Fréttablaðið - 17.07.2020, Qupperneq 14
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Orka náttúrunnar hlaut í lok árs 2019 tvo styrki til að efla enn frekar hleðsl-
unetið fyrir raf bíla víðs vegar um
landið. Annar styrkurinn fer í að
setja upp sautján kraftmeiri hrað-
hleðslustöðvar á tíu stöðum um
allt land en hinn styrkurinn er til
þess að setja upp minni hleðslur
við hótel og gististaði.
„Í dag erum við með 50 kW
hraðhleðslur um allt land en erum
að fara að setja upp sautján nýjar
150kW hraðhleðslur víðs vegar
um landið. Þetta er þrefaldur hraði
miðað við það sem er í dag,“ segir
Hafrún Þorvaldsdóttir, verkefna-
stjóri hleðslunets Orku náttúr-
unnar.
„Fyrir hinn styrkinn verða settar
upp um 20 nýjar 22 kW hleðslu-
stöðvar við hótel og gististaði.“
Áætlaður uppsetningartími á
þessum tveimur verkefnum er á
þessu og næsta ári. Nú þegar er
búið að setja upp tvær 150 kW
hraðhleðslur í Reykjavík og verið
er að klára samninga um næstu
fjórar staðsetningar. Stefnan er
að tíu 150 kW hraðhleðslur verði
komnar í notkun í haust.
„Það eykur sveigjanleika fyrir
raf bílaeigendur að hafa mögu-
leikann á bæði 50 kW hleðslum og
150 kW hleðslum. Það er ekki bara
ON sem er að setja upp hleðslur og
hraðhleðslur, það eru fleiri fyrir-
tæki á markaðnum. Við höfum
leitt þessa vinnu hingað til en fleiri
aðilar eru að fara í gang. Miðað við
alla uppbygginguna sem hefur átt
sér stað og þessa byltingu sem er
að hefjast á þessum markaði núna
myndi ég segja að það verði algjör
draumur að ferðast um á raf bíl
næsta sumar,“ segir Hafrún.
Mikilvægt að verja fé í inn-
viðauppbyggingu næstu árin
Hafrún bendir á að ríkisstjórnin
hafi tekið þá ákvörðun að hætta að
selja bensín- og dísilbíla eftir árið
2030 en flestir nýir bílar sem seldir
eru fram að þeim tíma verða enn í
notkun eftir 10-15 ár.
„Þess vegna er mikilvægt að velja
rétt núna, svo við sem þjóð þurfum
ekki að borga háar kolefnislosun-
arsektir eftir árið 2030. Við þurfum
að nýta bílana sem við erum með
í dag og velja svo rafbílinn um leið
og við ætlum að skipta. Ekki velja
nýjan bensínbíl eða dísilbíl. Það er
lykilatriði í orkuskiptunum.“
Vegna orkuskiptanna telur
Hafrún mjög mikilvægt að
ríkisstjórnin verji fé í innviðaupp-
byggingu næstu tíu árin og hvetji
þannig landann til að velja rafbíl
sem næsta bíl.
„Það er alltaf verið að tala um
eggið og hænuna. Hvenær koma
bílarnir og hvenær koma inn-
viðirnir, það er hleðslustöðv-
arnar? Mér finnst mikilvægt að
við hugum að því að taka þetta
samhliða.“
Ferli Orku náttúrunnar í orku-
skiptum í samgöngum má, að sögn
Hafrúnar, skipta í þrjá fasa. Sá
fyrsti var að setja upp hraðhleðslur
á 100 kílómetra millibili hringinn
í kringum landið. Það hófst árið
2014 og lauk á Mývatni vorið 2018.
Næsti fasi voru tengingar rafbíla
hjá fyrirtækjum og sá þriðji eru
tengingar fyrir heimilin.
