Fréttablaðið - 17.07.2020, Blaðsíða 2
Hvort sem að fólki
finnst sýningin
frábær eða ekki þá finnum
við sterkt fyrir þakklæti.
Óðinn Ásbjarnarson
Veður
Norðan 13-20 m/s í dag, en öllu
hægari um landið A-vert. Tals-
verð eða mikil rigning N-lands, en
úrkomulítið sunnan heiða. Hiti 5 til
16 stig, hlýjast á SA-landi.
SJÁ SÍÐU 12
Líf og fjör í Leifsstöð
Ferðamenn streyma í auknum mæli til landsins. Ekki er algilt að skimun við COVID-19 fari fram strax við komuna til landsins enda kemur fólk á
hvaða tímum sólarhrings sem er, hvort heldur er með skipum og skútum til hafna eða farþegaf lugi og einkaf lugvélum til f lugvalla. Sé enginn á vakt
á þeim landamærum sem komið er að, er farþegum bent á að vera í sóttkví og að mæta til skimunar á heilsugæslu daginn eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
M E N N I N G Sv iðslist a hópu r inn
Strengur hefur í sumar f lakkað
með farandleiksýninguna „Enda-
lausir þræðir“ á milli félagsmið-
stöðva eldri borgara í Reykjavík.
Leikhópurinn samanstóð af fjórum
ungmennum, Katrínu Guðbjarts-
dóttur, Magnúsi Thorlacius, Óðni
Ásbjarnarsyni og Unu Torfadóttur,
sem öll stunda nám við sviðshöf-
undabraut í Listaháskóla Íslands
og tóku að sér sumarstarf hjá vel-
ferðarsviði Reykjavíkurborgar.
Una þurfti að draga sig úr sýn-
ingum vegna erfiðra veikinda en
í hennar stað stökk Urður Bergs-
dóttir til.
Markmið sviðslistahópsins var
meðal annars að vinna gegn félags-
legri einangrun eldri borgara sem
er stórt samfélagslegt vandamál.
Það þekkir einn meðlima Strengs,
Óðinn Ásbjarnarson, vel en hann
býr í íbúðarkjarna eldri borgara í
Norðurbrún sem er liður í tilrauna-
verkefni velferðarsviðs sem Frétta-
blaðið fjallaði um í mars á þessu ári.
„Þetta hafa verið skrítnir tímar.
Allt skipulagt félagsstarf eldri borg-
ara fór úr skorðum sem og auðvitað
heimsóknir ástvina. Félagsleg ein-
angrun eldri borgara var vandamál
fyrir en kórónaveirufaraldurinn
gerði það vandamál enn þá verra,“
segir Óðinn.
Hann hafði því enn meiri tíma en
ella til þess að skipuleggja viðburði
fyrir eldri borgara í Reykjavík og
segja má að leiksýningin sé að hluta
til afleiðing af því.
„Ég hef brennandi áhuga á sviðs-
listum og það var alltaf markmiðið
að nota þann áhuga í þessu verkefni
sem ég tók að mér,“ segir Óðinn.
Hann hafi því samið áðurnefnt
verk ásamt öðrum meðlimum
hópsins og sótti innblástur í upp-
lifun sína. Alls er ráðgert að sautján
sýningar verði sýndar í sumar. Sú
fyrsta var í byrjun mánaðarins og
mun sýningum ljúka í þessari viku.
„Viðtökurnar hafa verið allskonar
en ég átti von á því. Þetta er svolítið
framúrstefnuleg og ljóðræn sýn-
ing. Við erum að heiðra frásagnar-
listina, hvernig minningar verða
til og mannleg tengsl. Markmiðið
er að brúa bil kynslóðanna með
leiklistinni og koma félagsstarfinu
aftur í gang eftir erfiða mánuði,“
segir Óðinn.
Hann segir að skemmtilegt sé
að upplifa þakklæti eldri borgara.
„Hvort sem að fólki finnst sýningin
frábær eða ekki þá finnum við
sterkt fyrir þakklæti allra vegna
þess að við erum að koma með
menningu til þeirra. Það er mjög
góð tilfinning.“
Hann mun áfram búa í Norður-
brún næstu mánuði og vonar að
hann geti komið inn af krafti í
félagsstarf eldri borgara í haust.
