Fréttablaðið - 17.07.2020, Page 4
Þótt það séu fáir
ferðamenn hér
ennþá er líklega helmingur
þeirra Íslendingar.
Benedikt Jónsson,
aðalræðismaður Íslands í Færeyjum
Opin fræðsla fyrir alla sem nýlega
hafa greinst með krabbamein fer
fram í Ljósinu, Langholtsvegi 43,
næstu mánudaga milli 10:30 -
12:00:
6. júlí: Líðan, virkni og stuðningur
13. júlí: Þreyta - Orkusparandi
aðferðir
20. júlí: Sjálfstyrkur, sjálfsmynd
27. júlí: Slökun
10. ágúst: Streita og bjargráð
17. ágúst: Fjölskyldan og
samskipti
24. ágúst: Markmiðasetning
FÆREYJAR „Fyrir um mánuði síðan
sáust bara ekki erlendir ferðamenn
hér á götunum en nú eru þeir aðeins
farnir að sjást. Mér er sagt af helstu
ferðaþjónustuaðilum Færeyja að
þótt ferðamennirnir séu ekki marg
ir sé þetta þó vísir að því að þetta
geti eitthvað glæðst síðsumars,“
segir Benedikt Jónsson, aðalræðis
maður Íslands í Færeyjum.
Svipaðar reglur gilda um komu
ferðamanna til Færeyja og hér á
landi. Allir tólf ára og eldri þurfa að
fara í skimun við komuna til Fær
eyja en ekkert er greitt fyrir það út
júlímánuð.
Benedikt segir að Færeyingar
séu varkárir sem megi væntanlega
rekja til þess að vel hefur tekist til
í aðgerðum við veirufaraldrinum.
Alls hafa komið upp 188 smit í land
inu en enginn hefur látist. Eitt smit
kom upp í byrjun júlí en þá hafði
ekki komið upp smit frá því í apríl.
„Færeyingar vilja fyrir alla muni
varðveita þennan árangur,“ segir
Benedikt. Um miðjan júní var
opnað fyrir komur ferðamanna
frá Danmörku, Grænlandi, Íslandi,
Noregi og Þýskalandi en síðan bætt
ust við ríki ESB, Schengen og Bret
land.
„Forsvarsfólk í ferðaþjónustunni
hérna talar um það í sambandi við
opnun landsins að íslenskir ferða
menn skipti miklu máli. Þótt það
séu fáir ferðamenn hér enn þá er lík
lega helmingur þeirra Íslendingar,“
segir Benedikt.
Í byrjun júlí opnaði nýtt hótel í
Þórshöfn og er Benedikt sagt að þar
séu Íslendingar á bak við helming
gistinótta. „Þeir ferðamenn sem
eru hér á stjái eru mikið á þessu
svæði þar sem sendiskrifstofan
er. Maður rekst á Íslendinga hérna
og við höfum fengið fyrirspurnir
um hitt og þetta. Hvort það séu
takmarkanir sem auðvitað eru og
kannski ekkert ósvipaðar þeim á
Íslandi.“
Benedikt tók við stöðu aðalræðis
manns í september á síðasta ári.
Hann segir að móttökurnar í Fær
eyjum hafi verið einstaklega góðar.
Einhver bið verður þó á því að hann
fái að upplifa alvöru Ólafsvöku sem
haldin er árlega í lok júlí.
„Lífið gengur svona að mestu leyti
sinn vanagang hér. Þó eru Færeying
ar meðvitaðir um stöðuna og hafa
til dæmis af lýst öllum hópsam
komum á Ólafsvöku. Það er ekki
búið að blása hana af en hún verður
með gerbreyttu sniði.“
Í byrjun faraldursins hafi fólk
strax farið að hugsa til Ólafsvöku
og átt erfitt með þá tilhugsun að
hún færi ekki fram. „Þeir ætla að
hafa sérstaka dagskrá í sjónvarpi
og stilla þar upp þessum viðburðum
sem hafa verið í bænum. Það verður
auðvitað ekki það sama.“
sighvatur@frettabladid.is
Íslendingar mikilvægir fyrir
ferðaþjónustu í Færeyjum
Ferðamenn eru aftur farnir að sjást í Færeyjum þótt þeir séu enn ekki margir. Íslendingar eru líklega um
helmingur þeirra. Aðalræðismaður Íslands segir lífið ganga sinn vanagang að mestu en þó verður Ólafs-
vaka haldin með breyttu sniði. Eitt smit hefur komið upp í júlí en síðustu smit þar áður komu upp í apríl.
Frá miðborg Þórshafnar þar sem ferðamenn eru aðeins farnir að sjást aftur. MYND/GETTY
FLUGMÁL Þótt hluta flugmanna sem
sagt var upp hjá Icelandair hafi nú
verið boðið starf áfram er staðan
óljós varðandi flugvirkja.
„Það hefur ekkert verið gefið út
enn þá með endurráðningar á f lug
virkjum,“ segir Guðmundur Úlfar
Jónsson, formaður Flugvirkjafélags
Íslands. Málið hafi ekki verið rætt
sérstaklega. Það er fyrirtækisins
megin að gera það.“
Að sögn Guðmundar var um
130 flugvirkjum af 300 sagt upp og
rennur uppsagnarfresturinn út um
næstu mánaðamót.
Hluti uppsagna hjá flugmönnum
Icelandair frá því í apríl hefur verið
afturkallaður og 114 flugmönnum
boðið áframhaldandi starf. Því
verði alls 139 flugmenn hjá félaginu.
