími til að Minnesota fari að sýna ein- hvern árangur, a.m.k. eru áhorfendur í Target Center, heimavelli liðsins, orðniróþolinmóðir. En kannski verð- ur breyting hér á í vetur. Spennandi verður að fylgjast með leik framherj- ans og ólympíufarans Christian La- ettner og bakvarðarins Doug West sem tók stórstígum framförum í fyrra. Margir spá nýliðanum Isaiah Rider góðu gengi enda er hann einn besti sóknarmaðurinn sem komið hefur úr háskólunum í langan tíma. Kyrrahafsriðill. Það eru margir sem telja Kyrra- hafsriðilinn vera sterkasta riðilinn í NBA enda unnu 3 lið 50 leiki eða fleiri í fyrra. Phoenix Suns, sem vann flesta leiki í deildakeppninni í fyrra, eða 62, verður erfiður keppinautur í vetur og það sama má segja um lið Seattle Supersonics sem hefur tekið stórstígum framförum eftir að George Karl tók við liðinu 1992. Bæði Port- land Trail Blazers og Golden State Warriors munu veita hinum liðunum verðuga keppni og svo má ekki gleyma Los Angeles Clippers, Los Angeles Lakers og Sacramento Kings sem öll eru stór spurningamerki. Greinarhöfundar spá liðunum eftir- farandi gengi: 1. Phoenix Suns*: Hversu mikil áhrif hafði koma Charles Barkley á Phoenix liðið á síðasta tímabili? Jú, liðið vann Kyrrahafsriðilinn í fyrsta sinn síðan 1981 og það komsteinnig í úrslitaleikina í fyrsta sinn í 17 ár. Sir Charles er besti framherjinn (ef ekki besti leikmaðurinn) í NBA og með samherja á borð við Kevin Johnson, Dan Majerle og Cedric Ceballos er liðið ekki árennilegt. Richard Dum- as, skotframherjans unga, sem var settur í eins árs bann af liði sínu eftir að hann neitaði að fara í lyfjapróf, verður sárt saknað. Skarð hans fyllir baráttujaxlinn A.C. Green, sem er nýkominn frá L.A. Lakers, og er það vel. 2. Seattle Supersonics *: Ekk- ert lið ÍNBA hefuráeinsgóðum hópi að skipa og Seattle. Liðið er vel sett í öl I um stöðum og ætlar sér þess vegna stóra hluti í vetur. Shawn Kemp er orðinn ein af stórstjörnum deildar- innar og Kendall Gill, sem kom frá Charlotte Hornets, væri einnig kom- inn í sama klassa ef hann hefði nennt því! Gary Payton, Derrick McKey og Rickey Pierce eru á góðum degi stór- hættulegir. Þetta er eitt sterkasta lið sem Seattle hefur átt og því mun allt kapp vera lagtáaðvinnatil meistara- titilinsins. 3. Portland Trail Blazers *: Nú eraðduga eðadrepastfyrir liðsmenn Portland. Þetta lið, sem svo oft hefur verið spáð sigri undanfarin ár, fær nú örugglega sitt sfðasta tækifæri áður en tekið verður til þess bragðs að stokka það upp. Stjarna Portland er eins og áður Clyde Drexler sem var mikið meiddur í fyrra. Menn eru orðnir nokkuð hræddir um að hnén á honum séu farin að gefa sig og því gæti þetta orðið síðasta árið sem við sjáum Drexler í essinu sínu. Hinn fjölhæfi framherji Cliff Robinson bíð- ur þolinmóður eftir að fá að sanna sig ogekki mágleymaþeimTerry Porter, Rod Strickland og Buck Williams. 4. Golden State Warriors *: Segja má að síðasta tímabil hafi verið liðinu einskisvert. Don Nelson, þjálf- ara liðsins, tókst aldrei að stilla upp sínu besta liði því alltaf settu meiðsl leikmanna hans strik í reikninginn. Chris Mullin og Tim Hardaway munu halda áfram uppteknum hætti og vera besta sóknarpar NBA og ungu strákarnir Billy Owens, Latrell Sprewell og nýliðinn Chris Webber, sem var fyrstur valinn í síðasta há- skólavali, munu ekki láta sitt eftir liggja. Elsti leikmaður Golden State er Chris Mullin, sem er aðeins þrítug- ur, svo að tímabilið gæti verið byrj- unin á miklum sigurtímum hjá félag- inu. 5. Los Angeles Lakers: Sú var tíðin að bóka mátti Lakers í úrslitun- um en það er liðin tíð. Síðan „Magic" Johnson varð að draga sig í hlé, árið 1991, hefur leið liðsins legið niður á viðen eitter víst aðþað verðurekki til frambúðar. Jerry West, fram- kvæmdastjóri félagsins, hefur ekki setið auðum höndum við að leita að leikmönnum í framtíðarlið sittog hef- ur fengið þá Anthony Peeler, Doug Christie og nú síðast George Lynch 58
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.