Fréttablaðið - 08.07.2020, Qupperneq 16
6,7
milljarðar króna námu
vaxtaberandi skuldir við
árslok.
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
GÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR
588 80 40
www.scanver.is
RAFMÓTORAR
Vélsmiðjan VHE, sem fór í greiðslustöðvun í apríl, tapaði 981 milljón króna árið
2019. Til samanburðar hagnaðist
fyrirtækið um 32 milljónir árið
áður. Tekjurnar drógust saman um
níu prósent á milli ára og námu 8,8
milljörðum króna árið í fyrra.
Eigið fé fyrirtækisins var 577
milljónir króna við árslok 2019 og
skuldir námu 9,7 milljörðum króna.
Eiginfjárhlutfallið var sex prósent
við árslok. Vaxtaberandi skuldir
námu 6,7 milljörðum króna. Fram
hefur komið í Markaðnum að Lands
bankinn er aðallánveitandi VHE.
VHE, sem er að mestu í eigu
Unnars Steins Hjaltasonar, sagði
í tilkynningu í apríl að greiðslu
stöðvunina mætti einkum rekja
til þungra áfalla byggingardeildar
félagsins síðustu misseri, vegna
g reiðsluvanda v iðsk ipt av ina .
Grunnreksturinn væri traustur.
Fram hefur komið í Markaðnum
að eigendur VHE hafi byggt upp
eigið fé í systurfélaginu Nesnúpi
á undanförnum árum. Það hefur
staðið að framkvæmdum að Hafn
arbraut í Kópavogi, Eskivöllum í
Hafnarfirði, Holtsvegi í Garðabæ og
í Skarðshlíð. Eignir félagsins námu
tæplega 3,4 milljörðum króna í lok
árs 2018 og eigið fé rúmlega 300
milljónum. Markaðurinn greindi
frá því að Íslandsbanki væri stærsti
lánveitandi Nesnúps.
Rekstur VHE hefur gengið erfið
lega frá því að lán frá Landsbank
anum tóku stökkbreytingu í kjöl
far bankahrunsins 2008. VHE er
rótgróið fyrirtæki, stofnað 1971,
sem var byggt upp á þjónustu við
álver. – hvj
VHE tapaði um milljarði króna í fyrra
MARKAÐURINN
ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5051
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is
Kvika banki hafnaði sk r i f leg r i beiðn i stjórnenda TM undir lok síðasta mánaðar, um að hefja formlegar sameiningar
viðræður en þær áttu, samkvæmt
tillögum TM, meðal annars að
grundvallast á þeim skilmálum
að tryggingafélagið yrði metið á
nokkuð hærra verði en fjárfestinga
bankinn, við mögulegan samruna
félaganna. Stjórn Kviku taldi hins
vegar engar forsendur til að hefja
formlegar viðræður á þeim grunni.
Samkvæmt heimildum Markað
arins var gert ráð fyrir því í uppleggi
TM að skiptihlutföllin yrðu þannig
að hlutafé tryggingafélagsins yrði í
kringum 55 prósent í sameinuðu
félagi, á meðan hlutafé Kviku banka
yrði þá á móti liðlega 45 prósent.
Miðað við það áttu hlutabréf Kviku
að vera metin á aðeins lítillega
hærra verði en á markaði í dag, eða
um 10,2 krónur á hlut – gengið
stendur nú í 9,6 krónum á hlut – og
að markaðsvirði bankans væri því
talið vera rúmlega 20 milljarðar
króna. Markaðsvirði TM stendur
hins vegar í um 25 milljörðum
króna.
Ósk TM um að hefja sameiningar
viðræður, sem var komið á framfæri
með bréfi til stjórnar Kviku banka
föstudaginn 26. júní síðastliðinn,
kom í kjölfar óformlegra samtala
sem höfðu áður átt sér stað milli
æðstu stjórnenda, um að kanna
fýsileika þess að sameina félögin.
Samkvæmt heimildum Markaðar
ins var bréfi TM svarað tveimur
dögum síðar og beiðni um að hefja
formlegar viðræður, sem fyrr
segir, hafnað af stjórn bankans. Að
óbreyttu er ekki talinn grundvöllur
til að fara í slíkar viðræður, enda sé
það mat stjórnenda Kviku að ekkert
réttlæti að TM verði metið á hærra
verði en bankinn.
Greint var frá því í Markaðnum í
síðustu viku að stjórnendur Kviku
og TM hefðu að undanförnu átt í
óformlegum samtölum um mögu
lega sameiningu félaganna – nú
síðast um þarsíðustu helgi – en
ekki hefði náðst samkomulag um
undirritun viljayfirlýsingar um
að hefja formlegar viðræður. Því
væru viðræðurnar, að sögn nokk
urra sem komu að þeim, á ís eins og
sakir stæðu.
TM og Kvika sáu ástæðu til að
senda frá sér tilkynningu í kjölfar
fréttar Markaðarins og sagðist TM
vilja „árétta að engar viðræður væru
í gangi um mögulegan samruna
[félaganna], né væru slíkar viðræður
fyrirhugaðar.“
Starfsemi félaganna er um margt
talsvert ólík. Kvika banki, sem hefur
orðið til úr sameiningu fjölmargra
fjármálafyrirtækja á undanförnum
árum, skilgreinir sig sem sérhæfðan
fjárfestingabanka, sem leggi áherslu
á eignastýringu fjárfestingastarf
semi. Með kaupum TM á eigna
leigufyrirtækinu Lykli, sem gengu
í gegn í janúar á þessu ári, bættist
þriðja stoðin undir starfsemi trygg
ingafélagsins, ásamt vátrygginga
starfsemi og fjárfestingum.
