Íþróttablaðið - 01.10.1993, Side 62
Kristrún Heimisdóttir á erfitt með að
sleppa fótboltaskónum þótt hún sé
hætt að sparka.
Kristrún Heimisdóttir
KR.
(Kristrún hefur lýst því yfir að
hún sé hætt í fótbolta, aðeins 22
ára gömul. Hún er í landsliðinu
og íslandsmeistaraliði KR)
Er þetta ekki fljótfærni hjá
þér, Kristrún?
„Nei, ég held að þetta sé ekki fljót-
færni hjá mér. Ég er búin að hugsa
þetta mál mikið og niðurstaðan er
mjög yfirveguð. Mér finnst ég vera að
hætta af mjög ánægjulegri ástæðu.
Standardinn á knattspyrnunni er orð-
inn það hár að það þýðir ekki lengur
að vera í þessu með annan fótinn.
Mér finnst ég reyndar ekki vera að
hætta á toppnum þannig séð að ég
held að ég geti orðið betri en ég er í
dag. Ég er reyndar búin að vera mjög
lengi í fótbolta því ég byrjaði mjög
ung. Það var mjög erfitt að hætta
núna og ég var alveg niðurbrotin eftir
síðasta leikinn. Ég hef tekið eftir því
að sumir taka bara alls ekkert mark á
mér og trúa því ekki að ég sé að
hætta. Égvildi hinsvegar ekki hætta í
KR fyrr en við værum búnar að vinna
titil."
AHEIMAVELLÍ
FRÍMERKI -
KROSSFISKUR?
I tímariti Glímusambands íslands, AF
GLÍMU, er mynd af glímufrímerki sem var
gefið út fyrir tveimur árum. Glímumenn eru
sagðir lítt hrifnir af merkinu, sem skiljanlegt
er, og hefur það vafist fyrir þeim hvað mynd-
in á merkinu eigi að tákna. Margir eru þeirr-
ar skoðunar að myndin sýni armstýfðan
krossfisk og finnst þeim merkið eiga lítið
skylt við glímu.
BEINT í MARK!
Þegar háskólalið MICHIGAN í körfubolta
var á síðustu æfingunni fyrir leik gegn Iowa
kallaði Bill Frieder þjálfari leikmennina sam-
an og jós yfir þá skömmunum sökum áhuga-
og einbeitingarleysis fyrir Ieikinn. Frieder
trompaðist gjörsamlega og Fisher, aðstoð-
arþjálfari hans, stóð undrandi við hlið hans.
Þegar leikurinn við Iowa hófst degi síðar
kom bolti skyndilega skoppandi í áttina að
Frieder þjálfara sem var ekkert að tvínóna
við hlutina heldur sparkaði í hann af öllu afli.
Til allrar óhamingju fór boltinn beint í andlit
aðstoðarþjálfarans sem steinlá fyrir vikið.
Flestir héldu að mannræfillinn lægi dauður
á gólfinu en hann slapp með glóðarauga og
marbletti. „Ég held ég hafi að minnsta kosti
náð athygli strákanna,“ sagði Frieder eftir
atvikið.
EIN MEÐ ÖLLU
Árið 1985 var UTAH JAZZ að spila við LA
LAKERS í Forum í NBA boltanum. Þegar vel
var liðið á leikinn og Lakers var að góðri leið
með að gjörsigra Utah fór FRANK LAYDEN,
þjálfari Utah, að finna til svengdar. Hann leit
í kringum sig og sá að margir aðdáendur
Lakers voru að yfirgefa húsið enda ljóst hver
sigurvegarinn yrði. „Hvurn andskotann er
ég svo sem að gera hér?“ sagði Layden við
sjálfan sig og ákvað að fá sér í svanginn á
veitingastað fyrir utan höllina. Hann sagði
aðstoðarmanni sínum að reyna að koma í
veg fyrir stórslys inni á vellinum.
Á leið sinni gekk Layden fram hjá vara-
mannabekk Lakers og þá spurði Pat Riley,
þjálfari Lakers, hvort búið væri að reka hann
út af. „Nei, ég er bara svangur," svaraði
Layden fúll og bætti við: „Viltu ekki koma
með mér?“
„Ertu að grínast?“ spurði Riley í forundr-
an. Þegar Layden var að panta sér samloku
á veitingastaðnum sagði afgreiðslumaður-
inn: „Þú ert alveg eins og Frank Layden,
þjálfari Utah. Liðið er að spila núna og hann
kemur örugglega hingað á eftir. Ég get svar-
ið það — þið eruð tvífarar." Sagan segir að
Layden hafi orðið kjaftstopp en þó hámað í
sig samlokuna.
Burstalaus bílaþvottastöð
BÓN- OG ÞVOTTASTÖÐIN HF.
Sigtúni 3, sími 14820
62