„Við erum komin með hrað-
hleðslunet hringinn í kringum
landið og höfum smátt og smátt
verið að þétta það. En með aukinni
drægni rafbíla er þörfin fyrir
hleðslur að breytast. Við þurfum
að fjölga tengjum á hverjum
stað og fækka frekar stöðunum í
kringum landið,“ segir Hafrún.
Hún segir markmið Orku Nátt-
úrunnar vera að búa til stopp fyrir
rafbílaeigendur þar sem er nóg af
tengjum og þjónusta.
„Það er ekki lengur þörf á að
fjölga stöðvum og hafa bara eina
hleðslu á hverjum stað. Flestir
nýjustu bílarnir í dag eru með 300-
500 kílómetra drægni á meðan
fyrsta kynslóð raf bíla sem kom
hingað til Íslands var bara með 100
kílómetra drægni og því kjörnir
innanbæjar og í styttri vegalengd-
ir. Okkur langar að hafa kannski
tvö til þrjú risastór bílastopp sem
henta til dæmis fólki sem er að
koma að norðan eða fara norður.
Ég myndi kalla það raf bílatorg.
Þar yrðu þjónusta, veitingar og
salerni á staðnum. Markmiðið er
að raf bílaeigendur upplifi að þetta
sé þeirra stopp þar sem þeirra
þörfum er sinnt.“
Hafrún nefnir einnig að bílafloti
fyrirtækja sé sífellt að vaxa og
að Orka náttúrunnar hafi sinnt
fyrirtækjatengingum í hátt í tvö ár.
Eins segir hún að virkileg þörf sé
á hleðslulausnum fyrir heimili og
fjölbýli.
„Reynslan í Noregi sýnir að
langódýrast er að hlaða bílinn
heima. Það er auðvitað ódýrara
en að kaupa skyndibitann úti á
vegunum. Við hvetjum alla til að
hlaða heima en veigra sér ekki við
að nota hleðslunetið þegar þau eru
á ferðinni.“
Hvort er betra að stoppa til
að hlaða eða hlaða í stoppi?
Rafbílaeign á Íslandi hefur tekið
gríðarlegt stökk undanfarið og
bendir Hafrún á að um 50% seldra
bíla á landinu í dag eru raftengjan-
legir bílar. Það eru annað hvort
hreinir rafbílar eða tengiltvinn-
bílar.
„Eftir því sem þekking eykst
og fólk er farið að treysta þessum
bílum minnka neikvæðnisraddirn-
ar og fólk er farið að velja hreinan
rafbíl, sem er langskynsamlegast.
Fólk sem býr í Reykjavík er í mesta
lagi að keyra 25-50 kílómetra á dag.
Fyrstu rafbílarnir voru með 100
kílómetra drægni. Ég er á bíl sem
tilheyrir annarri kynslóð rafbíla
sem fer 200 kílómetra. Ég þarf ekki
að stinga honum í hleðslu nema
tvisvar til þrisvar í viku. Ég gæti í
raun komist af með að nýta bara
hraðhleðslustöðvar ON í Reykjavík
og þyrfti aldrei að stinga honum
í samband heima. Þetta er svo
einfalt og hentar eiginlega öllum
í dag.“
Eftir því sem hleðslumögu-
leikum fjölgar í sveitarfélögum og
við hótel, gististaði og annað þá er
einfaldast að hlaða í stoppi en ekki
stoppa til að hlaða. Þannig hefur
hleðslan ekki áhrif á ferðatíma
fólks.
„Þannig er hægt að hlaða bara
yfir nóttina eða á meðan við
borðum kvöldmatinn. Við hvetjum
alla til að skoða möguleikann á því.
Þegar ferðast er um Ísland verður
maður að fá sér ON lykil. Hann er
lykillinn að veginum og greiðslu-
lausnin fyrir hleðslurnar um allt
land. Allar hleðslulausnir ON bæði
minni og stærri, heimahleðslur og
almenningshleðslur eru greiddar
með þessum lykli,“ segir Hafrún.
