Fréttablaðið - 17.07.2020, Qupperneq 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 5 7 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 1 7 . J Ú L Í 2 0 2 0
Nýr Škoda Superb iV
Rafmagn & bensín
Verð frá 5.190.000 kr. hekla.is/skodasalur · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · HEKLA
VIÐSKIPTI Virðismatsbreytingar
á ráðstefnu- og tónlistarhús-
inu Hörpu í nýjasta ársreikningi
félagsins þýða að stofnvirði bygg-
ingarinnar hefur verið afskrifað
um 60 prósent. Byggingin er því
nú verðmetin á um 40 prósent af
því sem kostaði að byggja hana.
Stjórnarformaður Hörpu segir að
núverandi verðmat Hörpu endur-
spegli tekjumöguleika hússins, en
það hafi ekki verið tilfellið áður en
ráðist var í niðurfærsluna.
Tekjur Hörpu námu um 1,7
milljörðum á síðasta ári, en þar af
Afskrifa Hörpu um 60 prósent
Fasteignin Harpa er nú metin á 9,4 milljarða króna. Uppreiknaður byggingarkostnaður var ríflega 24
milljarðar króna. Stjórnarformaður segir að verðmatið endurspegli tekjuöflunarmöguleika Hörpu.
Nánar á frettabladid.is
Ingibjörg
Stefánsdóttir
var rekstrarframlag ríkissjóðs og
Reykjavíkurborgar 450 milljónir.
Harpa er nú verðmetin á 9,4 millj-
arða króna, en uppreiknaður bygg-
ingarkostnaður miðað við nýjustu
byggingarvísitölu Hagstofu Íslands
hljóðar upp á 24,2 milljarða króna.
Alls var verðmæti Hörpu fært
niður um 7,1 milljarð á síðasta ári.
Ingibjörg Stefánsdóttir, stjórnarfor-
maður Hörpu, segir það hafa verið
nauðsynlega aðgerð til að skapa
Hörpu stöðugan og sjálf bæran
rekstrargrundvöll til langrar fram-
tíðar.
Afleiðing niðurfærslunnar var sú
að bókfært tap síðasta árs var tæpir
sex milljarðar, en ársreikningur
Hörpu var birtur í júní.
Ásamt því að veita Hör pu
rekstrarframlag á hverju ári hafa
ríki og borg skuldbundið sig til að
greiða upp útistandandi skulda-
bréf tónlistarhússins. Staða þess í
árslok 2019 var um 20 milljarðar
króna. Afborganir af skuldabréfinu
nema um hálfum milljarði á ári,
en greiðslur af skuldabréfinu eru
aðskildar rekstrarframlaginu.
Bein f járútlát hins opinbera
vegna reksturs Hörpu er því tæplega
einn milljarður á ári. – þg
Tryggvagatan væri nær óþekkjanleg ef ekki væri fyrir mósaíkverk Gerðar Helgadóttur á Tollhúsinu í bakgrunni. Framkvæmdir við götuna eru enn í fullum gangi en þar stendur meðal
annars til að byggja torg þar sem vegfarendur geta sleikt sólina þegar vel viðrar. Þá verða einnig á svæðinu litlir þokuúðarar sem eiga að veita svæðinu ákveðna dulúð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
LÍFIÐ „Lagið heitir Takk fyrir mig
og hefur verið að púslast saman
yfir nokkuð langan tíma,“ segir
tónlistarmaðurinn Ingó Veðurguð
sem gefur út Þjóðhátíðarlagið í ár.
Óvenjulegt
þjóðhátíðarlag
Ingó
Veðurguð
Lagið er örlítið óvenjulegt fyrir
þær sakir að Þjóðhátíð fer ekki
fram um verslunarmannahelgina
í ár vegna fjöldatakmarkana á sam-
komum.
– ssþ / sjá síðu 30