Fréttablaðið - 17.07.2020, Page 17
Verkfræðistofan Verkís býr yfir gríðarmikilli reynslu, en hún á rætur að rekja allt
til ársins 1932 og er elsta verk-
fræðistofa landsins. Verkís hefur
tekið stóran þátt í framþróun og
uppbyggingu á innviðum íslensks
samfélags í um 90 ár og heldur
áfram að vera leiðandi á því sviði,
en fyrirtækið hefur í áratugi lagt
áherslu á að bjóða viðskiptavinum
upp á framsæknar lausnir með
sjálf bærni að leiðarljósi.
„Við höfum gert það í mjög
langan tíma, eða allt frá því að
Ísland hætti að nota olíu til að
kynda hús,“ segir Bjarni Freyr
Guðmundsson, sem starfar við
viðskiptaþróun hjá Verkís. „Við
höfum verið í framlínunni og
fylgst með þróun í tækni og verið
meðvituð bæði um hvað er að
gerast og hvað tekur við næst.
Ísland er með alla aðstöðu til að
vinna að sjálf bærni og við erum
með lausnir sem okkur finnast
eðlilegar en eru framsæknar fyrir
önnur lönd.“
Sjálfur er Bjarni lærður raf-
magnsverkfræðingur frá danska
Tækniháskólanum og hefur unnið
á sviði tækni fyrir rafmagnsfarar-
tæki á þeim áratug sem er liðinn
frá útskrift. „Í Danmörku stofnaði
ég nýsköpunarfyrirtæki á þessu
sviði og vann að þróun á drif-
vélum, rafgeymum og stafrænna
lausna með áherslu á öryggi,“ segir
hann. „Ég flutti heim fyrir tveimur
árum til að nýta þekkinguna
sem ég hef byggt upp erlendis hér
heima og fór að einblína á íslensk-
an markað, enda er margt mjög
spennandi að gerast. Við erum að
sjá breytingar gerast hraðar hér en
víða erlendis, þó að þetta hafi farið
hægt af stað og það hefur margt
gerst á þessum tveimur árum.“
Einkabíllinn er lykillinn
„Það er gríðarlega gaman að
fylgjast með orkuskiptunum sem
hafa verið í samgöngum á Íslandi
síðustu ár,“ segir Bjarni. „Það hafa
verið hraðar breytingar og áhugi
fólks vex ört. Við sjáum ein-
staklinga sem voru frekar á móti
raf bílum fyrir nokkrum árum
tala með þeim núna. En viðhorf
almennings til nýrrar tækni hefur
áhrif á hraða innleiðingu hennar.
Það verður áhugavert að sjá
breytingar á næstu árum með
áframhaldandi tækniþróun en
þessi þróun einkabílsins hefur
verið að smitast út í vinnuvélar
og flutningstæki, þannig að við
sjáum orkuskiptin fara enn
víðar næstu árin,“ segir Bjarni.
„En einkabíllinn er lykillinn að
því að ná upp massaframleiðslu
og það er nauðsynlegt til að ná
kostnaði við tæknina niður áður
en hægt verður að skipta út vélum
í atvinnurekstri. Því er mikilvægt
að greiða leiðina fyrir einstaklinga
til að þeir geti keypt og notað raf-
bíla auðveldlega og Ísland hefur
staðið sig mjög vel í því síðustu ár.
Sem samfélag höfum við tekið
rétt skref til að yfirstíga þessar
áskoranir og höfum séð bæði
styrkveitingar og lagabreytingar
til þess upp á síðkastið. Þessi tvö
atriði leiða til mikillar aukningar
á hleðsluaðstöðu og greiðir leiðina
gríðarlega,“ segir Bjarni. „Það var
til dæmis lagabreyting samþykkt
núna í júní sem auðveldar fólki
að setja upp hleðsluaðstöðu í fjöl-
eignarhúsum.“
Hleðsluaðstaða
sífellt aðgengilegri
„Helsta hindrunin fyrir þá sem
vilja fjárfesta í raf bíl hefur verið
Geta auðveldað orkuskiptin
Verkís veitir einstaklingum, húsfélögum og fyrirtækjum ráðgjöf varðandi lausnir sem snúa að
hleðslustöðvum og rafbílavæðingu. Aðgengi að slíkri tækni eykst hratt og þróun hennar er hröð.