„Ef fólk ætlar út á land þá er
snjallt að byrja á að hlaða niður ON
hleðsluappinu í símann sinn til að
sjá staðsetningu hleðslanna. Þá er
líka hægt að ákveða hvar best er að
stoppa út frá því hvar er líklegast
að maður þurfi að hlaða. Appið
segir líka til um hvort hleðslurnar
séu lausar og hversu mörg tengi
og hvaða tegundir tengja eru á
hverjum stað.“
Hafrún bendir á að gott sé að
kynna sér appið áður en lagt er af
stað í ferðalag. Þar sem hleðslurnar
í dag eru með 100 kílómetra milli-
bili er mögulega hægt að keyra
framhjá hleðslustöð og fara í þá
næstu ef stöðin er upptekin.
Ásókn í hleðslunetið hefur
aukist gríðarlega undanfarið
„Það þarf að gera ráð fyrir tíma
til að hlaða. Ásókn í hleðslunetið
hefur aukist til muna undanfarið.
Síðasta sumar sáum við mestu
notkun frá upphafi. En í október,
þegar við héldum að fólk væri hætt
að keyra eins mikið um landið,
var metið slegið. Stærsti hleðslu-
dagurinn frá upphafi var svo föstu-
dagurinn um Hvítasunnuhelgina
síðustu, en svo varð laugardagur-
inn enn stærri. Þetta hefur bara
farið þverhnípt upp á við. Við erum
að sjá hundruð prósenta aukningu
í notkun bara frá síðasta sumri,
sem segir allt um það sem koma
skal í þessum efnum.“
Hafrún nefnir aftur þetta með
hænuna og eggið og segir það sóun
að fara langt fram úr þörfinni. Þess
vegna sé ríkistjórnin að veita styrki
til hleðslustöðva í bitum.
„Það er sóun að sitja uppi með
ónýttar hleðslustöðvar. Góð nýting
á hleðslustöðvum ætti að vera í
kringum 20-25%. Við stöndum
um það bil helmingi betur en
Noregur ef miðað er við fjölda
hleðslustöðva á hvern bíl. Þó að
það skapist stundum biðraðir þá
er það vegna þess að allir eru að
ferðast á sama tíma. Við erum ekki
með endalaust magn af tengjum
sem hægt er að nota samtímis. Ef
fólk vill ferðast óhindrað á milli
allra hleðslustöðva og komast
alltaf að þá er best að ferðast á
morgnana eða á nóttunni. Seinni
partinn, frá svona 16:00 og til ca.
19:00 eða 20:00 þá er mest álag á
hleðslustöðvum. Ef maður kýs að
keyra á þeim tíma þá getur maður
lent í biðröð, sérstaklega núna yfir
sumartímann.“
Hafrún segir að hún búist alltaf
við að álagið á hleðslustöðvarnar
minnki með haustinu en nú telur
hún að það muni jafnvel halda
áfram, þar sem bílum hefur fjölgað
talsvert á árinu.
„Það eru svona 150-200 rafbílar
að koma á göturnar í hverjum
mánuði. Það þarf því sífellt að
fræða nýja eigendur og kenna þeim
á hleðslubúnaðinn og halda þeim
upplýstum. Rafbílaeigendur þurfa
að skilja bílinn sinn og samspilið
við hleðslustöðvarnar. Við erum
öll saman á þessari vegferð.“
ON stefnir
einnig á að
fjölga tengjum
á hverjum
stað en á nýju
hraðhleðslu-
stöðvunum er
hægt að hlaða
tvo bíla í einu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Framhald af forsíðu ➛ Ef fólk ætlar út á
land þá er snjallt
að byrja á að hlaða niður
ON hleðsluappinu í
símann sinn til að sjá
staðsetningu hleðsl-
anna.
2 KYNNINGARBLAÐ 1 7 . J Ú L Í 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RHLEÐSLUSTÖÐVAR