Ekki var unnt að fá upplýsingar
í gær frá Icelandair varðandi stöðu
annarra starfshópa hjá félaginu. Var
sagt að ekki væri tímabært að ræða
þau mál. – gar
Staða flugvirkja
Icelandair óljós
KJARAMÁL „Icelandair er nauðugur
sá kostur að virða sitt starfsfólk og
ganga til kjarasamninga við stéttar
félög þeirra ef fyrirtækið ætlar að
vera húsum hæft í íslensku sam
félagi,“ segir í yfirlýsingu eftir fund
forsetateymis ASÍ ásamt formönn
um fjögurra stéttarfélaga í gær.
Fundurinn var haldinn til að fara
yfir stöðuna í kjaradeilu Icelandair
við Flugfreyjufélag Íslands (FFÍ).
Icelandair þurfi að ganga til samninga við starfsfólk
GARÐABÆR Fjölmargar athuga
semdir og ábendingar sem borist
hafa bæjaryfirvöldum í Garðabæ
breyta því ekki að Garðahrauns
vegur verður áfram lokaður.
Garðahraunsvegi við Herjólfs
braut var lokað nú í júní í samræmi
við deiliskipulag. Var þetta gert að
ósk íbúa í Prýðishverfi sem vildu
minni umferð við hverfið. Bæjaryf
irvöld í Hafnarfirði og íbúar sunnan
Álftanesvegar mótmæla lokuninni.
Þrettán bréf frá íbúum voru lögð
fram á síðasta bæjarráðsfundi í
Garðabæ. Einn bréfritarinn segir
lokunina óforskammaða gagnvart
íbúum Nausta og Boðahleina og að
hún mismuni íbúum í Garðabæ. Í
öðrum bréfum er bent á að lokunin
torveldi aðgang að heimilum eldri
borgara og lengi leiðir í skóla.
Bæjarráðið fól Gunnari Einars
syni bæjarstjóra að svara með bréfi
þar sem fram komi að lokunin sé
í samræmi við deiliskipulag fyrir
íbúðarbyggð í Garðahrauni. „Eru
bæjaryfirvöld skuldbundin gagn
vart íbúum svæðisins að láta lokun
ina koma til framkvæmda,“ segir í
fundargerð bæjarráðs. Lokunin hafi
verið samþykkt í bæjarstjórn 16.
mars 2017. „Var hún kynnt á sínum
tíma og á ekki að koma óvart.“
Einnig er vísað til sjónarmiða um
umferðaröryggi. „Gegnumakstur
um Garðahrauns veg, þar sem eru
mörg gatnamót að íbúðarhúsa
götum, hefur verið hraður og
hættulegur,“ segir bæjarráðið, en
ætlar þó að skoða möguleika á lag
færingum á gatnamótunum til að
bæta umferðaröryggi. – gar
Vegi lokað að ósk íbúa í Prýðishverfi
Lokun Garðahraunsvegar veldur úlfúð í Garðabæ. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BÓKMENNTIR Samkeppniseftirlitið
hefur beint þeim fyrirmælum til
Pennans að taka bækur Uglu útgáfu
aftur til sölu í verslunum sínum.
Þetta kemur fram í bráðabirgða
ákvörðun sem eftirlitið tók í gær.
Eftirlitið segir sennilegt að Penn
inn hafi misnotað markaðsráðandi
stöðu sína á smásölumarkaði með
því að senda til baka söluhæstu
bækur Uglu í maí og í framhaldi
synjað viðskiptum við útgáfuna.
Mælt er fyrir um að hvers konar
ákvarðanir Pennans um að synja
bókaútgefendum um viðskipti
skulu byggja á verklagsreglum
aðgengilegum bókaútgefendum og
Samkeppniseftirlitinu. – atv
Pennanum gert
að selja frá Uglu
VIÐSKIPTI Samanlögð kortavelta
Íslendinga í júní nam rúmlega 86
milljörðum króna. Sú velta er mjög
áþekk þeirri sem mældist í júní
mánuði 2019 þrátt fyrir að Íslend
ingar gætu óheftir notið lífsins í
sumarfríum erlendis.
Þessar upplýsingar koma fram
í Hagsjá hagfræðideildar Lands
bankans sem birtist í vikunni. Í
hagtölum Seðlabanka Íslands má
sjá að kortavelta erlendis í júní árið
2019 nam um 18 milljörðum króna.
Þessar krónur skiluðu sér til inn
lendra aðila í ár. – bþ
Eyddu krónum
heima í staðinn
Aðilar funduðu síðast hjá ríkissátta
semjara á þriðjudag.
Í yfirlýsingunni segir að undir
liggjandi séu hótanir Icelandair að
Drífa Snædal,
forseti ASÍ
„leita annarra leiða“ frekar en að
klára samninga við FFÍ. Slík hótun
verði aðeins skilin þannig að félagið
ætli sér að virða leikreglur á íslensk
um vinnumarkaði að vettugi.
Þá sé það ljóst að það séu ekki
hagsmunir íslensks launafólks að
lífeyrir sé notaður til að styðja fyrir
tæki sem grafi undan samningsrétti
og lífskjörum launafólks.
„Ekki verður séð hvernig lífeyris
sjóðir geta virt eigin siðareglur og
fjárfestingarstefnu en jafnframt
tekið þátt í hlutafjárútboði félags
sem grefur undan hagsmunum
launafólks á íslenskum vinnumark
aði,“ segir í yfirlýsingunni.
Einnig sé skýr krafa verkalýðs
hreyfingarinnar að stjórnvöld noti
ekki sameiginlega sjóði til að styðja
við Icelandair nema réttindi starfs
fólks séu virt. – sar
1 7 . J Ú L Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð