Fréttablaðið - 17.07.2020, Blaðsíða 18
Við keyrum ekki
meira en fimmtíu
til áttatíu kílómetra á
dag og gleymum aldrei
að hlaða bílinn.
Við höfum reynsl-
una og þekking-
una til þess að bjóða upp
á bestu þjónustuna á
landinu í dag.
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Við gerum ekkert annað. Fókusinn er því einfaldur hjá okkur og viðskiptavinir
geta verið vissir um að þeir fái
fyrsta flokks heildarumsjón þar
sem hugsað er út í hvert einasta
smáatriði. Við höfum reynsluna
og þekkinguna til þess að bjóða
upp á bestu þjónustuna á landinu
í dag. Ennfremur er þjónustu-
verið okkar opið allan sólarhring-
inn,“ segir Sigurður Ástgeirsson,
framkvæmdastjóri Ísorku.
Fjöldi hleðslustöðva frá
Ísorku víða um land
Ísorka er með yfir 630 lifandi
hleðslustöðvar í rekstri í sam-
skiptum við kerfið. Af þeim eru
300 hleðslustöðvar aðgengilegar
almenningi víðsvegar um landið.
Ennfremur eru átta opnar hrað-
hleðslustöðvar í kerfinu.
„Okkar fókus er á að bjóða upp
á hleðslulausnir þar sem eigendur
raf bíla geta komist í hleðslu á
meðan bíllin stendur kyrr í ein-
hvern tíma, það er við heimahús,
vinnustaði, verslanir, veitingahús,
á meðan farið er í ræktina eða
önnur afþreying er stunduð. Bíll-
inn er þá fullhlaðinn og tilbúinn til
notkunar þegar eigandi kemur að
honum. Hleðslunni sem þú færð úr
hraðhleðslu má þá líkja við sóda-
vatn eða skyndibita sem þú kippir
með þér þangað til þú kemst í
hefðbundna hleðslustöð.“
Heildarlausnir fyrir fjölbýli
Fyrir um einu og hálfu ári síðan
Yfir 80 fjölbýlishús treysta á Ísorku
Ísorka er eina fyrirtækið á landinu sem sérhæfir sig í því að bjóða upp á heildarhleðslulausnir fyrir
heimili, fyrirtæki, vinnustaði og stofnanir. Hjá þeim er hugsað út í hvert einasta smáatriði.
Sigurður Ástgeirsson er framkvæmdastjóri Ísorku, sem er eina fyrirtækið á landinu sem býður upp á heildarlausnir
fyrir hleðslustöðvar. Ísorka sér um allan meðfylgjandi rekstur hleðslustöðva fyrir 80 íbúðahús. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR.
Raf bílar njóta vaxandi vin-sælda og sífellt f leiri kjósa slíka bíla. Snæbjörn á tvo
mismunandi raf bíla. Hann keypti
Nissan Leaf fyrir um þremur árum
en fyrir fjórum mánuðum fjárfesti
hann líka í Tesla Model 3. „Við
hjónin ákváðum að fá okkur raf bíl
til að losna undan kolefnisbyrð-
inni. Áður en við keyptum fyrsta
raf bílinn skoðaði ég vel kostina og
gallana við þessa bíla og var alltaf
að bíða eftir að tæknin yrði enn
betri. Ég hafði ýmsar hugmyndir
um raf bíla sem ekki reyndust
réttar, til dæmis var ég hræddur
um að verða rafmagnslaus ein-
hvers staðar, en þær áhyggjur
reyndust algjörlega ástæðulausar,“
segir Snæbjörn, sem er viðskipta-
fræðingur að mennt og starfar hjá
Íslandsbanka. Hann hefur ekki
hugsað sér að skipta yfir í bensín-
eða dísilbíl aftur.
Á einhverjum tímapunkti
kom nýr raf bíll á markaðinn
sem Snæbirni og Katrínu Helgu
Kristinsdóttur, eiginkonu hans,
leist vel á. „Sá bíll var með stærri
og betri rafhlöðu en sambærilegir
bílar. Við ákváðum að slá til og
kaupa hann en hann var ekki til
í umboði heldur bara innfluttur
af einkaaðilum og það voru tveir
bílar til á sölunum. Ég fór á aðra
bílasöluna en þá var sá bíll seldur,
svo ég fór á hina og var sá bíll líka
Aldrei verið rafmagnslaus
Snæbjörn Sigurðsson ákvað að kaupa rafbíl vegna umhverfissjónarmiða. Hann segist vilja styðja
við nýjungar á þessu sviði, enda séu rafbílar framtíðin. Snæbjörn hafði þó fordóma í fyrstu.