„Þá get ég vonandi byrjað að skipu-
leggja böll, karókí-kvöld og eitthvað
skemmtilegt. Sviðslistirnar munu
síðan alltaf skipa einhvern sess,“
segir Óðinn. bjornth@frettabladid.is
Fékk innblástur við
að búa á dvalarheimili
Sviðslistahópurinn Strengur hefur heimsótt félagsmiðstöðvar eldri borgara í
Reykjavík í sumar með framúrstefnulega og ljóðræna leiksýningu. Hópurinn
finnur fyrir miklu þakklæti áhorfenda þó viðtökurnar hafi verið allskonar.
Óðinn Ásbjarnarson er einn meðlima sviðslistahópsins. Fréttablaðið/Ernir
REYKJAVÍK Hangandi hræ af mávum
sem hafa vakið athygli vegfarenda
í Elliðaárdal eru til skoðunar hjá
Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.
Þetta staðfestir Guðjón Ingi Egg-
ertsson, heilbrigðisfulltrúi.
Að sögn hans er málið skoðað
sem úrgangsmál, það er að þarna
sé úrgangur á almannafæri sem
þarf að farga. Þá hafa ábendingar
um málið verið sendar Matvæla-
stofnun. Fréttablaðið fjallaði um
undrun og reiði íbúa í Breiðholti
vegna fuglshræjanna í vikunni.
Í umfjölluninni kom fram að til-
gangur þess sem hengdi þau upp
væri að fæla máva frá til þess að
bjarga andar- og kanínuungum. Þá
kom fram að hræin væru af sjálf-
dauðum fuglum. – bþ
Skoða hangandi
hræ af mávum
Hangandi mávshræ í Elliðaárdal
S TJÓ R NAR S K R ÁR M ÁL Stjórnar-
skrárfélagið mótmælir harðlega
vinnubrögðum formanna stjórn-
málaf lokkanna við endurskoðun
stjórnarskrárinnar.
Í umsögn félagsins um drög að
breytingum á ákvæðum um for-
seta, ríkisstjórn og framkvæmda-
vald er enn og aftur hvatt til þess að
niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu
sem fram fór árið 2012 um tillögur
stjórnlagaráðs verði virtar.
Frumvarpsdrög formannanna
séu enn einn vitnisburður þess að
þeir hafi ekki látið sér segjast og ætli
ekki að virða vilja kjósenda.
„Þvert á móti er áfram unnið eins
og vilji stjórnmálaf lokkanna eigi
að ráða en ekki lýðræðislegur vilji
fólksins. Félagið sér því ekki ástæðu
til að fjalla efnislega um þessi drög
heldur ítrekar að fullveldið er hjá
þjóðinni og það er þjóðin sem
er stjórnarskrárgjafinn,“ segir í
umsögninni.
Frestur til að senda umsögn um
drögin rennur út 22. júlí. – sar
Þjóðin ráði en
ekki formenn
VEÐUR Veðurstofa Íslands hækkaði
í gær viðvörunarstig úr gulu í app-
elsínugult vegna mikils vatnsveð-
urs sem spáð er á Vestfjörðum og
Norðurlandi með auknu afrennsli
og vatnavöxtum í ám og lækjum.
Varað er við því að vöð geti orðið
varhugaverð eða jafnvel ófær. Þá er
varað við hættu á skriðum og grjót-
hruni og auknu álagi á fráveitukerfi.
Þá var varað við snörpum vind-
hviðum á sunnanverðu Snæfellsnesi
í gærkvöld en snemma í morgun á
Kjalarnesi.
Er því beint til vegfarenda
að fylgjast vel með og taka mark á
aðvörunum Veðurstofunnar. – uö
Vonskuveður
víða um land
1 7 . J Ú L Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Erum með mikið úrval af allskonar
bílaverkfærum á frábæru verði!
ViAir 12V loftdælur
í miklu úvali.
Hleðslutæki
12V 6A
6T Búkkar
605mm Par
Jeppatjakkur
2.25t 52cm.
Omega
Viðgerðarkollur
4.995
9.999
17.995
7.495
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Verkfæralagerinn