Fréttablaðið - 17.07.2020, Blaðsíða 16
Tjaldsvæðin fyllast þessa dagana en samfara mikilli fjölgun raf bíla og tvinn-
bíla fjölgar þeim jafnt og þétt á
tjaldsvæðum landsins þar sem
einhverjir hyggjast hlaða bíla sína.
HMS vill vekja athygli eigenda
þessara bíla og rekstaraðila tjald-
svæða á að sérstaka aðgát þarf að
viðhafa á stöðum þar sem hleðslan
fer fram. Um þær gilda sérstakar
öryggiskröfur umfram almennar
kröfur sem gerðar eru til raflagna
og raf búnaðar.
Sé ætlunin að leyfa eða jafnvel
bjóða sérstaklega upp á hleðslu
raf bíla hvetur HMS til að haft sé
samband við löggiltan rafverktaka
varðandi uppsetninguna til að
tryggja að öryggi fólks og eignum
verði ekki stefnt í hættu.
Hleðsla raf bíla hefur í för með
sér töluverða straumnotkun sem
af getur stafað hætta sé ekki rétt
að málum staðið. Til að tryggja
öryggi hafa verið settar sérstakar
reglur um raflagnir á stöðum þar
sem hleðsla raf bíla fer fram, sem
og um búnað sem nota skal í þessu
skyni. Þessar reglur, ásamt árvekni
og réttri umgengni notenda við
búnaðinn, tryggir öryggi við
hleðslu raf bíla eins og frekast er
unnt.
Tjaldsvæði og hleðsla rafbíla
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á að sérstakar öryggiskröfur eru gerðar til
hleðslustöðva á tjaldsvæðum. Sérstaka aðgát þarf að viðhafa þar sem hleðsla rafbíla fer fram.
Sum tjaldsvæði
hafa tekið í
notkun hleðslu-
stöðvar fyrir
rafbíla. Athuga
verður að þær
séu eftir ítrustu
kröfum um
öryggi. MYND/
GETTY
Rafbílum er að
fjölga mikið
hér á landi og
hleðslustöðv-
um sömuleiðis.
n Hver tengipunktur (t.d. tengill
eða inntaksbúnaður á bíl) skal
varinn með yfirstraumvarnar-
búnaði, t.d. sjálfvari, sem aðeins
ver þennan tiltekna tengipunkt.
n Hver tengipunktur skal varinn
með 30mA bilunarstraumsrofa
(lekastraumsrofa) sem aðeins
ver þennan tiltekna tengipunkt.
n Bilunarstraumsrofar ættu að
vera af gerð B – ekki má nota
bilunarstraumsrofa af gerð
AC, sem er algengasta gerðin á
markaðnum.
n Bilunarstraumsrofa af gerð A
má nota sé tryggt að DC-bil-
unarstraumur verði að hámarki
6mA, eða að settur sé upp annar
búnaður til útleysingar fari hann
yfir 6mA.
n Tryggja þarf að „ofar“ í raflögn
séu ekki bilunarstraumsrofar
sem þola minni DC-bilunar-
straum – þeir gætu hætt að
virka með réttum hætti.
n Færanlegir tenglar (snúrutengl-
ar), t.d. á framlengingarsnúru
eða fjöltengi, eru ekki leyfilegir.
n 16A tengla til heimilis- og ámóta
nota (Schuko) ætti ekki að nota
til hleðslu rafbíla – sé það gert
skal tryggja að hleðslustraumur
geti að hámarki orðið 10A.
n Uppsetning raflagna og búnaðar
til hleðslu rafbíla skal vera á
hendi löggiltra rafverktaka.
Samantekt á helstu öryggisatrið-
um má nálgast á vef HMS, hms.is
4 KYNNINGARBLAÐ 1 7 . J Ú L Í 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RHLEÐSLUSTÖÐVAR
arionbanki.is
Græn bílafjármögnun
Við viljum öll leggja okkar af mörkum fyrir græna framtíð.
Allt skiptir máli, stórt og smátt.
Þess vegna fellum við niður lántökugjöld á lánum vegna
kaupa á umhverfisvænni bílum.
Kynntu þér græna bílafjármögnun Arion banka.