Fréttablaðið - 17.07.2020, Page 8
ástríðu fyrir því að ná þeim. Framan
af ferlinum hélt ég að mikið æfinga-
álag myndi skila mér þeim árangri
sem ég stefndi að en síðustu árin
hef ég áttað mig á því að markvissar
æfingar með góðri endurheimt gefa
betri raun,“ segir hún.
„Eftir að ég náði mér af meiðslun-
um hélt ég áfram að hafa þær æfing-
ar sem ég var að gera í endurhæfing-
unni inni í æfingaprógramminu og
svo lagði ég meiri áherslu á tækni-
æfingar og að fá næga hvíld á milli
æfinga. Það er synd að ég hafi ekki
náð að keppa á Ólympíuleikunum
og Evrópumeistaramótinu í jafn
góðu formi og ég er í núna,“ segir
þessi metnaðarfulli íþróttamaður.
„Ég er mjög ánægð með það
hvernig ég kem út úr þessum erfiða
tíma sem meiðslatímabilið var og að
geta kvatt íþróttina með jákvæðum
minningum. Ég hef verið að ná stöð-
ugum kastseríum upp á síðkastið og
mér líður eins og ég geti náð mínum
besta árangri á næstu vikum. Það
væri óskandi að það yrðu haldin
Demantamót áður en ég hætti en
ég hef lært það á löngum ferli að
það þýðir ekki að vera eltast við
gulrætur. Það þarf bara að taka því
sem að höndum ber,“ segir Ásdís um
komandi verkefni.
„Fram undan er bara að taka þátt
á mótum hér og þar um Evrópu og
freista þess að bæta mig með hverju
kasti. Mig langar mjög til þess að
bæta Íslandsmetið áður en ég læt
gott heita. Ég er svo farin að huga
að því hvað ég ætla að gera þegar ég
hætti að keppa.
Ég er byrjuð að halda fyrirlestra
og bjóða upp á ráðgjöf fyrir íþrótta-
menn. Ég hef lært mikið á löngum
ferli, við uppsetningu æf inga,
andlegu hliðina og að tækla gagn-
rýni svo dæmi séu tekin. Ég hefði
haft mjög gott af því að hitta jafn
reynslumikinn íþróttamann og
ég er núna þegar ég var að byrja
ferilinn. Það væri sóun að ausa
ekki úr viskubrunni mínum og ég
hyggst miðla reynslu minni. Ég og
maðurinn minn höfum stofnað
fyrirtæki í kringum fyrirlestra
mína og ráðgjöf og ég er mjög
spennt fyrir þessu nýja hlut-
verki,“ segir hún um framhaldið.
hjorvaro@frettabladid.is
Ég er mjög ánægð
með það hvernig ég
kem út úr þessum erfiða
tíma sem meiðslatímabilið
var og að geta kvatt íþrótt-
ina með jákvæðum
minningum.
FÓTBOLTI Í samræmi við reglu-
gerð FIFA um milliliði hefur
Knattspyrnusamband Íslands,
KSÍ, birt opinberlega á heimasíðu
sinni nöfn allra umboðsmanna sem
skráðir eru, ásamt yfirliti yfir gern-
inga sem þeir hafa komið að.
Ennfremur birtir KSÍ heildarupp-
hæð allra þóknana eða greiðslna
sem raunverulega hafa verið inntar
af hendi til umboðsmanna af hálfu
skráðra leikmanna og af hálfu hvers
félags sem þeir tengjast.
Upphæðirnar eru greiddar vegna
þjónustu umboðsmanna vegna
samningsgerðar leikmanns/þjálf-
ara við félag eða félags við leikmann
og/eða samningsgerðar um félaga-
skipti á tímabilinu 1. apríl 2019 til
30. júní 2020. Engar greiðslur hafa
verið inntar af hendi frá leikmönn-
um til umboðsmanna.
H e i l d a r u p ph æ ð g r e ið s l n a
sem inntar hafa verið af hendi
til umboðsmanna frá félögum
á umræddu tímabili er sam-
tals 7.062.656 krónur en í fyrra var
upphæðin 6.559.013 krónur.
