Íþróttablaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 60
AHEIMAVELLI
Platt hefur víða komið við.
PLATT SÁ DÝRASTI
DAVID PLATT hefur verið seldur fyrir
samtals 17,4 milljónir punda á knattspyrnu-
ferlinum en það samsvarar 1,7 milljarði ís-
lenskra króna. Enginn annar leikmaður í
heiminum hefur verið seldur fyrir jafn háa
upphæð. Platt hefur leikið fyrir Crewe, Ast-
on Villa, Bari og Juventus en núna leikur
hann með Sampdoria. Það er með ólíkind-
um að þessi dýri leikmaður skuli hafa fengið
frjálsa sölu frá Manchester United á sínum
yngri árum!
Ruud Gullit.
Gazza lætur dómarana fá það óþvegið! Ekki í fyrsta skipti!
GAZZA Á ÚTOPNU
Ritstjóri hins virta tímarits WORLD
SOCCER, Keir Radner, hefur ekki mikla trú á
því að enski landsliðsmaðurinn, PAUL
GASCOIGNE sem leikur með Lazio, endist
lengi sem toppleikmaður. Radner fylgdist
með leik Tottenham og Lazio á æfingamóti í
Englandi fyrir keppnistímabilið þar sem
Tottenham sigraði 3:2. Gazza naut hylli
áhangenda Tottenham í upphafi leiks en
þegar leið á leikinn var byrjað að púa á
hann. Framkoma hans á vellinum við leik-
menn og dómara var ekki til fyrirmyndar og
hvetur ritstjórinn fólk til þess að sjá Gazza
leika hið fyrsta því hann telur að hann muni
brátt hverfa af sjónarsviðinu.
ÚT MEÐ ÞIG KARLINN!
RUUD GULLIT, sem hefur flutt sig um set
á Ítalíu og leikur nú með Sampdoria, vissi
ekki hvaðan á sig stóð veðrið um daginn
þegar hann tölti inn í bakarí á leið heim frá
ströndinni og ætlaði að kaupa sér brauð.
Hann var varla búinn að skima eftir girnileg-
asta brauðhleifnum þegar eigandi bakarís-
ins, hin 75 ára Norma Pandolfini, sagði:
„Nei, takk. Eg vil ekkert í dag. Svona hunsk-
astu héðan út.“
Gullit hrökklaðist út úr bakaríinu og velti
því fyrir sér hvort mannasiðir á suður Ítalíu
væru öðruvísi en í Mílanó. Hann komst fljótt
að hinu sanna því Norma hélt að Gullit væri
einn af hinum þúsund Afríkubúum sem ráfa
um götur í Sampdoria og selja útvörp, boli
og annan ódýran varning.
NÝSTÁRLEGAR
Janus Guðlaugsson.
AÐFERÐIR
JANUS GUÐLAUGSSON, sem tók við
þjálfun KR í fótbolta eftir að Ivan Soccor,
var rekinn, þótti brj'dda upp á ýmsum
nýjungum í knattspyrnuþjálfun sem
fengu misgóðar undirtektir. Hann átti
víst að hafa tekið upp bolta á fyrstu æf-
ingunni, sem hann stjórnaði, og sagt að
þetta væri fótbolti. Svo rakti hann víst
öll undirstöðuatriði knattspyrnunnar. Á
annarri æfingu lét hann alla leikmenn
halda í sarna léreftsdúkinn þegar þeir
hituðu upp — til þess að sýna sarn-
stöðu, en það sem vakti hvað mesta
athygli í þjálfun Janusar var fjallgangan.
í stað þess að æfa á KR-velIinum fór
hann með leikmenn í fjallgöngu og á
leiðinni niður áttu þeir að yrkja ljóð. Því
fylgdi ekki sögunni hvort von væri á
ljóðabók um jólin eftir meistaraflokk KR!
60