Fréttablaðið - 17.07.2020, Page 20
Rafbílar á Íslandi eru enn tiltölulega
fáir en hefur fjölgað síðustu árin.
Ökutækjaf loti Íslendinga hefur vaxið að meðaltali um 4 prósent milli ára
allt frá árinu 1995, samkvæmt
því sem greint er frá á vef Hag-
stofunnar. Stærsti hluti öku-
tækja á heimilum er knúinn með
bensíni. Fjöldi þeirra hefur lítið
breyst frá árinu 2007, á meðan
ökutækjum sem knúin eru með
dísil, eða öðru eldsneyti, hefur
fjölgað. Hjá fyrirtækjum í öðrum
atvinnugreinum en leigustarf-
semi, fór fjöldi dísilknúinna öku-
tækja fram úr fjölda bensínknú-
inna árið 2007.
Bensínknúnum ökutækjum
fækkaði til ársins 2015 á meðan
f leiri dísilknúin ökutæki bættust
í bílaf lotann. Hlutfall raf knú-
inna ökutækja og tvinnbíla með
hleðslugetu, var vart marktækt
af heildinni fyrr en árið 2018,
en þá voru skráð 7.445 þannig
ökutæki, eða 2,4 prósent af bíla-
f lotanum í heild. Stærstur hluti
þeirra var skráður á heimili.
Fjöldi ökutækja sem skráð voru
á heimili hefur vaxið frá 1995
til ársins 2018. Þetta þýðir að
fjölgun ökutækja er umfram
fólksfjölgun í landinu.
Flestir velja
bensínbíla
David Scott úr Apollo 15 ekur hér
rafknúnum tunglbíl.
Þó svo að raf bílar orsaki ekki útblástur á gróðurhúsaloft-tegundum gegnum púströr
líkt og bensín- og dísilbílar, getur
framleiðsla á rafmagni sem notað
er til að hlaða bílana framkallað
losun á gróðurhúsalofttegundum,
og mismikið eftir framleiðslu-
háttum rafmagnsins. Þrátt fyrir
þetta eru kostir raf bíla enn
talsverðir í losun gróðurhúsaloft-
tegunda nema í þeim löndum þar
sem kolaorka er ríkjandi.
Raf bílar voru víst vinsælir á
árum áður þegar þeir komu fyrst
fram á seinni hluta 19. aldar. Tungl-
bílarnir (LRV eða „Moon Buggies“)
sem NASA notaði í þremur síðustu
Apollo-leiðöngrunum sínum (15,
16 og 17) á árunum 1971-1972 voru
til dæmis rafmagnsbílar. Bílarnir
voru hannaðir til þess að komast á
um 13 km/klst. hraða, en óform-
legt hraðamet á tunglinu sló víst
Eugene Cernan í Apollo 17, sem
náði að koma tunglbílnum upp í 18
km/klst. hraða.
Vinsældir raf bíla minnkuðu
aftur samfara þróun sprengihreyf-
ilsins og fjöldaframleiðslu bensín-
bíla þar til áhuginn jókst aftur og
er enn í aukningu meðfram þróun
í rafhlöðum og rafmagnskerfum.
Rafbílar á tunglinu og á jörðu niðri
Gestir útihátíðar hlaða farsíma með
reiðhjóli. MYND/GETTYIMAGES
Raf bílar eru mun umhverfis-vænni kostur en bensín- og dísilbílar. Það efast fæstir
um það. En ef fólk vill verða enn
umhverfisvænna má prófa að
hlaða bílinn með heimatilbúinni
orku. Það er hægt að búa til raf-
magn með því að hjóla. Þá er rafall
tendur við afturhjólið og hjólinu
komið fyrir á þann hátt að dekkið
snerti ekki jörðina og reiðhjólið
sjálft hreyfist ekki áfram þegar
afturhjólinu er snúið með fót-
stiginu.
Það er ljóst að það yrði ansi
seinleigt að hlaða raf bíl með
þessum hætti en ef notaður er
umhverfisvænn rafall þá er þetta
allavega gott fyrir náttúruna og
góð líkamsrækt í leiðinni. Líklega
væri samt sniðugra að nýta þessa
tækni í eitthvað sem krefst minna
rafmagns. Eins og til dæmis að
kveikja ljósaperu eða hlaða far-
síma.
Heimagerð
rafhleðsla
Ertu að tengja?
Hleðsla rafbíla
Fáið löggiltan rafverktaka til að yfirfara og
aðlaga raflögnina áður en rafbíll er hlaðinn
í fyrsta sinn.
Hver tengipunktur má einungis hlaða einn rafbíl í einu
Hver tengipunktur skal varinn með yfirstraumvarnar-
búnaði sem einungis ver þennan tiltekna tengipunkt
Hver tengipunktur skal varinn með bilunarstraumsrofa
(lekastraumsrofa) sem einungis ver þennan tiltekna
tengipunkt
Bilunarstraumsrofinn ætti að vera af gerð B – þó má
nota gerð A sé jafnframt notuð viðbótarvörn
HMS mælir með að ekki séu notaðir hefðbundnir
heimilistenglar til hleðslu rafbíla
HMS mælir með að til heimahleðslu rafbíla séu notaðar
þar til gerðar hleðslustöðvar eða iðnaðartenglar
Stranglega er bannað að nota framlengingarsnúru,
fjöltengi eða önnur „millistykki“ við hleðslu rafbíla
Hleðslustrengir mega ekki liggja þar sem þeir geta
orðið fyrir hnjaski, t.d. yfir vegi, gangstéttar eða stíga
Ekki nota hleðslusnúru eða annan búnað sem hefur
skemmst
•
•
•
•
•
•
•
•
•
8 KYNNINGARBLAÐ 1 7 . J Ú L Í 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RHLEÐSLUSTÖÐVAR