Valur greiddi umboðsmönnum
mest eða 1.504.950 krónur og þar á
eftir kemur Breiðablik með 1.051.800
krónur. Greiðslurnar sem Valsmenn
reiddu af hendi til umboðsmanna
voru vegna félagaskipta Birkis Heim-
issonar, Gary Martin, Magnúsar
Egilssonar, Orra Sigurðar Ómarsson-
ar og Valgeirs Lunddal Friðrikssonar
til félagsins, auk samnings þjálfarans
Heimis Guðjónssonar við Val.
ÍBV og Víkingur komu næst á
listanum en Vestmannaeyingar
greiddu umboðsmönnum 908.300
krónur og Víkingar 847.200 krón-
ur. KR sem er ríkjandi Íslandsmeist-
ari í karlaf lokki greiddi 248.000
krónur til umboðsmanna. – hó
Valur greiddi milliliðum mest
Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals. FRÉTTABLAÐIÐ/DIDDI
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Það eru tæpir
þrír mánuðir eftir af spjótkastsferli
Ásdísar Hjálmsdóttur Annerud en
hún hefur ákveðið að setja spjótið
á hilluna í september næstkomandi.
Ásdís lenti í erfiðum meiðslum árið
2017 sem hún var lengi að jafna sig á
en hefur með þrotlausum æfingum
komið sér í sitt besta líkamlega
form.
Hún hafði áform um að enda feril-
inn með þátttöku á Ólympíuleikun-
um í Tókíó og Evrópumeistaramót-
inu en kórónaveiran hrifsaði þann
enda á ferlinum af henni. Ásdís segir
það vissulega vera vonbrigði að ná
ekki að kveðja með þeim hætti en
hún hafi ákveðið að enda ferilinn
á jákvæðum nótum. Stefnan er að
bæta Íslandsmet hennar sem hún
setti árið 2017 þegar hún kastaði
spjótinu 63,43 metra.
„Planið var að Ólympíuleikarnir
og Evrópumeistaramótið í sumar
yrðu lokapunkturinn á ferlinum.
Það tók svolítinn tíma að sætta sig
við að svo yrði ekki en svo bara setti
ég þau vonbrigði að baki mér og
ákvað að einbeita mér að því að ég
myndi skilja við spjótkastið í mínu
besta líkamlega formi,“ segir Ásdís
í samtali við Fréttablaðið.
„Ég er fyrst núna að jafna mig
almennilega á álagsmeiðslunum
í bakinu sem ég varð fyrir árið
2017. Þetta hefur verið langur tími
í endurhæfingu og mikil vinna sem
hefur farið í að koma mér aftur í
fyrra form. Mér finnst ég fyrst núna
vera æfa á réttan hátt og ég held að
ég hafi aldrei verið í betra formi,“
segir spjótkastarinn.
„Allan minn feril hef ég verið
með háleit markmið og brennandi
Lærði loks að æfa rétt í lokakaflanum
Ásdís Hjálmsdóttir Annerud er á lokasprettinum á löngum og farsælum ferli í frjálsum íþróttum. Ásdís hefur ákveðið að hætta í
haust. Eftir að hafa gengið í gegnum erfiðan tíma sem var meiðslum stráður hefur Ásdís aldrei verið í betra formi að eigin sögn.
Ásdís Hjálmsdóttir Annerud býr í Svíþjóð þessa stundina. MYND/AÐSEND
A Ð A L S K I P U L A G
K E F L A V Í K U R F L U G V A L L A R
Vinnslutillaga að breytingu á Aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar
2013–2030. Breyting vegna þjónustuvegar.
Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar samþykkti á fundi sínum 13. júlí að
láta kynna vinnslutillögu að breyu aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar í
samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breyting felur í
sér heimild fyrir nýjum vegi milli Reykjanesbrautar og Flugstöðvar Leifs Eiríks-
sonar. Óskað er eir ábendingum vegna tillögunnar fyrir 17. ágúst 2020.
Tillagan er kynnt á heimasíðu Isavia. isavia.is/skipulag-i-kynningu
Nánari upplýsingar veitir skipulagsfulltrúi Keflavíkurflugvallar
sveinn.valdimarsson@isavia.is
Ábendingum skal skila til skipulagsfulltrúa Keflavíkurflugvallar.
1 7 . J Ú L Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R8 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
Ásdís hyggst hætta að keppa í
frjálsum íþróttum í haust.