Samkvæmt viðmælendum Mark
aðarins, sem þekkja vel til viðræðna
félaganna að undanförnu, er ljóst
að stjórnendur TM horfa einkum
til þeirrar samlegðar sem myndi
fást með því að renna Lykli saman
við þá bankastarfsemi sem er fyrir
hendi innan Kviku banka. Yfirlýst
áform TM hingað til hafa verið að
sækjast eftir viðskiptabankaleyfi
fyrir Lykil þannig að félagið, sem
hefur að stærstum hluta verið að
bjóða upp á fjármögnun bíla og
atvinnutækja, geti farið að byrja að
bjóða upp á innlán.
Stærstu hluthafar TM eru fjárfest
ingafélagið Stoðir, Lífeyrissjóður
verslunarmanna, Gildi lífeyrissjóð
ur og Lífeyrissjóður starfsmanna
ríkisins (LSR). Lífeyrissjóður versl
unarmanna og LSR eru sömuleiðis
á meðal umsvifamestu hluthafa í
Kviku banka, en stærsti einkafjár
festirinn í eigendahópi bankans,
með tæplega 6,8 prósenta hlut, er
eignarhaldsfélagið SNV í eigu Svan
hildar Nönnu Vigfúsdóttur.
Hagnaður TM á árinu 2019 nam
1.866 milljónum króna eftir skatta.
Afkoman var drifin áfram af fjár
festingatekjum upp á 2.945 millj
ónir króna, sem jafngilti rúmlega
10 prósenta ávöxtun á eignasafn
félagsins. Hagnaður Kviku banka
var hins vegar 2.660 milljónir eftir
skatta í fyrra og var arðsemi bank
ans á eigin á fé um 21 prósent.
Höfnuðu að TM yrði
metið á hærra verði
TM óskaði eftir formlegum sameiningarviðræðum við Kviku, með bréfi til
stjórnar bankans í lok síðasta mánaðar. Hlutafé TM átti að vera í kringum 55
prósent í sameinuðu félagi. Kvika hafnaði alfarið viðræðum á þeim grunni.
Sigurður Viðarsson, forstjóri TM. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Sjóðastýringarfélagið Júpíter, sem er dótturfélag Kviku banka, hefur komið á fót sjóðnum ACF
III slhf., en um að ræða samlagshluta
félag sem mun koma að fjármögnun
fyrirtækja. Heildaráskriftaloforð
sjóðsins, sem er í eigu f lestra af
stærstu lífeyrissjóðum landsins,
nema 19,5 milljörðum króna og er
fjárfestingatímabil hans þrjú ár. Sjóð
urinn mun fjárfesta í skuldabréfum
og lánum til fyrirtækja, einkum með
veði í fasteignum og fastafjármunum.
Ekki hefur verið stofnaður jafn stór
fjárfestingasjóður hér á landi síðan
Framtakssjóður Íslands var settur á
fót í árslok 2009.
Hannes Fr ímann Hrólfsson,
framkvæmdastjóri Júpíters, segir
góðan árangur fyrri sjóða og traust
fjárfesta endurspeglast í frábærri
þátttöku í ACF III. „Sjóðurinn er sá
stærsti sinnar tegundar á Íslandi og
stofnun hans er afar jákvætt skref
í örum vexti og uppbyggingu Júpí
ters.“ Vinna við stofnun sjóðsins hófst
í janúar á þessu ári.
Fyrir rekur Júpíter fjölmarga sjóði
sem koma að fjármögnun fyrirtækja
með mismunandi hætti en félagið er
með heildareignir í stýringu að fjár
hæð um 150 milljarða króna,
Sé litið til stærðar ACF III þá nemur
umfang sjóðsins um tveimur þriðju
af lánabók Kviku banka, en hún var
tæplega 31 milljarður króna í lok
fyrsta ársfjórðungs.
Framkvæmdastjóri sjóðsins er
Þorkell Magnússon, forstöðumaður
sjóðastýringar hjá Júpíter, en hann
hefur komið að fjármögnun fyrir
tækja í meira en áratug.
Þorkell segir þetta ánægjulega
niðurstöðu eftir langt og stíft ferli
á óvenjulegum tímum. „Eins og hjá
fyrri sjóðum í rekstri félagsins leggj
um við áherslu á að finna áhugaverða
fjárfestingakosti og um leið bæta kjör
fyrirtækja,“ segir hann.
Hagnaður Júpíters eftir skatta í
fyrra nam rúmlega 260 milljónum
króna, borið saman við 82 milljónir
árið áður. Eignir í stýringu jukust um
tæplega 30 milljarða í fyrra. – hae
Júpíter kemur á fót um 20
milljarða fjárfestingasjóði
Hannes Frímann Hrólfsson, framkvæmdastjóri Júpíters. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
45
milljarðar króna er saman-
lagt markaðsvirði Kviku og
TM í dag.
150
milljarðar eru heildareignir
í stýringu Júpíters.
8 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN