Fréttablaðið - 08.07.2020, Blaðsíða 23
Það er um að gera
að nýta fólk sem
þekkir þennan heim vel en
er ekki í lykilsstöðum.
Stafrænt læsi er ekki háð
stöðu innan fyrirtækisins.
Ég notaði tímann í
að byggja 80 fer-
metra við eldhúsið á Kaffi
Krús og keypti nýtt eldhús
frá Þýskalandi.
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
Ve it i n g a m a ð u r i n n Tómas Þóroddsson, sem á og rekur Kaffi Krús og Vor á Sel-fossi, keypti nýverið v e i t i n g a s t a ð i n n
Messann í Lækjargötu. Áfram
verður lögð megináhersla á ferskan
fisk og upplifunin fyrir gesti verður
hin sama og fyrir lokun.
Tómas, sem er mikill áhuga-
maður um knattspyrnu, hefur verið
í framkvæmdahug að undanförnu
og meðal annars byggt 80 fermetra
eldhús við Kaffi Krús, gert Vor að
snertilausum stað, og er að gera upp
ættaróðal sem er um 20 mínútna
akstur frá Selfossi. Auk þess hefur
hann hug á að opna sjávarréttastað
í nýja miðbænum á Selfossi.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Knattspyrna.
Nærðu að halda jafnvægi milli
vinnu og fjölskyldulífs?
Já, það hefur tekist ágætlega í
seinni tíð. Við förum mikið á veit-
ingastaði og ferðumst saman. Ég var
að kaupa ættaróðalið Skógsnes, sem
er um 20 mínútur fyrir utan Selfoss.
Er að gera það upp og þar munum
við vonandi njóta meiri samveru-
stunda.
Gerir upp ættaróðal nálægt Selfossi
Tómas Þóroddsson, sem keypti nýverið Messann á Lækjargötu, hefur hug á að opna sjávarréttarstað í nýja miðbænum á Selfossi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Nám:
Matreiðslumaður frá gamla hótel-
og veitingaskólanum.
Störf:
Yfirmatreiðslumaður, verslunar-
stjóri og sölumaður.
Fjölskylduhagir:
Trúlofaður Idu Sofiu Grundberg.
Börn:
Hildur Svava, Ísak Eldjárn,
Gabriella og Lísbet Dögg.
Svipmynd
Tómas Þóroddsson
Hver hafa verið mest krefjandi
verkefnin á undanförnum miss-
erum?
Það er auðvitað veitingarekstur í
COVID-19, það þarf að aðlaga allt að
gjörbreyttu umhverfi.
Hver jar er u áskoranir nar í
rekstrar umhverf inu og hvernig
hefur þú tekist á við þær?
Áskoranir hafa verið margar í ár.
Ég notaði tímann í að byggja 80 fer-
metra við eldhúsið á Kaffi Krús og
keypti nýtt eldhús frá Þýskalandi.
Ég gerði Vor að alveg snertilausum
stað. Svo var ég að kaupa Messann
Lækjargötu.
Hvers vegna keyptir þú Messann?
Messinn í Lækjargötu hefur
lengi verið einn af mínum uppá-
haldsstöðum. Ég hef hug á að opna
sjávarréttastað í nýja miðbænum
á Selfossi og Messinn smellpassaði
inn í þá mynd.
Á að gera einhverjar breytingar
eða halda í horfinu?
Við munum halda „konseptinu“
og taka reksturinn í gegn.
Ef þú þyrftir að velja annan starfs-
frama, hvað yrði fyrir valinu?
Rithöfundur.
Fyrirtæki eiga það til að gera þau mistök að ráða einhvern til að stýra st a f r ænni u mbrey t-ingu á rekstrinum, en starfsmaðurinn verður
síðan einn á báti í vegferðinni.
Það gerir það að verkum að hann
á erfitt með að vinna vinnustaða-
menninguna á sitt band. „Yfirleitt
er vinnustaðamenningin stærsti
þröskuldurinn í umbreytingar-
verkefnum,“ segir Eyþór Ívar Jóns-
son, lektor v ið Viðsk iptahá-
skólann í Kaupmannahöfn (CBS),
sem jafnframt er í forsvari fyrir
stjórnendaskólann Akademias.
Skólinn býður meðal annars upp á
námskeiðið Leiðtoginn og stafræn
umbreyting.
Eyþór Ívar, sem kennir meðal
annars námskeiðið Viðurkenndir
stjórnarmenn, segir að það þurfi að
mennta stjórn fyrirtækja, rétt eins
og starfsmenn, til að þeir hafi getu
til að takast á við verkefnið. „Það er
oft þannig að enginn skilur þann
sem á að sjá um stafræna umbreyt-
ingu og þá einangrast hann,“ segir
lektorinn og nefnir að stjórnin verði
að vera samræðuhæf um fram-
tíðarstefnu fyrirtækisins, „því að
lokum er það stjórnarinnar að taka
ákvörðun um stefnuna.“
Hann segir að til að fá starfsfólkið
með í vegferðina þurfi að leyfa því
að taka þátt í henni, svo starfsfólki
finnist það vera hluti af vinnunni.
„Það er um að gera að nýta fólk sem
þekkir þennan heim vel, en er ekki
í lykilstöðum. Stafrænt læsi er ekki
háð stöðu innan fyrirtækisins,“
segir hann og nefnir að slíkir starfs-
menn geti verið kyndilberar, sem
hjálpi öðrum að skilja vegferðina.
„Það er mikilvægt að búa til slíka
menningu,“ segir Eyþór Ívar og
bætir við að því f leiri kyndilberar
innan fyrirtækisins sem samstarfs-
menn horfi til, því hraðar gangi
umbreytingin.
Hugsað í „kubbum“
Hann segir að fyrirtæki eigi það til
að gera þau mistök að horfa á staf-
ræna umbreytingu í „kubbum“,
eins og að færa tiltekið verkefni á
stafrænt form, í stað þess að horfa
heildstætt á stafræna umbreytingu
fyrirtækisins og spyrja hvaða áhrif
hún hafi á reksturinn. Enda snúist
umbreytingin um að skapa verð-
mæti fyrir viðskiptavini til fram-
tíðar.
Eyþór Ívar segir að það hafi vant-
að „talsvert upp á að Íslendingar séu
stafrænt þenkjandi,“ borið saman
við Norðurlöndin. Það sé okkur
„þó til happs að við séum yfirleitt
f ljótari í umbreytinguna,“ þegar
við kveikjum á perunni. Íslendingar
vinni hratt og „hjarðhegðun gerir
það verkum að allir eru komnir
í bátinn, þegar hafist er handa af
kappi.
Á námskeiðum Akademias er
fengið leiðandi fólk á sínu sviði til
að miðla af reynslu sinni. Oft f lytji
20 forstjórar, stjórnarmenn, sér-
fræðingar og aðrir erindi, ásamt
því að kennari miðli fræðilega hlut-
anum, til að skapa heildstæða sýn á
námsefnið.
Þurfa Asíu-þjálfun
Akademias verður til dæmis með
námskeið í haust um tækifæri í Kína
og stafræn viðskipti. Eyþór Ívar
segir að í Danmörku hafi viðskipti
verið byggð upp með skipulögðum
hætti, við Kína og önnur lönd í Asíu.
Það hafi ekki verið mikið um það
hérlendis, nema í tilviki fiskútflutn-
ings. „Kína er stórveldi og skiptir
máli í viðskiptalegu samhengi.
Það er mikilvægt að þjálfa íslensk
fyrirtæki og stjórnendur þeirra um
þennan heim.“
Eyþór Ívar segir að Kínverjar
búi í allt öðrum stafrænum heimi
en Vesturlandabúar. „Þeir nota
allt aðra miðla,“ segir hann. Til að
markaðssetja til Kínverja þurfi að
nota aðra samfélagsmiðla og versl-
anir þurfi að bjóða upp á greiðslu-
miðlanir sem Kínverjar kjósi að
nota, annars sé hætta á að þeir leiti
annað.
Hann segir að áherslur Akademi-
as séu talsvert aðrar en þekktist áður
á Íslandi. Um sé að ræða eins konar
fyrirtækjaskóla, sem hjálpi til við
að þjálfa og mennta starfsmenn til
að takast á við áskoranir framtíð-
arinnar. Skólinn eigi ekki í beinni
samkeppni við aðra á markaðnum.
„Ég lít á okkur sem kjörinn sam-
starfsaðila við fyrirtæki og háskóla,“
segir Eyþór Ívar og nefnir að hann
hafi lagt áherslu á umbreytingu í
menntun, í sínu starfi hjá CBS og
það geri hann einnig hjá Akademias.
Stjórnandi í umbreytingu einn á báti
Mennta þarf stjórn fyrirtækja, rétt eins og starfsmenn, til að takast á við stafræna umbreytingu. Stjórnendur geta gert þau mistök
að horfa á stafræna umbreytingu í kubbum, en ekki heildstætt. Íslendingar geta verið fljótir til þegar vegferðin hefst af krafti.
Eyþór Ívar segir að Kínverjar búi í allt öðrum stafrænum heimi en Vestur-
landabúar. „Þeir nota allt aðra miðla,“ segir hann. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
9M I Ð V I K U D A G U R 8 . J Ú L Í 2 0 2 0 MARKAÐURINN