Snæbjörn segist hafa leitað lengi að hinum fullkomna rafbíl en endaði með að kaupa þann sem var á hagstæðasta
verðinu. „Við stingum bílnum bara í samband og við erum með hleðslustöð heima.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
seldur. Þannig að eftir leitina að
hinum fullkomna raf bíl ákvað ég
að kaupa bara einhvern ódýran til
að prófa. Eftir það kom í ljós að allt
þetta sem ég var að pæla í skipti
engu máli. Það er til dæmis alveg
sama fyrir okkur hvort bílinn hafi
hundrað eða tvö hundruð kíló-
metra drægni. Við keyrum sjaldan
meira en fimmtíu til áttatíu kíló-
metra á dag og gleymum aldrei að
hlaða bílinn. Við stingum bílnum
bara í samband en við erum með
hleðslustöð heima. Það lengsta
sem við höfum keyrt er frá Reykja-
vík og upp í Borgarfjörðinn og þá
hlóðum við bílinn á þar til gerðri
stöð,“ segir Snæbjörn.
Sprækir bílar og lítið viðhald
En skyldi honum finnst munur
á því að keyra rafmagnsbíla í
samanburði við bensín- eða dísil-
bíla? „Já, þetta eru mun sprækari
bílar. Raf bílarnir eru fljótir upp og
það er skemmtilegt að keyra þá,
fyrir utan hvað þeir eru hljóðlátir.
Svo gleymist stundum að þeir eru
nær viðhaldsfríir. Ég hef ekki þurft
að setja neinn pening í viðhald á
Nissan Leaf, hef ekki einu sinni
þurft að skipta um bremsuklossa
frá því við keyptum hann, og það
þarf aldrei að smyrja bílinn,“ segir
Snæbjörn.
Nissan Leaf var keyrður um
níutíu þúsund kílómetra þegar
hann var keyptur. „En það skipti
ekki miklu máli. Það er sagt að
mótorinn í þessum bílum muni
alltaf endast lengur en bíllinn
sjálfur,“ upplýsir hann.
Snæbjörn ætlaði að kaupa
sér nýjan Nissan Leaf þegar
hann frétti að búið væri að opna
þjónustumiðstöð fyrir Tesla hér
á landi. „Við ákváðum að kaupa
frekar nýja Teslu og pöntuðum
líka Cyber Truck sem er væntan-
legur á markað eftir einhver ár
en það kemur bara í ljós hvort
við kaupum hann. Ég vil gjarnan
styðja við nýjungar á þessu sviði,
enda er þetta framtíðin.“
Hvað kostnað varðar segir Snæ-
björn að vissulega kosti raf bílar
sitt en rafmagnið sé á hagstæðu
verði. „Það eru líka lægri vextir á
lánum fyrir raf bíla, og það munar
um að losna við að borga fyrir
smurningu, bensín/dísil og annað
viðhald,“ segir hann að lokum.
hóf Ísorka að einbeita sér að lausn-
um fyrir fjölbýlishús. Fyrirtækið
er hið eina á landinu sem býður
upp á heildarlausnir fyrir hleðslu-
stöðvar, hvort heldur er innandyra
í bílakjallara eða bílastæðahúsi
ellegar utandyra. „Við útvegum og
setjum upp hleðslustöðvar fyrir
fjölbýlishús eða fyrirtæki og sjáum
ennfremur um allan rekstur,
þjónustu og lausnir sem því fylgir.
Þegar kemur að fjölbýlishúsum
þá leggjum við til allan búnað
og snjalllausnir svo húsfélagið
geti boðið upp á rafhleðslu fyrir
íbúa á sem einfaldastan og þægi-
legastan máta. Við sjáum þá um
að sækja fjármuni á greiðslukort
notenda og skila inn á húsreikning
mánaðarlega. Greiðslumiðlun,
aðgangsstýringar og álagsdreifing
eru algerlega sjálfvirkar og við
getum séð nákvæmlega hvað hver
notandi notar mikið rafmagn,
burtséð frá því hvaða hleðslu-
tengill er notaður hverju sinni, og
rukkum eftir því. Sami hleðslu-
lykill og þú notar heima hjá þér
virkar ennfremur í allar almennar
stöðvar Ísorku á Íslandi sem og í
hátt í 500.000 hleðslustöðvar víðs-
vegar um Evrópu.“
Í dag þjónustar Ísorka yfir 80
fjölbýlishús. „Þá erum við að hlaða
að meðaltali um 300 raf bíla á
sólarhring, sem eru um 12,5 raf-
bílar á hverjum einasta klukku-
tíma allan sólarhringinn. Það er
því verið að stinga raf bíl í sam-
band við kerfið okkar á um það bil
fimm mínútna fresti.“
Stærsta verkefni á Íslandi
Ísorka skilaði nýverið af sér einu af
stærstu hleðslustöðvarverkefnum
í Evrópu. „Um er að ræða hleðslu-
lausn í bílakjallara fjölbýlishúss í
Mánatúni með 305 bílastæði, þar
sem allir 305 bílastæðanotendur
geta fengið sér raf bíl og hlaðið
hann á sama tíma. Það er ekki til
stærri bílakjallari í einkaeigu á
landinu og við erum mjög stolt af
að geta sagt að við höfum séð um
þetta stærsta verkefni landsins.“
Kynntu þér málið á isorka.is. Sími:
568-7666. isorka@isorka.is.
6 KYNNINGARBLAÐ 1 7 . J Ú L Í 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RHLEÐSLUSTÖÐVAR