Fréttablaðið - 17.07.2020, Page 10
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ég held að krakkar í dag séu
bara betur upp aldir en þeir
voru fyrir tuttugu, þrjátíu
árum. Maður hefur heyrt sögur
frá þeim sem þá voru unglingar
og sumir þeirra stungu af úr
bæjarvinnunni eða lágu í múg-
unum heilu og hálfu dagana,
að mér skilst. Ég tel að það sé
minna um það núna.
Ástkær eiginkona mín,
móðir okkar og tengdamóðir,
Kristrún Gísladóttir
frá Vestmannaeyjum,
lést á Líknardeild Landspítalans í
Kópavogi, mánudaginn 6. júlí. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Þorsteinn Ingólfsson
Sólrún Þorsteinsdóttir Vignir Stefánsson
Ingólfur Þorsteinsson María Garðarsdóttir
Kæru ættingjar og vinir.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför föður okkar,
tengdaföður, afa, langafa
og langalangafa,
Jóns Karls Úlfarssonar
útvegsbónda,
frá Eyri í Fáskrúðsfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Fossahlíðar á Seyðisfirði
fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Fjölskyldan.
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Þórður Árni Björgúlfsson
fv. rennismiður og verslunarmaður,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju,
fimmtudaginn 23. júlí, klukkan 13.30.
Fjölskyldan þakkar starfsfólki Grenihlíðar
fyrir frábæra umönnun og hjartahlýju. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á Hollvinasamtök Öldrunarheimila
Akureyrar, kennitala: 441217-1450, banki: 565-14-405786.
Björg Þórðardóttir
Friðrik Viðar Þórðarson Kristín Jónína Halldórsdóttir
Björgúlfur Þórðarson Helga Guðrún Erlingsdóttir
og fjölskyldur.
Krakkarnir eru þrældugleg-ir og aldrei í miklu hangsi. Veðrið hefur líka leikið við okkur í sumar og þá eru allir í góðu skapi, eig-inlega bara sólskinsskapi!
Maður finnur mikinn dagamun á fólk-
inu eftir veðri, enda minna skemmti-
legt í beðinu ef það er mjög blautt, segir
Viktor Örn Ásgeirsson, f lokksstjóri hjá
Vinnuskóla Reykjavíkur.
„Þetta er þriðja árið mitt í þessu
starfi og það hefur gengið vel. Borginni
er skipt upp í svæði, ég var með bæki-
stöð við Hagaskóla í fyrra og hitteð-
fyrra,“ segir Viktor Örn. Nú er hann
við Háteigsskóla með sextán manna
hóp af báðum kynjum og segir það
vera hámarkið. „Við erum tvö með þann
fjölda og getum dreift aðeins úr okkur,“
tekur hann fram.
Skyldi Viktor Örn sjálfur hafa verið
í vinnuskóla þegar hann var yngri? „Ég
var í hópi á vegum félagsmiðstöðvar-
innar á þeim tíma og var sendur í að
mála hér og þar og í f leiri verkefni, það
var samt ekki hefðbundinn vinnuskóla-
hópur. Ég get ekki sagt að ég hafi legið á
hnjánum allt sumarið við að reyta, en ég
var svo að vinna hjá Landsvirkjun í tvö
sumur á unglingsárunum við að planta
trjám og hirða beð. Þá lærði maður
bæði að beita líkamanum og verkfær-
unum rétt, það var ágæt reynsla sem ég
get miðlað af. Við erum líka svo heppin
að áður en Vinnuskólinn hefst er undir-
búningsvika fyrir alla leiðbeinendur.
Þar erum við að fara yfir líkamsbeit-
ingu, sjúkraþjálfun og skyndihjálp og
fáum fyrirlestur hjá sálfræðingi. Þannig
að maður kemur ágætlega undirbúinn
til starfa.“
Viktor Örn segir krakkana í vinnu-
skólanum líka fá margvíslega fræðslu.
„Það er umhverfisfræðsla og mennta-
skólanemar koma sterkir inn með
fræðslu á jafningjagrundvelli. Svo snýst
eitt verkefnið um of beldisforvarnir, þar
fá krakkarnir leiðbeiningar um hvað
þeir eigi að gera ef þeir sjá einhverja í
slag. Svo leikum við okkur líka, þannig
að vinnuskólinn er sambland af garð-
vinnu, leikjum og fræðslu. Við getum að
minnsta kosti sagt að það sé minni fókus
á beðin og illgresið heldur en áður var
en krakkarnir fá vel að kynnast því líka,
því beðahreinsun er rauði þráðurinn í
vinnunni.“
Hópurinn hans Viktors Arnar er með
verkefnalista en aðspurður segir hann
enga málningarvinnu vera á þeim lista.
„Það er sérstakur hópur sem tekur hana
að sér. Í honum eru krakkar sem eru
með frjókornaofnæmi og geta þá ekki
verið í beðum en stendur til boða að
vera í málningarhóp sem vinnur undir
stjórn málarameistara og líka f lokks-
stjóra. Þau taka að sér ýmis verkefni.“
Spurður hvort hann sjálfur hafi ein-
hverja vél til umráða, svarar hann. „Nei,
það er líka sérstakt gengi, ég er bara á
skóf lunni milli þess sem ég fer á milli
hópa og fylgist með.“ Það er greinilegt
að hann er jákvæður í garð unga fólksins
sem hann er að vinna með, enda kveðst
hann standa í þeirri trú að unglingar séu
stilltir upp til hópa. „Ég held að krakkar í
dag séu bara betur upp aldir en þeir voru
fyrir tuttugu, þrjátíu árum. Maður hefur
heyrt sögur frá þeim sem þá voru ungl-
ingar og sumir þeirra stungu af úr bæjar-
vinnunni eða lágu í múgunum heilu og
hálfu dagana, að mér skilst. Ég tel að það
sé minna um það núna. Sjálfur hef ég að
minnsta kosti aldrei lent í neinu veseni.
Það eru allir bara kurteisir og góðir en
hressir kringum mig og gera það sem
fyrir þá er lagt.“
Þetta eru nú góðar fréttir. En hvað
um sumarfrí? Fær Viktor Örn eitt-
hvert frí sjálfur? „Ég byrjaði 1. júní og
verð fram í miðjan ágúst, þá fæ ég viku
eða tvær áður en skólinn byrjar. Ég er í
Háskóla Íslands, var að klára fyrsta árið
í lögfræði og sé fram á að verða í inni-
vinnu í framtíðinni svo það er frábært
að fá að að vinna úti núna, þó að fyrsta
sumarið mitt í þessu starfi, 2018, hafi
ekki verið verið neitt sérstakt, ef ég tala
hreint út, sjö gráðu meðalhiti og mikil
rigning.“ gun@frettabladid.is
Minna skemmtilegt í
beðinu ef það er blautt
Það fer eftir veðri hversu ánægðir unglingarnir eru í vinnuskólanum. Það finnur Vikt-
or Örn Ásgeirsson vel, hann er flokksstjóri með sextán manna hóp hjá Vinnuskóla
Reykjavíkur. Viðfangsefnin eru sambland af garðvinnu, leikjum og fræðslu.
„Það eru allir bara kurteisir og góðir en hressir kringum mig,“ segir flokksstjórinn Viktor Örn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
1751 Innréttingarnar, hlutafélag um eflingu iðnaðar á
Íslandi, eru stofnaðar á Þingvöllum að frumkvæði Skúla
Magnússonar fógeta.
1930 Þýska loftskipið Graf Zeppelin kemur til Íslands og
flýgur yfir suðurströnd landsins.
1932 Stytta af
Leifi heppna er
afhjúpuð á Skóla-
vörðuholti. Hún
er gjöf Banda-
ríkjamanna í
tilefni af 1.000 ára
afmæli Alþingis
1930.
1946 Fyrsti
landsleikur
Íslands í knatt-
spyrnu er leikinn
í Reykjavík. Hann
er gegn Dönum
og lýkur með sigri
þeirra, 3:0.
1969 Bing Crosby, leikari og söngvari, kemur til Íslands til
laxveiða.
1989 Langferðabíll með 27 farþega rennur um 40 metra
niður í gilskorning á Möðrudalsöræfum. Farþegarnir
sleppa flestir lítt meiddir.
Merkisatburðir
1 7 . J Ú L Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R10 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT