Fréttablaðið - 17.07.2020, Page 26
Aðalsteinn Emil Aðal-steinsson er einn af handhöfum Nýrækt-arstyrks Miðstöðvar íslenskra bókmennta þetta árið. Styrkinn
hlýtur hann fyrir smásagnasafnið
500 dagar af regni.
„Þessi styrkur skiptir gríðarlega
miklu máli fyrir mig. Ég var búinn að
sækja um hann þrjú ár í röð þegar ég
loksins hlaut hann. Ég finn að þessi
styrkur er mun meiri stökkpallur en
ég hafði búist við,“ segir hann.
Afdrifarík augnablik
Aðalsteinn hefur birt smásögur
eftir sig í ýmsum tímaritum, en
smásagnasafn hans verður fyrsta
útgefna bók hans. Hún geymir
níu smásögur og mun koma út hjá
bókaforlaginu Dimmu.
„Sögurnar fjalla um mjög ólíkt
fólk, allt frá öldruðum manni sem er
ranglega sakaður um kynferðisaf-
brot, til tíu ára stelpu sem langar að
drepa bróður sinn. Ég er að kanna
hinar myrku hliðar mannsins og
eins afdrifarík augnablik í lífi per-
sóna, sem marka djúp spor eða
breyta lífi þeirra til frambúðar,“
segir Aðalsteinn.
Skrópaði til að skrifa
Hann byrjaði að skrifa sem ungl-
ingur. „Ég hef alltaf skrifað meðan
ég á að vera að gera eitthvað annað. Í
menntaskóla skrópaði ég í tímum til
að skrifa smásögur. Mjög snemma
var ljóst að ég stefndi að því að verða
rithöfundur og það eru um fjögur ár
síðan ég sneri mér að skriftum fyrir
alvöru.“
Spurður um áhrifavalda þegar
kemur að smásagnaskrifum nefnir
Skoðar hinar myrku hliðar mannsins
Aðalsteinn Emil Aðalsteinsson er meðal handhafa Nýræktarstyrks. Höfundur smá-
sagnasafns sem geymir níu sögur. Skrópaði í tímum í menntaskóla til að skrifa.
Mjög snemma var ljóst að ég stefndi að því að verða rithöfundur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Benedikt Erlingsson mun leik-stýra jólasýningu Þjóðleik-hússins, Nashyrningunum
eftir Ionesco. Nashyrningarnir eru
eitt frægasta verk hins heimsþekkta
fransk-rúmanska leikskálds Iones-
cos. Verkið fór eins og eldur í sinu
um leikhús í Evrópu eftir að það var
frumflutt árið 1959, og var leikið í
Þjóðleikhúsinu strax árið 1961.
Síðan þá hefur verkið verið sett upp
reglulega víða um heim og er löngu
orðið sígilt. Eins og venja er frum-
sýnir Þjóðleikhúsið á annan í jólum,
26. desember.
Hversdagslegt lífið í litlum bæ
umturnast þegar íbúarnir taka að
breytast í nashyrninga. Hlédrægi
skrifstofumaðurinn Bérenger er
hjartahlýr og góðviljaður náungi,
en er gagnrýndur af vinnufélög-
unum fyrir óstundvísi, svallsemi
og frjálslegt líferni. Hvers vegna er
það einmitt hann sem reynist vera
sá eini sem spyrnir við fótum og vill
ekki glata mennskunni?
„Á leiksviðinu sem stundum
hefur verið kallað vígvöllur hug-
mynda og hugsjóna setjum við upp
leikrit um það hvernig lítil hug-
mynd verður að stórri hugmynd
sem umbreytir heilu samfélagi.
Hvernig jaðarhugmynd smitast
sem vírus og verður að lokum að
meginhugsjón heillar þjóðar. Eitt-
hvað sem í raun og veru er alltaf að
gerast á hverjum degi. Alls staðar.“
segir Benedikt Erlingsson.
Benedikt leikstýrir
Nashyrningunum
Benedikt Erlingsson leikstýrir
jólaleikriti Þjóðleikhússins.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
hann Anton Tsjekhov, Alice Munro
og Gyrði Elíasson sem hann segir
vera einn af sínum uppáhaldshöf-
undum. „Meðan ég var að vinna að
þessum smásögum las ég Vetrargul-
rætur eftir Rögnu Sigurðardóttur,
þannig að einhver áhrif gætu verið
þaðan. Ég var mjög hrifinn af þeirri
bók.“
Vinnur í nýju handriti
Hann er nú að vinna í nýju hand-
riti. „Þar eru sögur sem verða lengri
og umfangsmeiri en í 500 dögum af
regni. Þær eru samt enn á frumstigi.
Ég er mjög heillaður af smásagna-
forminu, hef lagt mikla rækt við það
og lít á það sem eitthvað meira en
stílæfingu.“
Hann segir að vel geti farið svo að
hann eigi eftir að skrifa skáldsögu.
„Rúmlega tvítugur var ég búinn að
skrifa tvær sem var hafnað af öllum
útgefendum. Það var sárt þá en
núna sé ég að það var klárlega fyrir
bestu. Það tekur tíma að þróast og
þroskast sem rithöfundur.“
ÉG ER MJÖG HEILL-
AÐUR AF SMÁSAGNA-
FORMINU, HEF LAGT MIKLA
RÆKT VIÐ ÞAÐ OG LÍT Á ÞAÐ
SEM EITTHVAÐ MEIRA EN
STÍLÆFINGU.
Birt m
eð fyrirvara um
m
ynd- og textabrengl.
Reykjavík
Krókhálsi 9
Sími: 590 2020
Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Opið
Virka daga 9–18
Laugardaga 12–16
opel.is
FRÁBÆR FERÐAFÉLAGI
Opel Grandland X – takmarkað magn
Verð 4.490.000 kr.
Sjálfskiptur
1975 | Sérfræðingar í bílum | 2020
1 7 . J Ú L Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R14 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING