Fréttablaðið - 17.07.2020, Síða 12
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656,
Jana Sól Ísleifsdóttir, nemandi við Menntaskólann á Trölla-skaga, hefur spilað tölvuleiki
frá því hún var barn og stefnir á
atvinnumennsku í tölvuleikjum.
En Jana segir að margir karlkyns
leikmenn séu að skemma ánægju
stelpna af því að spila tölvuleiki
á netinu vegna þess að þar verða
þær fyrir miklu áreiti og kyn-
ferðislegri áreitni. Jana segir að
það sé mikilvægt að tölvuleikir séu
jafn aðgengilegir fyrir fólk óháð
kyni og því sé mikilvægt að vekja
athygli á þessum vanda.
„Tölvuleikir hjálpa mér mjög
mikið með kvíðann sem ég hef
glímt við og ég átti ekki marga
vini í grunnskóla þannig að þeir
hjálpuðu mér að líða eins og ég
hefði eitthvað annað að gera en að
hanga heima og láta mér leiðast,“
segir Jana, sem vill verða atvinnu-
maður í Overwatch og er að vinna
með Rafíþróttasamtökum Íslands.
„Við erum að búa til keppni
sem getur orðið að alvöru deild
fyrir Overwatch eins og er til fyrir
Counter Strike: Global Offensive,
í staðinn fyrir að hafa bara stakar
keppnir,“ segir hún.
Margar stelpur fela kyn sitt
Jana hefur tjáð sig um áreitni sem
stelpur sem spila tölvuleiki á inter-
netinu verða fyrir og vakti mjög
fjöruga umræðu um þetta málefni
í Facebook-hópnum Tölvuleikja-
samfélagið fyrr á árinu.
„Ég byrjaði að tala um þetta
vegna þess að ég hef verið í tölvu-
leikjum mest allt lífið og áreitnin
sem ég verð fyrir frá sumum
strákum þegar ég spila er svo
ógeðsleg að ég hef fengið nóg,“
segir hún. „Ég á karlkyns vini sem
spila líka og þeir fá ekki sama ógeð
yfir sig eins og ég. Mér finnst þetta
ekki réttlátt og ég veit um margar
stelpur sem hætta að spila eða fela
að þær séu stelpur þegar þær eru í
tölvuleikjum.
Ég spurði af hverju stelpur fá
svona mikinn skít og ég var mjög
ósátt með hversu margir sögðu
að þetta væri bara allt í gríni og
það tæki því ekki að taka þessu
alvarlega,“ segir Jana. „Þá mundi
ég eftir myndbandi á Youtube
sem sýnir áreitnina sem stelpur
verða fyrir á mjög skýran hátt og
ákvað að búa til annan póst þar
sem ég sýndi fólki myndbandið og
lét umræðuna koma út frá því. Þá
breyttist mikið og umræðan varð
jákvæðari. Ég var mjög ánægð með
að flestir sem horfðu á myndbandi
tóku eftir því hvað þetta er hræði-
legt og sáu að þetta er ekki bara
grín.“
Getur haft gríðarleg áhrif
„Þó að strákar fái líka skít frá
öðrum leikmönnum þegar þeir
spila tölvuleiki á netinu og það séu
oft sagðir ógeðslegir hlutir við þá
fá þeir ekki kynferðislega áreitni
og það er ekki ráðist á þá á sama
hátt. Svo er mér mikið kennt um ef
liðið mitt tapar leikjum bara vegna
þess að ég er stelpa.
Oft þegar ég segi hæ eru strákar
farnir að biðja um brjóstamyndir
fyrir að hjálpa mér í leiknum áður
en ég get sagt neitt f leira. Ef ég segi
nei og hafna þeim er drullað yfir
mig og ég kölluð tussa, hóra og
allt saman. Þetta er það sem mjög
margar stelpur upplifa, ekki bara
ég,“ segir Jana.
„Þetta hefur mjög slæm áhrif á
mig og verður oft til þess að ég geti
ekki einbeitt mér að leiknum, þarf
að hætta og líður svo illa restina
af deginum. Sumir höndla þetta
ekki og hætta að spila eða gera sér
jafnvel eitthvert mein. Þetta hefur
hræðileg áhrif bæði andlega og
líkamlega,“ segir Jana.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is Jana segir að
margar stelpur
feli kyn sitt
þegar þær spila
tölvuleiki á
netinu til að
sleppa við áreiti
og kynferðis-
lega áreitni. Það
er vel þekkt að
einelti og áreiti
á netinu getur
haft gríðar-
lega neikvæð
áhrif á andlega
og líkamlega
heilsu þeirra
sem fyrir verða.
FRÉTTABLAÐIÐ/
AUÐUNN
Aðgát skal höfð í nærveru sálar
segir gamalt máltæki og það er vel
þekkt að einelti og áreiti á netinu
getur haft gríðarlega neikvæð
áhrif á andlega og líkamlega heilsu
þeirra sem verða fyrir því.
„Sjálf hef ég glímt við kvíða, en
það hefur hjálpað mér mjög mikið
með kvíðann að tjá mig og sýna
hver ég er. Ég var líka greind með
þunglyndi fyrir fjórum árum, en
er að mestu búin að vinna úr því.
Maður veit aldrei hvað manneskja
er að ganga í gegnum í lífinu og
þess vegna er svo mikilvægt að
svona viðgangist ekki.“
Jana segir að tölvuleikir eigi að
vera jafn aðgengilegir fyrir alla.
„Það eiga allir að hafa rétt á því að
komast burt frá raunheiminum
með því að spila tölvuleiki til að
slappa af eftir langan dag og hafa
gaman af lífinu á meðan þeir spila,
sama af hvaða kyni fólk er. Það er
engin spurning.“
Minni breyting en fólk vonar
Jana telur að flestir þeirra sem eru
með leiðindi geri sér grein fyrir
áhrifunum sem það getur haft.
„Ég hef lent í fólki sem reynir að
láta öðrum líða ömurlega og reynir
að vera ógeðslegt við fólk, sem er
náttúrulega bara ömurlegt,“ segir
hún. „Ég held að strákar sem áreita
stelpur geri það vegna þess að þeir
eru óöruggir. Þeir geta ekki viður-
kennt að stelpur geti verið betri en
þeir í f lestum hlutum. Þeir láta líka
eins og þetta sé þeirra svið og þora
ekki að hleypa stelpum inn og vilja
halda þeim í burtu.
Þeir eiga erfitt og vita ekki
hvernig á að takast á við þessa van-
líðan svo þeir eru bara leiðinlegir
við aðra og finnst það gaman. Það
gefur þeim valdatilfinningu,“ segir
Jana.
„En það eru samt auðvitað ekki
allir strákar sem láta svona og
það er ekki rétt að kenna öllum
strákum um. Það eru margir yndi
og elska að spila með stelpum. Þeir
eru æði og ættu að kenna öðrum
strákum að það sé í lagi að spila
með stelpum,“ segir Jana.
Hún segist hafa tekið eftir því
að sífellt f leiri stelpur séu að spila
og þori að sýna að þær séu stelpur.
„Það hefur orðið einhver breyting
eftir umræðuna um Gamergate
og MeToo og þetta hefur minnkað
eitthvað, en ekki jafn mikið og fólk
vonar,“ segir hún. „Þetta er ennþá
alltof slæmt til að tala ekki um það
og það eru ennþá margar stelpur
sem fela kyn sitt til að verða ekki
fyrir áreitni.“
Ef ég segi nei og
hafna þeim er
drullað yfir mig og ég
kölluð tussa, hóra og allt
saman.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . J Ú L Í 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R