Fréttablaðið - 08.07.2020, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 5 0 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 8 . J Ú L Í 2 0 2 0
Góðar
á grillið
í kvöld!Besta
uppskeran
núna!
Börnin léku við hvern sinn fingur í rjómablíðunni við Elliðaár í gær og kældu sig í ánni. Veðurstofan spáir blíðviðri um land allt á morgun og tíu til átján gráða hita, hlýjast í innsveitum.
Skammt þar frá sem börnin voru að leik var torkennilegur froðuf lekkur. Lesa má um tilurð hans og sambærilegrar froðumyndunar í ám á síðu 4 í blaðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
SJÁVARÚT VEGUR Útf lytjendur
íslenskra sjávarafurða hafa þurft
að bregðast við breyttum veru-
leika erlendis í kjölfar kórónavei-
rufaraldursins. Minni tíðni f lug-
ferða til erlendra áfangastaða hefur
dregið úr framboði f lugfraktar, en
minni eftirspurn fersks sjávar-
fangs erlendis spilar einnig hlut-
verk. Matvöruverslanir í Banda-
ríkjunum og Bretlandi hafa víða
lokað fiskborðum í kjölfar aðgerða
stjórnvalda ytra.
Minnkandi eftirspurn hótela í
Evrópu hefur einnig sitt að segja
þar sem ferðamennskugeirinn
hefur hrunið um víða veröld, að
sögn viðmælenda Markaðarins.
– thg / sjá Markaðinn
Aukin áhersla á
frystar afurðir
VIÐSKIPTI Kvika banki hafnaði skrif-
legri beiðni stjórnenda TM undir lok
síðasta mánaðar um að hefja form-
legar sameiningarviðræður.
Viðræðurnar áttu, samkvæmt til-
lögum TM, meðal annars að grund-
vallast á því að tryggingafélagið yrði
metið á nokkuð hærra verði en fjár-
festingabankinn við mögulegan sam-
runa. Stjórn Kviku taldi hins vegar
engar forsendur til að hefja formlegar
viðræður á þeim grunni.
Samkvæmt heimildum gerði upp-
legg TM ráð fyrir því að skiptihlut-
föllin yrðu þannig að hlutafé trygg-
ingafélagsins yrði um 55 prósent í
sameinuðu félagi á meðan hlutafé
Kviku banka yrði þá á móti liðlega
45 prósent. – hae / sjá Markaðinn
Höfnuðu að TM
væri verðmeira
VIÐSKIPTI Þrír hluthafar Hvals, sem
ráða yfir 5,3 prósenta hlut, hafa höfð-
að mál gegn félaginu og krafist þess
að hlutir þeirra verði innleystir gegn
greiðslu að fjárhæð samtals um 1.563
milljóna króna auk dráttarvaxta.
Saka hluthafarnir, sem eru félög
í eigu feðganna Einars Sveinssonar
og Benedikts Einarssonar og Ingi-
mundar Sveinssonar, bróður Einars,
framkvæmdastjóra og stærsta ein-
staka hluthafa Hvals, Kristján Lofts-
son um að hafa með kaupum hans
á hlutum í Hval á „verulegu undir-
verði“ og fráfalli stjórnar félagsins á
forkaupsrétti sínum að þeim, „aflað
[Kristjáni] ótilhlýðilegra hagsmuna“
á kostnað annarra hluthafa.
Fara þeir fram á að við inn-
lausn bréfanna verði upplausnar-
virði Hvals lagt til grundvallar.
Miðað við gengið í kröfum
sínum áætla þeir að upp-
lausnarvirði Hvals sé
um 30 milljarðar.
Kristján segir að
kröfur hluthafanna
þriggja, um að vera
keyptir út miðað við upplausnar-
virði Hvals, feli í reynd í sér að félagið
verði leyst upp. „Verði fallist á kröf-
urnar getum við átt von á því að
aðrir hluthafar komi í kjölfarið
og fari fram á að vera keyptir út
á sama gengi og félaginu yrði því
slitið. Ég tel hins vegar að vilji
meginþorra hluthafa Hvals
standi ekki til þess.“
Hvalur er eitt stöndugasta
f jár festingafélag lands-
ins með 25 milljarða eigið
fé. – hae / sjá Markaðinn
Hluthafar stefna Hval
Einar Sveinsson, Benedikt Einarsson og Ingimundur Sveinsson krefjast inn-
lausnar á bréfum. Kristján Loftsson segir kröfuna þýða að félagið yrði leyst upp.
Kristján Loftsson