Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR 31. JÚLÍ 2020 DV
P ortið fyrir framan Kramhúsið er um-vafið byggingum og
þegar það er gott veður þá er
hvergi betra að vera en ein-
mitt í þessu porti. Þar er al-
gjört logn og sjóðandi heitt.
Það var á einmitt þannig degi
sem ég hafði mælt mér mót
við Margréti Erlu Maack í
einmitt þessu porti. Þegar ég
kem auga á hana sé ég að hún
er bara á brjóstahaldaranum
en ekki nóg með það heldur er
hún að klæða sig úr gallabux-
unum. „Ég bara get ekki verið
í fötum í þessum hita,“ segir
hún. Ég er sammála, finnst
hitinn þrúgandi en ákveð þó
að halda mig í fötunum. Ég er
jú í vinnunni. Út af COVID-19
tökumst við auðvitað ekkert í
hendur þó við séum að hittast
í fyrsta skipti. Keyrum þetta
bara í gang.
Margrét Erla Maack er
svo ótrúlega margt. Hún er
vinsæll plötusnúður, veislu-
stjóri, dansari, danskennari
og spurningahöfundur. Hún
stýrði „burlesque“sýningunni
Reykjavík Kabarett þar sem
gestir ýmist hlæja sig mátt-
lausa eða roðna niður í tær og
nú kabarettsýningunum Bú-
kalú sem eru stranglega bann-
aðar innan 20 ára og „hentar
ekki þeim sem hræðast undur
mannslíkamans“ eins og segir
í auglýsingu. Þá kennir hún
í sérsniðnum hópatímum í
Kramhúsinu þar sem gæsa- og
steggjaveislur njóta sérstakra
vinsælda. Listinn er endalaus.
Síðustu níu mánuði hefur
hún síðan sinnt glænýju hlut-
verki, móðurhlutverkinu.
„Ég ætlaði alltaf að verða
mamma. Ég átti bara erfitt
með að finna rétta manninn til
að koma í þetta með mér. Ég
ætlaði alltaf að eignast fullt
af börnum en stundum hugsa
ég að þetta sé kannski bara
komið gott. Stelpan mín er
svakalega hress og þá meina
ég svakalega hress. Hún er
mjög skemmtilegur krakki
en það er ekkert til hjá henni
sem heitir slökun,“ segir hún.
Barnsfaðir Margrétar Erlu
heitir Tómas Steindórsson og
dóttir þeirra ber nafn móður
Margrétar Erlu og svo móður
Tómasar – Ragnheiður Nína.
„Þetta er smá púsl hjá okkur
núna því pabbi hennar er í
fullri vinnu en ég í hálfri
vinnu. Það er samt eiginlega
slegist um að fá að passa hana
sem er mjög jákvætt. Það er
eru ekki allir sem búa við
þann lúxus að hafa bakland
hjá báðum foreldrum og að
það fólk sé til í að hjálpa.“
Fjárhagsáhyggjur
í fæðingarorlofi
Í hugum margra er Margrét
Erla einhvers konar ímynd
gleðinnar. Í raun er hún hins
vegar núna að verða aftur
hún sjálf eftir barnsburðinn.
„Ég fór ofboðslega langt niður
eftir fæðinguna. Í ungbarna-
eftirlitinu spurðu þær mig
mikið um líðan mína. Ef ég
hefði fengið tíu stig á spurn-
ingaskalanum sem var lagður
fyrir mig hefði ég verið send
til sálfræðings en ég fékk
bara níu stig. Mér finnst mjög
merkilegt að ég gerði mér
ekki grein fyrir því á sínum
tíma hvað ég fór langt niður.
Það er bara núna sem ég er að
koma aftur sem ég átta mig á
því. Þetta var í raun klassísk
fæðingardepurð og ég held
að margt hafi spilað þar inn
í,“ segir hún. Dóttirin fædd-
ist í október sem er einmitt
á þeim tíma sem mörg fyrir-
tæki eru að bóka veislustjóra
og skemmtikrafta fyrir árshá-
tíð. „Ég þurfti að segja nei við
svo marga sem dró mig niður
og ég hafði áhyggjur af því að
síminn myndi hreinlega hætta
að hringja. Þarna spila fjár-
hagsáhyggjur auðvitað inn í.“
Margrét Erla er almennt
sjálfstætt starfandi og þegar
hún var ólétt komst hún að því
að hún ætti afar lítil réttindi
inni hjá Fæðingarorlofssjóði.
Hún greip því til þess ráðs að
hefja hópfjármögnun til að
eiga fyrir fæðingarorlofinu
og þeir sem hétu á hana gátu
meðal annars keypt danstíma,
námskeið í veislustjórn eða
miða á Búkalú. „Þetta tókst
vel og það var gaman að finna
þennan mikla meðbyr. Það
skipti mig líka máli að heyra
frá mörgum sem sögðust hafa
verið í sömu stöðu. Þetta voru
ekki bara sjálfstætt starfandi
listamenn, listamannaafæt-
urnar, heldur líka mikið af
fólki í frumkvöðlastarfsemi.
Mjög margir höfðu lent í því
að eiga von á barni einmitt
eftir árið þar sem fólk var
að færa fórnir til framtíðar í
sinni nýsköpun.“ Þó söfnunin
hafi gengið vel logaði hins
vegar athugasemdakerfi fjöl-
miðla.
Ekkert bara „kík-í-píkí”
„Mér finnst allt í lagi að vera
illa gefinn en það er annað að
vera illa innrættur. Ég las alls
konar athugasemdir um mig
sem ég tók mjög inn á mig.
Þarna var fólk sem sagði að
ég ætti nú bara að borga mína
skatta. Ég hef hins vegar allt-
af borgað mína skatta. Um ári
áður en ég varð ólétt átti ég
ágætan varasjóð og ákvað að
taka þátt í uppsetningu Borg-
arleikhússins á Rocky Horror
sem mér fannst skemmtilegt
verkefni. Fæðingarorlofs-
sjóður miðar við tekjur árið
áður en þú eignast barnið og
það kom aldeilis í bakið á mér.
Erla
Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is
Dóttir Mar-
grétar Erlu og
Tómasar heitir
Ragnheiður
Nína, og er
slegist um að
fá að passa
hana.
MYND/ERNIR
Mesta pönkið
að vera sáttur
við sjálfan sig
Margrét Erla Maack upplifði fæðingardepurð eftir
að hún eignaðist dóttur sína og er fyrst nú að
verða aftur hún sjálf. Hún segir skemmtilegast að
kenna „burlesque“ þar sem konur vilja eiga samtal
við sjálfa sig og hvar þær standa í sínum þokka.