Fréttablaðið - 17.07.2020, Blaðsíða 32
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Árna
Helgasonar
BAKÞANKAR
SÆNGURFÖT
SLOPPAR
FYRIR HANN & HANAUNDRI
HEILSUINNISKÓR
DÚNVÖRUR
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 11–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
RUM
ÚTSAL
S A
A
ALLT AÐ 60%
AFSLÁTTUR
VEFVERSLU
N
www.betrabak
.is
OPIN ALLAN
SÓLARHRI
NGINN
VIÐ SENDU
M FRÍTT
STILLANLEG RÚM | HEILSURÚM OG -DÝNUR | GAFLAR | SÆNGUR | KODDAR | SVEFNSÓFAR | STÓLAR | SÆNGURFÖT, O.FL.
EGILS
LÍMONAÐI
BLEIKT - 500 ML
169
KR/STK
338 KR/L
Fyrir svanga
ferðalanga
Ég hef komið víða við á vigt-inni. Það helgast af því að ég er einhvers konar sambland
af nautnasegg og átaksmanni. Ég
fer hratt upp og hratt niður. Það
eru því til ýmsar útgáfur af mér í
gegnum tíðina sem minningarfí-
dusar samfélagsmiðlanna rifja
reglulega upp fyrir mig. Þann-
ig var 2012-útgáfan dugleg að
hlaupa en 2017-útgáfan til dæmis
duglegri í hlaupböngsunum.
Mér þykir vænt um allar þessar
útgáfur, enda veit ég að hver og
ein staldrar stutt við.
Almennt þykir frekar við-
kvæmt að ræða um þyngd ann-
arra við þá en frá því eru nokkrar
undantekningar. Sumir hika ekki
við að segja manni, algerlega
óumbeðið, að þetta gangi ekki
lengur, nú verði maður að fara að
taka sig á. Þetta fólk er oftar en
ekki mjög ölvað.
Ekki síður áhugaverð eru
ummæli fólks þegar maður hefur
grennst. Ég rakst á kunningja
minn um daginn sem sagði mér
að það væri allt annað að sjá mig
eftir að ég hafði misst nokkur
kíló. Hann lét ekki staðar numið
þar, því það var víst alveg skelfi-
legt að sjá mig áður. Það rann
smám saman upp fyrir mér að
hann var ekki beint að tala um
mig. Hann var að tala um annan
mann, Gamla-Árna.
Mér fannst auðvitað kurteisi
af hálfu Nýja-Árna að taka undir
með þessum kunningja mínum.
Til að undirstrika hvers konar
dusilmenni þessi gamli hafði
verið trúði ég honum fyrir því að
Gamli-Árni hefði ekki látið sér
nægja að vera of þungur, heldur
hefði hann verið að tala illa um
fólk, þar á meðal hann. Kallað
hann dómharðan fávita. En það
voru auðvitað hans orð, ekki
mín.
Gamli vs. nýi