Fréttablaðið - 17.07.2020, Síða 30
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar
Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason
hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
ÉG VAR FYRST UM
SINN EFINS MEÐ AÐ
GEFA ÞAÐ ÚT VEGNA ÞESS
HVERSU PERSÓNULEGT ÞAÐ ER,
EN KÆRASTAN OG BRÓÐIR MINN
HVÖTTU MIG ÁFRAM.
Í dag kemur út lagið Takk fyrir mig í f lutningi Ingó Veðurguðs, en það er þjóðhátíðarlagið í ár. Þetta lag sker sig frá öðrum þjóðhátíðarlögum fyrir þær sakir að hátíðin fer
ekki fram um verslunarmanna
helgina þetta árið vegna fjölda
takmarkana á samkomum. Sem
stendur er fjöldi gesta á samkomum
takmarkaður við 500 manns en alla
jafna mæta tæplega tuttugu þúsund
manns á Þjóðhátíð.
„Lagið heitir Takk fyrir mig og
hefur verið að púslast saman í yfir
nokkuð langan tíma, sem er mjög
óvanalegt fyrir mig. Það mætti í
raun segja að lagið hafi nokkurn
veginn bara gerst. Bróðir minn
samdi svo hluta af því,“ segir Ingó.
Smellpassar við ástandið
Ingó var fenginn til að semja lagið
áður en að í ljós kom að hátíðin í ár
yrði slegin af.
„Það var búið að biðja mig að
gera lagið áður en ÍBV neyddist
til að taka þessa ákvörðun. Síðan
urðum við hins vegar að ákveða
hvort við vildum þá gefa lagið út.
Okkur fannst einhver rómantík
fólgin í því að gera það, sérstaklega
þar sem textinn smellpassar óvænt
við ástandið,“ segir hann.
Er það ekki sérstök tilfinning að fá
svo ekki að f lytja það fyrir dalinn?
„Mjög sérstök. Það að spila það í
dalnum gerir svolítið lagið að lagi,
þannig það er frekar leitt að fá ekki
að spila það núna í Eyjum. En sem
betur fer mun ég fá mitt tækifæri til
að flytja það þar á næsta ári,“ segir
hann.
Það er í nógu að snúast hjá Ingó
þessa dagana og fjöldinn allur af
giggum bókuð víðs vegar um landið
um verslunarmannahelgina.
„Já, ég með alveg helling af verk
efnum um verslunarmannahelgina.
Annars vona ég bara að lagið verði
það gott og því vel tekið, þannig að
ég neyðist til þess að spila það opin
berlega þegar ég gigga um ókomna
tíð,“ segir Ingó.
Lærði virði þess að slaka á
Ingó segist hafa haft það nokkuð
ágætt sjálfur á meðan heimsfar
aldurinn stóð sem hæst og sam
komubannið var í gildi. Það hafi
þó verið ákveðin viðbrigði að geta
ekki spilað opinberlega á meðan á
þessu stóð.
„Ég tók nú samt nokkur gigg í
gegnum Skype en annars hafði ég
líklega bara gott af smá pásu. Ég
gat gefið mér tíma til að sinna því
sem ég átti eftir á heimilinu. Það má
segja að ég hafi lært hvers virði það
er að geta slakað á annað slagið,“
segir hann.
Þrátt fyrir að Þjóðhátíð hafi verið
slegin af þá hafa takmarkanir á
skemmtanahaldi ekki mikil áhrif
á Ingó.
„Ég er nokkuð heppinn þar sem
ég er fyrst og fremst í verkefnum þar
sem 50100 manns koma saman. Nú
er samt erfitt fyrir hljómsveitir og
þá sem treysta á að halda eigin tón
leika. En ef maður er duglegur mun
maður lifa þetta af,“ segir Ingó.
Persónulegri Veðurguð
Um þessar mundir á Ingó eitt allra
vinsælasta lagið á landinu, Í kvöld
er gigg. Textinn er einlægari og per
sónulegri en við höfum hingað til
vanist frá Veðurguðinum.
„Það var samið nýlega þegar
ég var andlega tómur eftir mikla
vinnutörn. Það varð strax uppá
haldslag kærustunnar minnar og
bróður míns, en ég leita oft til þeirra
eftir ráðum. Ég var fyrst um sinn
efins með að gefa það út vegna þess
hversu persónulegt það er, en þau
hvöttu mig áfram og velgengni lags
ins hefur farið langt fram úr mínum
björtustu vonum,“ segir hann.
Hann segist síður en svo gera sér
grein fyrir því hversu vinsælt lag
verður mögulega þegar hann semur
það.
„Alls ekki, maður veit einhvern
veginn ekki neitt, þess vegna hef ég
lært að líklega er bara best að fylgja
hjartanu. Sumt nær í gegn, annað
ekki, en þá er það bara áfram gakk,“
segir Ingó. steingerdur@frettabladid.is
Líklega er bara best
að fylgja hjartanu
Ingó Veðurguð gefur út þjóðhátíðarlagið Takk fyrir mig í dag. Lag-
ið var gefið út þrátt fyrir að Þjóðhátíð hafi verið blásin af, en hann
segir það skemmtilega tilviljun hve vel textinn passi við ástandið.
Þrátt fyrir að Þjóðhátíð hafi verið blásin af mun Ingó spila víðs vegar um landið um „versló“. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1 7 . J Ú L Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R18 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KOMIN Í BÍÓ
EDDA BJÖRGVINS LADDI STEINDI JR.
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
SÍÐUSTU VEIÐIFERÐARINNAR
MYND EFTIR
GUNNAR BJÖRN GUÐMUNDSSON