Bjarni Freyr Guðmundsson er rafmagnsverkfræðingur sem hefur unnið á sviði tækni fyrir rafmagnsfarartæki í áratug. Hann segir að orkuskiptin á Íslandi
gangi hratt og Verkís geti aðstoðað einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki við að skipta yfir í rafknúin farartæki, vélar og tæki. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Það hafa verið hraðar breytingar í orkuskiptunum í samgöngum á Íslandi
og áhugi fólks vex ört. Bjarni segir að hér á landi hafi verið stigin rétt skref
til að greiða leiðina fyrir einstaklinga svo að þeir geti keypt og notað rafbíla
auðveldlega. Styrkveitingar og lagabreytingar hafa meðal annars leitt til
mikillar aukningar á hleðsluaðstöðu. MYND/ARNARLDUR HALLDÓRSSON
hleðsluaðstaðan, sérstaklega fyrir
þá sem búa í fjöleignarhúsum. Það
geta verið ýmsar ástæður fyrir
því,“ segir Bjarni. „Nágrannar geta
haft aðrar skoðanir og aðstaðan
getur verið þannig að lausnin er
ekki augljós. Fólk er líka oft að
hugsa að það þurfi að byrja með
eina hleðsluaðstöðu en veit ekki
hvað tekur svo við. Það þarf að
vera hægt að stækka án þess að
það þurfi nýja lausn í hvert skipti,
því það er of dýrt.
Það er einnig mikilvægt að huga
að öryggi og tryggja að hleðsluað-
staðan sé á stað sem uppfyllir allar
kröfur um brunavarnir. Hún er oft
geymd í bílskýlum og kröfurnar
um brunavarnar voru ekki þær
sömu hér áður fyrr,“ segir Bjarni.
„Búnaðurinn er mjög öruggur ef
faglega er komið að hönnun og
uppsetningunni, en við mælum
alltaf með því þegar farið er í
þessar framkvæmdir að athugað
sé með brunavarnar og að þær séu
örugglega tengdar við stjórnstöð
til að láta vita ef eitthvað gerist.“
Þjónusta fyrir ólíkar þarfir
„Við hjá Verkís veitum ráðgjöf
til einstaklinga, húsfélaga og
fyrirtækja og erum óháð framleið-
endum og birgjum þannig að við
erum ekki að reyna að selja einstök
kerfi, heldur finna lausnina sem
hentar viðskiptavinum og þörfum
þeirra sem best,“ segir Bjarni. „Við
aðstoðum húsfélög við að sækja
um styrki, en undirbúningsvinna
við styrki er gjaldgeng í umsókn-
um. Við erum mjög stolt af því að
allar umsóknir sem við höfum
aðstoðað við hafa farið í gegn.
Við aðstoðum fyrirtæki við
stærri verkefni, bæði uppsetningu
á hleðsluaðstöðu, hönnun og
útboðsgögn til að fá besta verðið
í verkið. Við höfum líka aðstoðað
fyrirtæki við að útfæra orkuskipti
hjá sér, bæði bílaflota, vinnuvéla-
flota og önnur tæki. Þar er þetta
ekki eins augljóst,“ segir Bjarni.
„Flest fyrirtæki eru farin að nota
rafknúna einkabíla en þau eru
oft með vélar og tæki sem eru
ekki í massaframleiðslu en vilja
samt huga að þessu. Við höfum þá
aðstoðað við að búa til áætlun um
orkuskiptin, en þær snúast oft um
tímasetningar, hvenær er best að
fara í þessi orkuskipti, hvort sem
það er á næstu árum eða ótíma-
bært því tæknin sé ekki til staðar.
Í f lestum tilfellum er hún til staðar
eða verður það á næstu 5-10 árum.“
Upplýsingafundur í ágúst
„Verkís verður með upplýsinga-
fund á skrifstofu sinni í Ofanleiti 2
klukkan 12 á hádegi þann 27. ágúst
næstkomandi. Þar munum við fara
yfir lagabreytingarnar sem voru
gerðar í júní og hvernig er best að
ganga til verks í þessum málum,“
segir Bjarni. „Veittar verða upp-
lýsingar um styrkveitingar,
lagalegt umhverfi, öryggismál,
þjónustuna sem er í boði og lausnir
sem henta í mismunandi tilfellum.
Við hvetjum alla áhugasama að
fylgjast með fundinum en það er
hægt að finna nánari upplýsingar
um viðburðinn á Facebook-síðu
Verkís.“
Einkabíllinn er
lykillinn að því að
ná upp massafram-
leiðslu og það er nauð-
synlegt til að ná kostnaði
við tæknina niður áður
en hægt verður að skipta
út vélum í atvinnu-
rekstri.
KYNNINGARBLAÐ 5 F Ö S T U DAG U R 1 7 . J Ú L Í 2 0 2 0 HLEÐSLUSTÖÐVAR