Fréttablaðið - 17.07.2020, Blaðsíða 3
66°Norður leitar að
dugmiklu fólki í fullt starf.
Sjóklæðagerðin hf. er eitt elsta framleiðslufyrirtæki
Íslands. Árið 1926 hóf fyrirtækið framleiðslu á sérstökum
hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norður
slóðum og er fyrirtækið afar stolt af þeirri arfleifð.
Í dag er hönnun og framleiðsla útivistarfatnaðar kjarninn
í starfsemi fyrirtækisins sem framleiddur er undir
vörumerkinu 66°Norður. Fyrirtækið hefur frá stofnun þess
rekið sínar eigin verksmiðjur og leggur mikið upp úr gæðum
vörunnar þar sem eingöngu eru notuð bestu fáanlegu efnin
í framleiðsluna. Árið 2019 kolefnisjafnaði 66°Norður
starfsemi sína og er sjálfbærni höfð að leiðarljósi í allri
starfsemi fyrirtækisins.
Í dag starfa tæplega 400 manns hjá Sjóklæðagerðinni
og starfar fyrirtækið í fjórum löndum, Íslandi, Danmörku,
Bretlandi og Lettlandi. Á Íslandi rekur fyrirtækið níu
verslanir og í Kaupmannahöfn eru tvær verslanir, þar
sem sú fyrsta opnaði í lok árs 2014. Árið 2019 var opnuð
skrifstofa í Lundúnum.
Haldið er utan um allar umsóknir sem berast. Það er því
mikilvægt að umsóknareyðublaðið sé fyllt út eins vel og
kostur er. Mælt er með því að sett sé inn ferilskrá sem
viðhengi. Öllum umsóknum um auglýst störf er svarað þegar
ráðningum er lokið.
Umsóknir eru geymdar í 6 mánuði, en eftir þann tíma er
þeim eytt. Kjósir þú að umsókn verði eytt innan þess tíma
skal senda tölvupóst á job@66north.is.
Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Hæfniskröfur:
Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 19 ára aldri.
Umsóknarfrestur er til og með 29. júlí.
Verslaðu á 66north.is
Fylgdu okkur á Instagram @66north
Laus störf í verslunum
66°Norður frá og með
1. ágúst næstkomandi.
Jákvætt viðmót og þjónustulund.
Framúrskarandi hæfileikar í mannlegum samskiptum.
Áhugi á útivist og hreyfingu.
Áhugi á sölumennsku.
Mjög góð enskukunnátta.
Kunnátta í Norðurlandamáli, þýsku, kínversku
eða öðrum tungumálum er kostur.
Reynsla af sölustörfum er kostur.